Stjórnvöld segja greiðslu stöðugleikaframlags skila meiri ábata fyrir hagkerfið en skattur

Greiðsla slita­búa föllnu bank­anna á stöð­ug­leika­fram­lagi skilar rík­is­sjóði tölu­vert lægri upp­hæð í beinum fjár­hags­legum ávinn­ingi en greiðsla stöð­ug­leika­skatts myndi gera. Stjórn­völd hins vegar að lausn sem grund­völluð er á greiðslu stöð­ug­leika­skil­yrða „verði var­an­legri og með meiri ábata fyrir hag­kerfið í heild“. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2016 sem Bjarni Bene­dikts­son,fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra, lagði fram fyrr í þessum mán­uði.

Þegar áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta var kynnt í byrjun júní kom fram að tekjur rík­is­sjóðs af 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatti á allar eignir slita­búa Glitnis, Kaup­þings og gamla Lands­bank­ans yrðu allt að 850 millj­arðar króna án nýt­ingu frá­drátt­ar­liða.

Áður en áætl­unin var kynnt höfðu stærstu kröfu­hafar slita­bú­anna þriggja hins vegar náð sam­komu­lagi við stjórn­völd um að mæta ákveðnum stöð­ug­leika­skil­yrðum og greiða stöð­ug­leika­fram­lag til þess að sleppa við álagn­ingu skatts­ins. Til þess að það verði mögu­legt þurfa búin að klára gerð nauða­samn­inga fyrir ára­mót.

Samkvæmt útreikn­ingum Kjarnans mun sam­eig­in­legt stöð­ug­leika­fram­lag slita­bú­anna þriggja vera frá 330 til 380 millj­arðar króna. Þau „spara“ sér því allt að 520 millj­arða króna með því að mæta þeim frekar en að greiða stöð­ug­leika­skatt.

Ýmsir hafa gagn­rýnt þessa leið. Þar á meðal eru Indefence-hóp­ur­inn. Þau telja kröfu­hafa vera að fá afslátt sem þeir eigi engan rétt á. Hópurinn hefur auk þess gagn­rýnt Seðla­bank­inn hafi ekki staðið við lof­orð um opið og gagn­sætt ferli við afnám hafta. Í bréfi sem hann sendi seðla­banka­stjóra, og RÚV greindi frá í vik­unni, krefst hann þess að stöð­ug­leika­skil­yrði slita­búa föllnu bank­anna verði birt strax.

Ögmundur Jónasson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, tók undir þessa gagn­rýni og sagði kröf­una sjálf­sagða.

Nær sömu markmiðum og stöðugleikaskattur


Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016 er fjallað um losun hafta. Þar segir að upp­fyll­ing stöð­ug­leika­skil­yrða og greiðsla stöð­ug­leika­fram­lags myndi ná sömu mark­miðum um tak­mörkun áhættu við losun fjár­magns­hafta en með öðrum hætti, t.d. með álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts. „Beinn fjár­hags­legur ávinn­ingur rík­is­sjóðs yrði lík­lega nokkuð minni en ef búin myndu öll greiða stöð­ug­leika­skatt. Hins vegar myndi lausn á grund­velli þess að slita­búin upp­fylli stöð­ug­leika­skil­yrðin verða var­an­legri og með meiri ábata fyrir hag­kerfið í heild.“

Þá segir að ráð­stöfun tekna af stöð­ug­leika­skatti og stöð­ug­leika­fram­lagi skuli vera í sam­ræmi við mark­mið um efna­hags­legan og fjár­mála­legan stöð­ug­leika. Sér­stak­lega er til­greint að fjár­mun­irnir verði nýttir til að greiða niður skuldir rík­is­sjóðs „en þess skal þó gætt að ekki verði óæski­leg áhrif á pen­inga­magn í umferð eða önnur þenslu­hvetj­andi áhrif við þær greiðslur,“ segir í frum­varp­inu.

Kröfuhafar búnir að greina stöðuna á Íslandi fyrir mörgum árum


Kjarninn greindi frá því í vik­unni að end­ur­heimtir kröfu­hafa öllnu bank­anna, þegar þeir eru búnir að greiða umsamið stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­sjóðs, verða betri en þeir hafa reiknað með að þær yrðu á und­an­förnum árum. Kröfu­hafar Glitnis munu til að mynda fá allt að 33 pró­sent af nafn­virði krafna sinna miðað við núver­andi eign­ar­stöðu bús­ins og áætlað stöð­ug­leika­fram­lag. Miðað við verð á mark­aði með skulda­bréf Glitnis hafa áætl­aðar end­ur­heimtir oft­ast nær verið á bil­inu 25-30 pró­sent, eða lægri en það sem kröfu­haf­arnir reikna nú með að fá. End­ur­heimtir kröfu­hafa Kaup­þings og Lands­bank­ans verða einnig við efri mörk þess sem þeir hafa talið að þær yrðu á und­an­förnum tæpu sjö árum.

Miðað við það verð sem hefur verið á kröfum á föllnu bank­ana virð­ast kröfu­hafar þeirra því hafa áætlað nokkuð vel fyrir mörgum árum síðan hver nið­ur­staðan yrði þegar greitt yrði úr búunum, og hversu stóran hluta eigna sinna þeir þyrftu að gefa eftir til að ógna ekki efna­hags­legum og fjár­mála­legum stöð­ug­leika hér­lendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár