Kolaflutningar fá forgang í þýskum járnbrautarlestum

Þýska rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt að kola­flutn­ingar fái for­gang í járn­braut­ar­lestum lands­ins. Stjórn­völd hafa stefnt að því að hætta brennslu kola en stríðið í Úkraínu hefur haft mikil áhrif á þau áform.

Kolaverin hafa verið ræst að nýju í Þýskalandi.
Kola­verin hafa verið ræst að nýju í Þýska­landi. Mynd: EPA

Næstu sex mán­uði hið minnsta fá kol for­gang í járn­braut­ar­lestum Þýska­lands. Þetta kemur ekki til af góðu enda höfðu stjórn­völd í Þýska­landi stefnt að því að hætta bæði vinnslu kola og brennslu þeirra á næstu árum í því mark­miði að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. En nú blasa við þreng­ingar í raf­orku­fram­leiðslu sem eiga sér ýmsar skýr­ingar, m.a. þær að inn­flutn­ingur á kolum frá Rúss­landi hefur stöðvast vegna inn­rásar þeirra í Úkraínu og við­skipta­þving­ana í kjöl­farið.

Sömu­leiðis hefur dregið veru­lega úr inn­flutn­ingi á rúss­nesku gasi til Evr­ópu­ríkja. Hann stöðv­að­ist reyndar um hríð í sumar að sögn Rússa vegna við­halds á gasleiðslu. Og eftir að því við­haldi lauk hefur gas­streymið ekki náð sömu hæðum og áður. Óttast er mjög að Pútín Rúss­lands­for­seti muni nota gasið til þving­ana í vetur þegar orku­þörfin er mest. Kolin verða því áfram nýtt í stórum stíl til að knýja kola­ver sem fram­leiða raf­magn fyrir þýska þjóð.

[adspot]

En for­gangur kol­anna í járn­braut­ar­lest­irnar á sér líka aðra skýr­ingu. Hún er sú að yfir­borð Rínar og ann­arra áa sem not­aðar eru til að flytja varn­ing milli landa og lands­hluta er í sögu­legu lág­marki eftir gríð­ar­lega þurrka­tíð sum­ars­ins. Svo lítið vatn er í ám að stór­flutn­ingar um þær eru nær ómögu­legir.

Það er ekki eins og járn­braut­ar­lestir Þýska­lands hafi brunað tómar um teina. Þær eru yfir­leitt þaul­setnar af allra handa varn­ingi. Að veita kola­flutn­ingum for­gang mun því koma niður á öðrum vöru­flutn­ingum, að minnsta kosti á köflum.

Farþegalestir þurfa að bíða

Samkvæmt ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar fá allir flutn­ingar er tengj­ast orku­öflun for­gang í lest­irnar. Ferðir verða tíð­ari, farmur lest­anna þyngri sem gæti haft áhrif á lífs­gæði þeirra sem búa í nágrenni lestar­tein­anna. Þannig mun hávaði aukast og jafn­vel stað­bundin loft­mengun.

[links]„Þetta gæti líka þýtt að far­þega­lestir þurfa að bíða,“ segir í til­kynn­ingu frá þýska rík­is­lestar­fé­lag­inu Deutsche Bahn. Seink­anir á slíkum lestum eru þegar tíðar og hafa verið gagn­rýndar.

En rík­is­stjórnin telur að nýju regl­urnar um for­gangs­flutn­ing kola og olíu séu nauð­syn­legar svo að ekki komi til þess að loka þurfi kola­verum þegar vet­ur­inn gengur í garð.

Þjóð­verjar höfðu þegar lokað nokkrum kola­verum til að ná mark­miðum sínum í lofts­lags­málum og fleiri slíkar lok­anir voru fyr­ir­hug­aðar á næst­unni. Mark­miðið var að loka þeim sem flestum fyrir ára­mót. En nú hefur U-beygja verið tekin og ver sem búið var að loka hafa verið ræst að nýju og tengd við flutn­ings­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár