Eignarlausir, stórskuldugir en stofnuðu samt net félaga á aflandseyjum eftir hrun

Páll Þór Magnússon var framkvæmdastjóri Sunds/IceCapital, sem lyst var gjaldþrota árið 2012. Lýstar kröfur í búið voru 51 milljarður króna.
Páll Þór Magn­ús­son var fram­kvæmda­stjóri Sunds/IceCapital, sem lyst var gjald­þrota árið 2012. Lýstar kröfur í búið voru 51 millj­arður króna.

Fyrr­ver­andi eig­endur og stjórn­endur fjár­fest­inga­fé­lags­ins Sunds, sem síðar var end­ur­nefnt IceCapital, eru með pró­kúru í þremur félögum sem skráð eru til heim­ilis á lág­skatt­ar­svæði á Seychelles-eyjum. Félögin þrjú voru stofnuð af panömsku lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca í febr­úar 2011, tveimur og hálfu ári eftir hrun. Þau heita Orangel S.A., Xperia Trading S.A. og Tangon Consulting S.A. Frá þessu er greint í Stund­inni í dag en umfjöllun hennar er hluti af úrvinnslu úr Panama­skjöl­unum svoköll­uðu, sem fer fram í sam­starfi við Reykja­vík Media.

Þar segir enn fremur að Páll Þór Magn­ús­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sunds/IceCapital hafi verið með pró­kúru­um­boð fyrir öllu félögin. Auk þess hafi eig­in­kona hans, Gabríela Krist­jáns­dóttir, bróðir hennar Jón Krist­jáns­son og móðir þeirra Gunn­þór­unn Jóns­dóttir verið hvert um sig með pró­kúru­um­boð fyrir eitt félag. Fjár­fest­inga­fé­lagið Sund/IceCapital varð til utan um auð Óla Kr. Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóra og eig­anda Olís, sem lést árið 1992. Gunn­þór­unn er ekkja Óla og Jón og Gabríela eru börn hennar af fyrra hjóna­bandi.

Milljarða kröfur en litlar sem engar eignir

Sund/IceCapital var lýst gjald­þrota árið 2012 og námu lýstar kröfur í búið um 51 millj­arði króna. Margir kröfu­hafar félags­ins drógu það árum saman í efa að það ætti sér til­veru­rétt eftir hrunið og töldu að félag­inu hefði verið haldið á lífi til að koma undan eignum. Skipta­stjóri félags­ins sagði við Frétta­blaðið í apríl að stjórn­endur félags­ins, þeir Páll og Jón, teld­ust eign­ar­lausir á Íslandi en þeir hefðu flutt lög­heim­ili sín út fyrir land­stein­anna eftir banka­hrun. Fjöldi félaga í þeirra eigu hefur verið færður í erlent eign­ar­hald á síð­ustu árum. Vegna þessa hefur búinu gengið illa að inn­heimta skuldir þeirra.

Á meðal þeirra gjörn­inga sem reynt hefur verið að rifta var sá a selja fast­eignir út úr dótt­ur­fé­lagi Sunds/ IceCapital í lok árs 2008 til félags í eigu Páls. Skuldir dótt­ur­fé­lags­ins, Ice Properties ehf., sem voru á bil­inu 600-700 millj­ónir króna, voru færðar inn í ógjald­fært móð­ur­fé­lagið. Lán­ar­drott­inn var VBS fjár­fest­ing­ar­banki en Páll Þór Magn­ús­son var stjórn­ar­for­maður bank­ans þegar lánið var veitt. Fast­eign­irnar sem um ræðir eru Aust­ur­stræti 20 (Hress­ing­ar­skál­inn), 6. og 7. hæð í Kringl­unni 4-6 og tvær fast­eignir við Digra­nes­veg í Kópavogi. Slita­stjórn VBS, en sá banki sem Sund/IceCapital hafði átt hlut í var þá kom­inn í þrot, vildi meina að und­ir­skrift­ar­reglum VBS hafi ekki verið fylgt með til­færslu láns­ins, en Jón Þórisson, þáver­andi for­stjóri VBS, skrif­aði einn undir hana. Þetta mál hefur auk þess verið til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, sem nú heitir hér­aðs­sak­sókn­ari.

Þetta er fjarri því eina málið sem snýr að „Sundurum“ sem sagt hefur verið frá í fjöl­miðlum eða sem hefur ratað fyrir dóm­stóla. Í apríl var til að mynda greint frá því í Frétta­blað­inu að Páll hefði selt eig­in­konu sinni helm­ings­hlut í 370 fer­metra ein­býl­is­húsi í Garðabæ fimm dögum eftir að hann var ­dæmdur til að greiða þrota­búi félags­ins um 120 millj­ónir króna. Fast­eigna­mat húss­ins er 87 millj­ónir króna. Þrota­búi Sund/IceCapi­tal hefur ekki tek­ist að inn­heimta þá skuld sem Páll var dæmdur til að greiða því.

2. októ­ber 2014 var þrota­bú­i Sund/IceCapi­tal dæmdar 520 millj­ónir í Hér­aðs­dómi Reykja­ness. Dóm­ur­inn var vegna rift­unar á ýmsum gern­ingum stjórn­enda félags­ins sem áttu sér stað eft­ir ­banka­hrun­ið, haustið 2008 og snemma árs 2009. Skipta­stjóri þrota­bús IceCapital ­sagði við Frétta­blaðið að fyrr­ver­andi helstu stjórn­endur félags­ins, Páll og Jón, skuldi búinu tæpar 350 millj­ónir króna með drátt­ar­vöxt­um.

Annað rift­un­ar­mál sem dæmt var í í októ­ber 2014 snéri að sölu á 2/3 hlutar í þyrlu­fyr­ir­tæk­inu Norð­ur­flug­i út úr Sund/IceCapi­tal í des­em­ber 2008. Norð­ur­flug er nú í eigu erlendra félaga sem tengj­ast eig­endum IceCapi­tal. Fyr­ir­tækið hagn­að­ist um 160 millj­ónir króna á ár­unum 2013 og 2014. Þá seldu hlut­hafar í Norð­ur­flugi þriðj­ungs­hlut í því til­ Air Green­land síð­asta sumar á 200 millj­ónir króna.

Töldu sig fórn­ar­lömb mark­aðs­mis­notk­unar

Þeir Páll og Jón hafa löngum borið fyrir sig að hafa verið blekktir í við­skiptum við íslenska banka í rekstri Sunds/IceCapi­tal. Síðla árs 2010 tók hér­­aðs­­dómur Reykja­víkur fyrir mál Arion banka gegn félag­inu vegna van­efnda á lána­­samn­ingi. Í mál­inu bar lög­­­maður Sund/IceCapital, fyrir sig að félagið hefði verið mis­­notað mark­aðs­mis­­­not­k­un­­ar­til­­burðum Kaup­­þings, fyr­ir­renn­­ara Arion banka, til að kaupa hluta­bréf bank­­anum til að hafa áhrif verð­­myndun hans. Þá hafi rekstur Kaup­­þings eftir árið 2006 verið „einn blekk­ing­­ar­­leikur af hálfu stjórn­­enda bank­ans" og fjár­­­festar hafi „bæði verið blekktir og beittir svik­um".

Í mála­til­­bún­­aði Sunds/IceCapi­­tal sagði auk þess að stjórn­­endur Kaup­­þings hafi „á árunum 2007 til 2008 unnið mark­visst þágu ein­stakra hlut­hafa sinna og tekið stöðu gegn íslensku krón­unn­i". Á grund­velli þess­­ara raka fór lög­maður Sund/IceCapi­tal fram á að skjól­­stæð­ingar hans yrðu ekki bund­nir af lána­samn­ingn­­um. Hér­­aðs­­dómur hafn­aði þessum rökum og Hæst­i­­réttur stað­­festi þá nið­­ur­­stöðu nokkrum mán­uðum síð­­­ar. Sund/IceCapi­­tal var gert að greiða Arion banka 3,5 millj­­arða króna.

Sami hópur var aftur mættur fyr­ir dóm­stóla vorið 2011, nú vegna dótt­­ur­­fé­lags Sunds/IceCapital, Iceproperties, sem eig­end­­urnir vildu ekki gefa upp til gjald­­þrota­­skipta þrátt fyrir him­in­háar skuld­­ir. Í mál­­flutn­ingi fyrir dómi kom fram í máli lög­­­manns Iceproperties að hann teldi skjól­­stæð­inga sína hafa verið fórn­­­ar­lömb mark­aðs­mis­­­not­k­unar af hendi Glitnis banka þegar þeir keyptu bréf í honum fyrir um átta millj­­arða króna, sem voru fengnir að láni hjá Glitni. Dóm­stólar féllust ekki á þessi rök og Iceproperties var gefið upp til gjald­­þrota­­skipta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár