Spá miklu atvinnuleysi út árið 2022

Samkvæmt nýrri hag­spá ASÍ er búist við miklu atvinnu­leysi út árið 2022, jafn­vel þótt við­snún­ingi verði náð í ferða­þjón­ustu.

Drífa Snædal, forseti ASÍ
Drífa Snædal, for­seti ASÍ Mynd: Bára Huld Beck

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) spáir því að atvinnu­leysi hald­ist yfir 6,9 pró­sentum út árið 2022. Þó bætir sam­bandið við að atvinnu­leysið gæti verið meira verði við­snún­ingi ekki náð í ferða­þjón­ustu.

Þetta kemur fram í nýbirtri hag­spá ASÍ fyrir tíma­bilið 2020-2022. Í henni er gert ráð fyrir tæp­lega átta pró­senta sam­drætti í lands­fram­leiðslu í ár og 1,8 pró­senta hag­vexti á næsta ári. ASÍ bætir þó við að efna­hags­leg við­spyrna sé háð getu yfir­valda hér­lendis og erlendis til að ná böndum á útbreiðslu heims­far­ald­urs­ins, en spá sam­bands­ins er háð þeirri for­sendu að hann verði á und­an­haldi á síð­ari hluta næsta árs.

Sam­bandið spáir einnig miklum sam­drætti í útflutn­ingi vöru og þjón­ustu í ár, eða um 28 pró­setnum. Ekki er gert ráð fyrir að útflutn­ing­ur­inn nái sömu hæðum og árið 2019 á næstu tveimur árum, en búist er við 9,2 pró­senta aukn­ingu á næsta ári og 11,4 pró­senta aukn­ingu árið 2022.

Á sama tíma er einnig búist við að inn­flutn­ingur muni ekki ná sama striki á næstu árum, þar sem gert er ráð fyrir að hann verði 23 pró­sentum minni í ár, en níu pró­senta aukn­ingu er að vænta á næsta ári, auk ell­efu pró­senta aukn­ingar á árinu 2022. Vöxt­ur­inn á næstu árum byggir á því að farið verði að rofa til í milli­landa­ferða­lögum á síð­ari hluta næsta árs.

Búist er við erf­iðum árum framundan á vinnu­mark­aði. Í spá ASÍ kemur fram að við­kvæmar aðstæður hafi þegar verið til staðar áður en kór­ónu­veiran fór að breið­ast um heim­inn, þar sem atvinnu­leysi hafði byrjað að aukast í byrjun árs. Í sept­em­ber­mán­uði síð­ast­liðnum voru svo alls 18 þús­und manns atvinnu­lausir, en rúm­lega þrjú þús­und þeirra höfðu verið án atvinnu í meira en eitt ár.

ASÍ gerir ráð fyrir um 7,8 pró­senta atvinnu­leysi á þessu ári og býst við að það nái hámarki á því næsta í 8,6 pró­sentum. Draga mun svo úr því á árinu 2022, að því gefnu að við­snún­ingi verði náð í ferða­þjón­ustu, en búist er við að það verði enn mikið, eða um 6,9 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár