Hættuástand að skapast í Rínarfljóti – Munu skipin geta siglt?

Vatns­yf­ir­borð Rín­ar­fljóts gæti á næstu dögum orðið hættu­lega lágt að mati þýskra yfir­valda. Sífellt erf­ið­ara er að flytja vörur um ána, m.a. kol og bensín. Gríð­ar­miklir þurrkar hafa geisað víða í Evrópu með marg­vís­legum afleið­ingum.

Vatnsyfirborð Rínarfljóts hefur lækkað stöðugt síðustu vikur.
Vatns­yf­ir­borð Rín­ar­fljóts hefur lækkað stöðugt síð­ustu vikur. Mynd: EPA

Miklir þurrkar vikum saman hafa breytt mörgum stór­fljótum Evrópu í lækj­ar­sprænur. Svo lang­vinn hefur þurrka­tíðin verið að nú er útlit fyrir að skipa­flutn­ingar um Rín­ar­fljót legg­ist að mestu af ef himn­arnir fara ekki að opn­ast fljót­lega. Sífellt erf­ið­ara er orðið að flytja vörur um ána, m.a. kol og bensín. Ekki er hægt að full­lesta skipin því vatns­borðið er orðið svo lágt. Þýsk yfir­völd standa frammi fyrir miklum vanda og ótt­ast er að erf­ið­ara verði að flytja aðföng til verk­smiðja og orku­fyr­ir­tækja. Í frétt Euronews um málið segir að yfir­völd ótt­ist að þurrk­arnir verði enn eitt höggið á efna­hags­lífið og að meiri sam­dráttur vofi því yfir.

Vörur eru fluttar um stór­fljót Evrópu en lík­lega er þessi flutn­inga­leið hvergi jafn mik­il­væg og í Þýska­landi.

[adspot]

Svo lágt er yfir­borð vatns­ins í Rín­ar­fljóti orðið að ef fram heldur sem horfir verður það á einum stað á mik­il­væg­asta flutn­ings­svæði árinnar aðeins um fjöru­tíu sentí­metrar. Og mun svo halda áfram að lækka ef engin verður rign­ingin.

Þetta er ekki í fyrsta skipti á síð­ustu árum sem áhyggjur vakna af flutn­ings­leið­inni um Rín. Í októ­ber árið 2018 lækk­aði sögu­lega mikið í ánni og á einum stað var það aðeins 27 sentí­metrar.

Skipa­fé­lögin von­ast til þess að hægt verði að sigla áfram um ána þótt skipin flytji nú aðeins brot af þeim farmi sem til stóð svo þau risti ekki jafn djúpt. Ein afleið­ingin gæti þó orðið sú að ekki tak­ist að flytja bensín og dísilolíu til bens­ín­stöðva víðs vegar um landið í nægu magni. Það gerð­ist í þurrk­unum árið 2018 og er sú hætta yfir­vof­andi á ný.

Yfirvöld hafa beint vöru­flutn­ingum í járn­braut­ar­lestir í meira mæli til að bregð­ast við vand­anum. Slíkir flutn­ingar eru dýr­ari og taka lengri tíma.

Þurrk­arnir eru einnig farnir að segja veru­lega til sín í Frakk­landi og á Ítalíu. Hver hita­bylgjan á fætur annarri hefur herjað á íbú­ana í sumar og eru skýr­ing­arnar raktar til lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum.

Þýska skipa­fé­lagið HGK er eitt þeirra sem er í vand­ræðum með að flytja vörur á áætlun. „Það er ekki hægt að neita því að lofts­lags­breyt­ingar eru farnar að eiga sér stað og skipa­iðn­að­ur­inn þarf að aðlag­ast breyttu ástandi,“ hefur Euronews eftir Christian Lorenz, tals­manni skipa­fé­lags­ins. HGK er að und­ir­búa sig fyrir nýjan veru­leika, segir hann, þar sem lítið vatn í ánum gæti orðið við­var­andi vanda­mál og algeng­ara með áfram­hald­andi breyt­ingum á lofts­lagi.

Öll ný skip sem HGK kaupir verða smíðuð með það í huga að geta siglt um vatns­minna Rín­ar­fljót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár