Ertu farin að ryðga í reglum um samkomubann? Hér er upprifjun

Meg­in­línan í sam­komu­banni er þessi: Það mega ekki fleiri en tutt­ugu koma saman og alltaf – sama hversu margir eru saman – skal halda tveggja metra fjar­lægð frá næsta manni. Það gildir jafnt á vinnu­stað, úti í búð og í heima­húsum.

Tveggja metra fjarlægð skal ávallt vera milli fólks, hvar sem það kemur saman.
Tveggja metra fjar­lægð skal ávallt vera milli fólks, hvar sem það kemur saman. Mynd: EPA

Má ég fara til læknis í sam­komu­banni? En til tann­læknis? Hvað með sjúkra­þjálfun? Mega börnin mín hitta frændsystk­ini úr öðrum skólum? Og má ég knúsa barnið mitt og maka?

Þær eru margar spurn­ing­arnar sem vakna í „for­dæma­lausum“ aðstæðum líkt og þeim sem nú eru á Íslandi. Gott er að rifja upp af hverju sam­komu­bann var sett á og hvað má og hvað má ekki gera á meðan það er í gildi.

Sam­komu­banni var upp­haf­lega komið á 15. mars í þeim til­gangi að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dóm­inum. Markmið yfir­valda er að fækka smitum og hægja á far­aldr­inum enn frekar til að auð­velda heil­brigð­is­kerf­inu að hlúa að þeim sem veikj­ast af COVID-19 ásamt því að sinna annarri bráða­þjón­ustu. Í þessu skyni var ákveðið að herða enn frekar aðgerðir þann 24. mars.

En hvað mun samkomubannið vara lengi?

Sam­komu­bannið gildir til mánu­dags­ins 13. apríl en sótt­varn­ar­læknir hefur lagt það til við heil­brigð­is­ráð­herra að það verði fram­lengt til apr­íll­oka.

Hvaða áhrif hefur samkomubann á minni vinnustaði?

Á þeim vinnu­stöðum þar sem færri en 20 manns vinna er mælst til þess að haga vinnu­rými þannig að hægt sé að hafa 2 metra á milli fólks. Gott er að leit­ast við að tak­marka sam­neyti á vinnu­stöðum og nýta fjar­vinnu eins og kostur er.

Þarf að loka stórum vinnustöðum í samkomubanninu?

Allir vinnu­staðir þurfa að tryggja að ekki séu fleiri en 20 í sama rými á hverjum tíma og að hægt sé að hafa 2 metra á milli þess fólks sem eru í vinnu.

Hvernig er skólahaldi háttað í samkomubanninu?

Tölu­verðar tak­mark­anir eru á skóla­haldi á meðan á sam­komu­bann­inu stendur. Í mörgum til­fellum geta nem­endur ekki mætt í skóla­bygg­ingar heldur stunda nám í fjar­kennslu. Í öðrum til­fellum eru strangar kröfur settar um fjölda og nálægð nem­enda.

Tak­mark­an­irnar gilda um leik­skóla, grunn­skóla, fram­halds­skóla og háskóla en einnig aðrar mennta­stofn­anir, frí­stunda­heim­ili, félags­mið­stöðvar og íþrótta­starf.

  • Fram­halds­skóla­bygg­ingar og háskóla­bygg­ingar eru lok­aðar og kennsla fer fram í fjar­kennslu eins og hægt er.
  • Grunn­skólar mega hafa kennslu í skóla­bygg­ingum ef þeir tryggja að ekki séu fleiri en 20 nem­endur í sömu kennslu­stofu og að nem­endur bland­ist ekki milli hópa, til dæmis í mötu­neyti eða frí­mín­útum. Eins þarf að þrífa eða sótt­hreinsa skóla­bygg­ing­arnar eftir hvern dag.
  • Leik­skólar mega hafa opið og halda uppi leik­skóla­starfi ef þeir tryggja að börn séu í fámennum hópum og aðskilin eins og kostur er. Eins þarf að þrífa eða sótt­hreinsa leik­skóla­bygg­ing­arnar eftir hvern dag.
  • Hlé er gert á íþrótta- og æsku­lýðs­starfi barna og ung­menna, sem felur í sér blöndun hópa, nálægð við aðra og snert­ingu.
  • Skóla­fé­lagar sem ekki eru í sama hópi í skóla­starf­inu ættu ekki að vera í návígi utan skóla.

Hvað munu takmarkanir á skólastarfi vara lengi?

Þessar tak­mark­anir verða í stöð­ugu end­ur­mati þannig að hægt sé að draga úr þeim eða þá lengja tíma­bilið sem þær gilda ef þörf þykir.

Af hverju er framhalds- og háskólum lokað en ekki grunn- og leikskólum?

Lítið er um að börn og ung­menni fái alvar­leg ein­kenni vegna COVID-19 og þau verða sjaldnar alvar­lega veik en full­orðnir. Eldri nem­endur eru einnig í betri aðstöðu til þess að sinna fjar­námi en yngri nem­endur. Skól­arnir eru sam­fé­lags­lega mik­il­vægir og brýnt að nem­endur hafi tæki­færi til þess að sinna sínu námi, þó náms­fyr­ir­komu­lagið kunni að breyt­ast tíma­bundið.

Hvernig á að haga leikjum barna við vini og félaga utan skólatíma?

Það er mik­il­vægt að for­ráða­menn barna dragi úr fjölda ein­stak­linga í tengsla­neti barna sinna utan skóla­tíma. Hér eru ítar­legri leið­bein­ingar:

  • Skóla­fé­lagar sem ekki eru í sama hópi í skóla­starf­inu ættu ekki að vera í návígi utan skóla.
  • Hafi börnin þroska til að fara eftir leið­bein­ingum sem snúa að minni snert­ingu við vini er ekki úti­lokað að þau geti hist í leikjum. Leik­irnir mega ekki fela í sér beina snert­ingu, notkun á sam­eig­in­legum leik­föngum eða bún­aði sem snertur er með berum höndum.
  • Börn og ung­menni ættu ávallt að þvo sér vel um hendur bæði áður en þau hitta félaga sína og eftir að þau koma heim.
  • Fjöl­skyldur ættu að hafa í huga að ef börnin umgang­ast mikið vini eða frændsystk­ini úr öðrum skólum eða skóla­hópum þá verður til teng­ing milli hópa sem ann­ars væru aðskildir. Slíkt ætti að forð­ast eins og kostur er.
  • Fjöl­skyldur eru hvattar til að nýta sér tækn­ina til að halda góðum tengslum við ást­vini sem eru í áhættu­hópum vegna COVID-19 sýk­inga, eldra fólk og fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.
  • Einnig væri hægt að nota tæki­færið að kenna börn­unum að skrifa sendi­bréf og æfa í leið­inni skrift, staf­setn­ingu, virkja ímynd­un­ar­aflið og hugsa í lausnum þegar kemur að sam­skiptum við ást­vini okkar.
  • Og varð­andi heim­ili þar sem sumir eru í sótt­kví en aðrir ekki:

Varðandi heim­ili þar sem sumir eru í sótt­kví en aðrir ekki:

  • Börn sem hafa þroska og getu til að sinna eigin hrein­læti og halda við­eig­andi fjar­lægð við for­eldra sem eru í sótt­kví sem og við skóla­fé­laga geta áfram sinnt námi í skóla­stofu. Mik­il­vægt er að gæta að hrein­læti t.d. nota sér sal­ern­is­að­stöðu.
  • For­eldrar stálp­aðra barna sem eru í sótt­kví og geta haldið við­eig­andi fjar­lægð frá börn­unum meðan á sótt­kví stendur geta áfram sinnt vinnu á vinnu­stað ef fjar­vinna er ekki í boði.
  • Heimilið verður allt að fara í sótt­kví ef börn hafa ekki þroska eða getu til að virða þær ráð­staf­anir sem gilda í sótt­kví. Önnur leið til að leysa slíkt væri ef þeir sem ekki eru í sótt­kví færu eitt­hvað annað á meðan á henni stendur.

Hvað með fólk á sama heimili?

Tveggja metra reglan gildir líka í sam­skiptum við fjöl­skyldu og vini, hvort sem fólk hitt­ist úti eða inni. „Við höfum aðeins séð þetta að vina­hópar eru að hitt­ast og spila og gleyma sér og hafa gaman, eins og við viljum gera, en þá er hóp­ur­inn kom­inn saman og svo fer ein­hver heim til sín og þar er til dæmis ein­hver mamman orðin full­orðin eða er með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma eða eitt­hvað slíkt, og þá er maður hugs­an­lega búinn að taka smit­hættu með sér inn á heim­ilið, þannig að við þurfum alltaf að vera að hugsa um þetta,“ sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­vörnum í sam­tali við RÚV. Það marg­faldi smit­hætt­una ef fólk virðir ekki þessi tveggja metra mörk í sam­skiptum.

Þetta eigi líka við þegar fólk fer saman í göngutúr eða aðra úti­vist, alltaf þurfi að gæta að tveggja metra regl­unni til að fyr­ir­byggja smit.

Víðir seg­ist til dæmis bara knúsa þá úr fjöl­skyld­unni sem búa á sama heim­ili og hann. „Ég knúsa kon­una mína og dóttur mína, við búum á sama heim­il­inu og við erum þétt saman alla daga, en ég knúsa ekki son minn og tengda­dóttur því að þau eru á öðru heim­ili. Þannig að við heilsumst bara úr tveggja metra fjar­lægð og það verður gott í sumar að knúsa þau.“

Hvað með sundlaugar, líkamsræktarstöðvar, sólbaðsstofur o.fl. í samkomubanni?

Allar sund­laugar eru lok­aðar.

Allar lík­ams­rækt­ar­stöðvar eiga að vera lok­aðar, hvort sem þær eru með tæki (eins og í tækja­sölum), sam­eig­in­leg lóð eins og í crossfit-sal, eða annan sam­eig­in­legan búnað.

Sól­baðs­stofur eiga að vera lok­aðar og gildir þá einu þótt hægt sé að hafa tveggja metra bil á milli fólks. Ástæðan er mikil smit­hætta af sam­eig­in­legum bún­aði.

Allar tattú­stofur skulu vera lok­aðar og allar nudd­stofur.

Er allt skemmtanahald bannað í samkomubanni?

Skemmt­anir með fleiri en 20 manns eru bann­aðar. Því er ljóst að svig­rúm til skemmt­ana­halds er lítið sem ekk­ert. Sé engu að síður um minni sam­kvæmi að ræða er mik­il­vægt að virða regl­una um að hafa a.m.k. tveggja metra fjar­lægð á milli fólks.

Nær samkomubannið til útisamkoma?

Já. Um slíkar sam­komur gilda sömu reglur og fyrir sam­komur sem haldnar eru inn­an­dyra, bæði hvað varðar fjölda og hversu mikið pláss þarf að vera hægt að hafa milli fólks.

Geta trúarlegar athafnir farið fram í samkomubanni?

Tak­mörkun á sam­komum tekur einnig til trú­arat­hafna, séu þar sam­an­komnir fleiri en 20 manns, þar með taldir þeir sem stýra athöfn­inni. Um getur verið að ræða útfarir, gift­ingar, ferm­ingar, skírnir og sam­bæri­legar athafnir, hvort sem er í kirkju eða á öðrum stöðum. Í reynd þýðir þetta að lítið sem ekk­ert svig­rúm er til hefð­bund­inna athafna af þessu tagi.

Geta veislur farið fram í samkomubanni?

Veislur, mat­ar­boð og öll önnur til­efni þar sem fólk kemur saman í heima­húsi, í veislu­sölum, utandyra eða á öðrum stöðum eru bann­aðar séu fleiri en 20 manns við­staddir. Við minni sam­kvæmi þarf að tryggja að fjar­lægð á milli ein­stak­linga sé a.m.k. 2 metrar.

Geta íþróttaviðburðir farið fram í samkomubanni?

Allt íþrótta­starf barna og full­orð­inna þar sem nálægð er minni en tveir metrar eða ein­hver sam­eig­in­leg notkun á bún­aði er fyrir hendi er bannað. Þetta á líka við um stærri búnað, s.s. skíða­lyftur.

Hvað með verslanir í samkomubanni?

Ekki stendur til að loka versl­unum en versl­anir þurfa að gæta að því að ekki séu fleiri en 20 ein­stak­lingar inni í versl­un­ar­rým­inu á sama tíma.

Und­an­tekn­ingin er mat­vöru­versl­anir og lyfja­búðir sem mega hafa allt að 100 manns inni í einu að því gefnu að gætt sé að því að tveir metrar séu á milli ein­stak­linga. Þá er mat­vöru­versl­unum sem eru yfir 1.000 fer­metrar að stærð heim­ilt að hleypa til við­bótar einum við­skipta­vini inn fyrir hverja 10 fer­metra umfram 1.000 fer­metra, þó að hámarki 200 við­skipta­vinum í allt.

Gott er að hafa í huga að bara einn frá hverju heim­ili fari í versl­un­ina, að vera skipu­lögð í inn­kaup­unum með inn­kaupa­lista, gæta að því að standa ekki of þétt saman í röðum og virða 2 metra regl­una milli ein­stak­linga.

Get ég farið í klippingu og á snyrtistofur?

Nei, hár­greiðslu­stofum og snyrti­stofum hefur verið lokað.

‍ Get ég farið í nudd og sjúkraþjálfun?

Nudd­stofum og annarri slíkri starf­semi þar sem nálægð er mikil hefur verið lokað. Þurfir þú á mik­il­vægri sjúkra­þjálfun að halda vegna end­ur­hæf­ingar er heim­ilt að veita hana með skil­yrðum um öfl­ugar sótt­varna­ráð­staf­anir.

Get ég farið til læknis eða tannlæknis þrátt fyrir samkomubann?

Já, en aðeins ef brýna nauð­syn ber til. Samkvæmt hertum reglum í sam­komu­banni frá og með 24. mars er starf­semi og þjón­usta sem krefst snert­ingu milli fólks eða mik­illar nálægðar óheimil. Þetta á þó ekki við um nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu, sem ekki getur beðið. Fólk er því hvatt til að fresta öllum val­kvæðum lækn­is­heim­sóknum eða aðgerðum sem mega bíða.

Ef grunur vaknar um mögu­legt COVID-19 smit á alls ekki að fara beint til læknis eða á heilsu­gæsl­una heldur hringja í síma­núm­erið 1700 sem er opið allan sól­ar­hring­inn, í síma­númer heilsu­gæsl­unnar sem er opin á dag­vinnu­tíma eða nota net­spjallið á vef­svæð­inu heilsu­vera.is.

Hvað fellur ekki undir samkomubann?

Sam­komu­bannið nær ekki til alþjóða­flug­valla eða alþjóða­hafna, flug­véla eða skipa. Hvatt er til öfl­ugra sótt­varna­ráð­staf­ana og að rekstr­ar­að­ilar grípi til ýtr­ustu ráð­staf­ana til að minnka mögu­leika á smiti.

Hvað gerist ef maður brýtur gegn skyldum um sóttkví?

Ef brotið er gegn gild­andi reglum um sótt­kví er hægt að sekta fólk um 50-150 þús­und krónur. Enn hærri sektir liggja við því að brjóta gegn reglum um ein­angrun, en ger­ist fólk sekt um slíkt gætu sektir orðið á bil­inu 150-500 þús­und krónur. Rík­is­sak­sókn­ari segir að í sumum til­vikum gæti slík hátt­semi verið það alvar­leg að fyrir bæri að refsa sam­kvæmt ákvæðum hegn­ing­ar­laga.

Sjá nánar hér.

En ef maður brýtur gegn reglum um samkomubann?

Sé brotið gegn gild­andi reglum um fjölda­sam­komur, segir rík­is­sak­sókn­ari, er heim­ilt að sekta hvern og einn ein­stak­ling sem sækir sam­kom­una um 50 þús­und krónur. Þá er heim­ilt að sekta þann sem er í for­svari fyrir eða skipu­leggur sam­kom­una um 250-500 þús­und krónur.

Þá getur sekt fyrir að brjóta gegn reglum um lokun sam­komu­staða eða starf­semi vegna sér­stakrar smit­hættu numið á bil­inu 100-500 þús­und krónum, sam­kvæmt fyr­ir­mælum rík­is­lög­reglu­stjóra.

Upp­lýs­ing­arnar sem greinin byggir á eru aðal­lega fengnar af vefnum Covid.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár