Almennir skattgreiðendur eiga ekki að greiða bætur til útgerðarinnar

Ríkið mun áfrýja nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms sem dæmt hefur ríkið til að greiða útgerð­ar­fé­lög­unum Vinnslu­stöð­inni og Hugin bætur vegna úthlut­unar veiði­heim­ilda á árunum 2011 til 2018. Verði nið­ur­staðan að ríkið þurfi að greiða bætur á kostn­að­ur­inn ekki lenda á skatt­greið­endum að mati fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Veið­arnar sjálfar eiga á end­anum að standa undir greiðslu bóta, þurfi ríkið á end­anum að greiða þær, vegna úthlut­unar mak­ríl­kvóta, að mati fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Almennir skatt­greið­endur eiga ekki að greiða fyrir bætur til Vinnslu­stöðv­ar­innar og Hugins að mati Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. „Það er í mínum huga rétt­læt­is­mál að sá reikn­ingur verði ekki sendur á almenna skatt­greið­endur í land­inu,“ segir Bjarni í færslu á Facebook þar sem hann tjáir sig um nýfall­inn dóm um mak­ríl­kvóta þar sem rík­inu er gert að greiða hátt í millj­arð til tveggja útgerða. 

Íslenska ríkið var í gær dæmt til að greiða Vinnslu­stöð­inni í Vest­manna­eyjum og dótt­ur­fé­lagi hennar, Huginn ehf, alls um 844 millj­ónir króna, auk vaxta og drátt­ar­vaxta, vegna fjár­tjóns sem útgerð­irnar urðu fyrir sökum þess að þeim var úthlutað minni mak­ríl­kvóta en skylt var. Þá var rík­inu gert að greiða máls­kostnað útgerð­anna beggja, alls 25 millj­ónir króna.

Fyr­ir fjór­um ár­um ákváðu sjö út­gerð­ir að stefna ís­lenska rík­inu vegna þess að þær töldu sig hafa orð­ið fyr­ir fjár­tjóni vegna mak­ríl­kvóta sem fór ekki til þeirra. Alls vildu þær fá 10,2 millj­arða króna úr sam­eig­in­leg­um sjóð­um. Þeg­ar fjöl­miðl­ar greindu frá umfangi krafna þeirra reis upp gagn­rýn­is­alda og fimm út­gerð­ir hættu við. Tvær tengd­ar út­gerð­ir héldu hins veg­ar áfram mála­rekstri og kröfð­ust enn að rík­ið greiði þeim 1,2 millj­arða króna í skaða­bæt­ur. Þetta var gert eftir að nið­ur­stöður dóm­kvaddra mats­manna á meintu mögu­legu tjóni þeirra lágu fyrir, en þær sýndu hið ætl­aða tjón minna en Vinnslu­stöðin og Huginn höfðu áður áætlað. 

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir kjarna máls­ins varða þau mörk sem stjórn­völdum eru sett að lögum um úthlutun afla­heim­ilda, í þessu til­felli mak­ríl. 

„Á fyrri stigum máls­ins hafði verið tek­ist á um bóta­skyld­una og kom­ist að því að ríkið bæri bóta­skyldu vegna þess hvernig staðið hafði verið að úthlutun heim­ilda til veiða en í þessu til­tekna dóms­máli var fyrst og fremst tek­ist á um eðli og umfang tjóns­ins,“ segir Bjarni í færslu sinni á Facebook. Segir hann eðli­legt að nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms verði áfrýjað til Lands­réttar. „Ríkið hefur enda áður boðað að tekið verði til varna af fullum þunga.“ 

„Sann­girn­is­mál er að það verði þá veið­arnar sjálfar sem á end­anum að standa undir slíkum reikn­ingi.“
Bjarni Bene­dikts­son
um bætur sem ríkið hefur verið dæmt til að greiða vegna úthlut­unar mak­ríl­kvóta.

Ef nið­ur­staðan verður á end­anum að ríkið skuli greiða bætur segir Bjarni að ágætt sé að hafa í huga að ríkið er ekki sjálf­stæð upp­spretta tekna. „Tekjur rík­is­ins eru skatt­greiðslur fólks og fyr­ir­tækja.“

Í huga ráð­herra er það „rétt­læt­is­mál að sá reikn­ingur verði ekki sendur á almenna skatt­greið­endur í land­inu.“

„Sann­girn­is­mál er að það verði þá veið­arnar sjálfar sem á end­anum að standa undir slíkum reikn­ingi, með einum eða öðrum hætti. Spyrjum að leikslokum,“ skrifar Bjarni.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár