Staðfest smit af kórónuveirunni eru orðin 1.789 hér á landi. Í gær voru þau 1.775 og hefur þeim því fjölgað um fjögur síðasta sólarhringinn. Það eru næst fæstu smit sem greind hafa verið á sólarhring frá því í byrjun mars. Þau fæstu, tvö talsins, voru greind síðastliðinn sunnudag en þá voru framkvæmd mun færri sýnatökur en í gær.
Í gær voru greind smit 0,6 prósent af teknum sýnum en á sunnudag var það hlutfall eitt prósent. Einungis 18 manns hafa greinst með smit á síðustu fjórum dögum.
95 smit hafa greinst á Vestfjörðum þar sem hópsýking braust út fyrir nokkrum vikum.
Í dag eru 749 í sóttkví en í gær var fjöldinn 89. Alls hafa 18.623 lokið sóttkví.
Í dag eru 270 einstaklingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöldinn 313. Þegar mest var, í byrjun apríl, voru virk smit 1.096.
[adspot]Í gær voru 194 sýni rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og reyndust tvö þeirra jákvæð. Hjá Íslenskri erfðagreiningu voru tekin 431 sýni og voru tvö jákvæð.
Á sjúkrahúsi liggja 15 sjúklingar vegna COVID-19 sjúkdómsins, þar af fimm á gjörgæslu, samkvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is. Þeim sem liggja á sjúkrahúsi fækkaði um fjóra síðasta sólarhringinn.
Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru tíu látin.
Samkvæmt því sem fram kemur á COVID.is hafa flest smit greinst í aldurshópnum 18-29 ára.
Fyrsta smitið af kórónuveirunni greindist á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í lok febrúar. Greindum smitum tók að fjölga smám saman í kjölfarið en fjöldinn tók svo stökk 16. mars er 46 greindust. Flest smit greindust 23. mars eða 106.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir