Stór hópsýking tengd Landakoti – 77 greinst með COVID-19

Það sem ótt­ast var mest, að veiran kæm­ist inn í við­kvæma hópa, er orðið að veru­leika. Umfangs­mikil hóp­sýk­ing er rakin til Landa­kots og 49 sjúk­lingar hafa sýkst af COVID-19.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans á blaðamannafundi í dag.
Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans á blaða­manna­fundi í dag. Mynd: Lögreglan

Smit af kór­ónu­veirunni hafa greinst hjá 77 manns í tengslum við hópsmit á Landa­koti. 49 sjúk­lingar eru sýktir og 28 starfs­menn á þremur heil­brigð­is­stofn­unum; Landa­koti, Reykja­lundi og Sól­völlum á Eyr­ar­bakka. „Því miður hefur gerst það sem við ótt­uð­umst mest og mörg önnur sam­fé­lög hafa þurft að glíma við að sýk­ingin blossi upp í okkar við­kvæm­ustu hópum,“ sagði Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, á blaða­manna­fundi í dag. Ástandið hefur valdið því að stöðva hefur þurft útskriftir eldra fólks. Land­spít­al­inn vinnur nú á neyð­ar­stigi.

Páll sagði á fund­inum að hópsmitið væri reið­ar­slag. Mönnun heil­brigð­is­stétta væri veiki hlekk­ur­inn í augna­blik­inu.

Vegna klasa­smits­ins á Landa­koti, sem talið er hafa komið þangað inn með starfs­mönnum 12. októ­ber, eru 250 starfs­menn í sótt­kví og 25 sjúk­lingar á spít­al­anum. Már Krist­jáns­son, yfir­læknir smit­sjúk­dóma, sagði að nægur varn­ar­bún­aður væri til á Land­spít­al­anum og nóg af lyfjum. Inni á spít­al­anum liggi nú 52 sjúk­lingar með virkt smit, þar af 20 á Landa­koti.

Spurður hvað hafi farið úrskeiðis í verk­ferlum sagði Már að eitt­hvað hefði aug­ljós­lega gerst sem ekki væri hægt að útskýra að fullu. Lögð hafi verið áhersla á að fólk kæmi ekki veikt til vinnu. Páll benti á að málið sýni vel hversu lúmsk veiran sé.

Hópsmit kom einnig upp á Landa­koti í vor.

Páll sagði að um við­kvæman sjúk­linga­hóp væri að ræða og að búast megi við því að hluti hóps­ins verði tölu­vert veik­ari en sést hefur til þessa.

Á fund­inum var spurt að því hvort að til greina komi að skima starfs­fólk reglu­lega fyrir COVID-19 og sagði Már mögu­lega til­efni til þess.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagð­ist á fund­inum hafa áhyggjur af því að sam­fé­lags­smit muni aukast í tengslum við hóp­sýk­ing­una á Landa­koti. Hann ítrek­aði við fólk að hefði það ein­kenni ætti það að halda sig heima og fara ekki til vinnu.

Alma Möller land­læknir sagði stöð­una alvar­lega. Heil­brigð­is­kerfið væri við­kvæmt og að það geti verið alvar­legt að fá smit sem þetta inn á heil­brigð­is­stofn­an­irnar sjálfar. Hún mun leggja það til við heil­brigð­is­ráð­herra að dregið verði enn­frekar úr val­kvæðum skurð­að­gerðum til að létta álag á Land­spít­al­ann. Hún sagði þetta neyð­ar­úr­ræði.

Umfangs­mikil smitrakn­ing er hafin vegna hóp­sýk­ing­ar­innar. Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna, sagði verk­efnið flókið og að mik­il­vægt væri að fólk segði rétt frá þegar rakn­ing­arteymið hefði sam­band.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár