Úrkoman 466 prósent meiri en í meðalári

Stíflur fjalla­vatn­anna í Pakistan eru farnar að bresta. Vötnin sem alla jafna eru lífæð fólks­ins á lág­lend­inu ógna nú lífi þús­unda.

Gengið eftir járnbrautarteinum í flóðvatni í Sindh-héraði.
Gengið eftir járn­braut­ar­teinum í flóð­vatni í Sindh-hér­aði. Mynd: EPA

„Það er of mikið vatn. Við munum drukkna.“

Neyð­ar­kall þorps­búa í Sehta Sehanj, þar sem flóð­vatn úr stærsta jök­ul­lóni Pakist­ans hefur kaf­fært akra og eyði­lagt hús, er átak­an­legt. Þeir eru inn­lyksa og ótt­ast um líf sitt. Manchar-vatn, jök­ul­lón í fjöll­unum ofan þorps­ins, hefur marg­fald­ast að stærð síð­ustu vikur vegna gríð­ar­legra rign­inga og mik­illar jök­ul­bráðar. Vatnið rudd­ist yfir sínar nátt­úru­legu stíflur í gær, í að minnsta kosti þriðja sinn á stuttum tíma.

Yfirvöld reyna hvað þau geta til að koma í veg fyrir að vatn úr Manchar-vatni ofan Sindh-hér­aðs brjót­ist ekki í gegnum stíflur og flæði yfir annað fjöl­menn­asta hérað lands­ins, þar sem yfir 48 millj­ónir manna búa. Um síð­ustu helgi voru gerðar til­raunir með að „tappa af vatn­inu“ með því víkka skarð sem frá­rennsli þess fer um og beina því frá þétt­býl­ustu svæð­unum. Reyna að forða millj­ónum frá stór­flóði sem ann­ars er lík­legt. Þetta var ekki hættu­laust; flóð­vatn fór um þorp og olli eyði­legg­ingu og hafði áhrif á um 135 þús­und íbúa þeirra. Reynt hafði verið að vara þá við en margir hafa á enga aðra staði að venda. Fólk neydd­ist hrein­lega til að horfa á hús sín og eigur fara á kaf.

En Manchar-vatn heldur áfram að belgj­ast út. Og síð­ast í gær flæddi það yfir bakka sína, yfir skarðið, og niður á lág­lendið. Land­bún­að­ar­ráð­herra Sindh-hér­aðs segir að áfram verði reynt að stýra flóð­vatn­inu frá þétt­býl­ustu svæð­unum en aðgerð­irnar lofa ekki endi­lega góðu. Það er enn mikil hætta á því að nátt­úru­legar stíflur þess bresti algjör­lega og að millj­ónir verði í hættu.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar vara við því að neyð­ar­á­standið sem ríkt hefur í Pakistan síð­ustu vikur, þar sem um þriðj­ungur lands­ins hefur farið á kaf í vatn, eigi eftir að versna.

Hinar árs­tíð­ar­bundnu monsún-rign­ingar hafa verið sögu­lega miklar. Úrkoman hefur mælst 190 pró­sent meiri en í með­al­ári síð­ustu þriggja ára­tuga. Og úrkom­unni er mis­skipt eftir lands­hlutum. Í Sindh-hér­aði hefur úrkoman verið 466 pró­sent meiri en í með­al­ári.

Í ofaná­lag hafa sum­ar­hitar verið óvenju miklir og jöklar lands­ins, sem skipta þús­undum í Himalaya-fjöll­unum, bráðnað hratt.

Sum þorpin eru orðin að eyjum – flóð­vatn umkringir þau algjör­lega. Íbúar reyna að grafa skurði við hús sín í þeirri von að þeir geti hafst við í þeim. Aðrir eru orðnir hús­næð­is­lausir. Hafa þurft að dvelja á víða­vangi, uppi á klettum.

Yfir 1.300 manns hafa týnt lífi í flóð­unum. Það er mjög var­lega áætlað. 33 millj­ónir manna hafa orðið fyrir áhrifum af ham­för­unum sem hafa skolað burt húsum, brúm, vegum, fjar­skipta­innviðum og flestu því sem á vegi vatns­ins hefur orðið.

Og enn er von á rign­ingu. „Við ótt­umst að ástandið eigi enn eftir að versna,“ segir Inrika Ratwatte, yfir­maður Flótta­manna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna í Afríku. Um hálf milljón Pakistana hefur misst heim­ili sín og tugir þús­unda til við­bótar orðið að leggja á flótta í algjörri óvissu um hvað taki við. Með þessu áfram­haldi mun fólki í slíkum aðstæðum fjölga til muna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár