Blóðdropinn sem átti að breyta heiminum

Í þátt­unum The Dropout er farið yfir sögu Elizabeth Holmes, sem ætl­aði að bjarga heim­inum með bylt­ing­ar­kenndri blóð­skimun­ar­tækni, sögu sem er hvergi nærri lokið.

Sagan af kon­unni sem þráði að upp­götva eitt­hvað sem mann­kynið vissi ekki að væri mögu­legt og dýpkaði rödd­ina til að vera tekin alvar­lega er sögð meist­ara­lega vel í hlað­varp­inu The Dropout. Elizabeth Holmes ætl­aði að breyta og bjarga heim­inum með bylt­ing­ar­kenndri blóð­skimun­ar­tækni. Hún stund­aði nám í efna­verk­fræði við Stanford-háskóla en hætti í nám­inu og stofn­aði líf­tækni­fyr­ir­tækið Theranos, þá aðeins 19 ára gömul. Holmes hélt því fram að hún hefði þróað bylt­ing­ar­kennda blóð­skimun­ar­tækni sem gæti greint hund­ruð sjúk­dóma.  

Rebecca Jarvis, við­skipta­f­rétta­stjóri á ABC-frétta­stof­unni, fer ítar­lega yfir sögu Holmes í The Dropout og reynir í leið­inni að svara spurn­ingum á borð við hvernig „yngsti millj­arða­mær­ing­ur­inn sem byrj­aði frá grunni“, „næsti Steve Jobs“ og ein af áhrifa­mestu ein­stak­lingum árs­ins 2015 sam­kvæmt Time Magazine, varð sak­felld og dæmd fyrir að blekkja fjár­festa. Og hvernig náði hún að halda blekk­ing­unni gang­andi svona lengi? 

Mál Holmes hefur vakið athygli víða um heim, ekki bara í Kís­ildalnum, og sjón­varps­þætt­irnir Dropout hafa notið mik­illa vin­sælda. Amanda Seyfried fer með hlut­verk Holmes í þátt­unum og Jarvis ræðir við hana í sér­stökum bón­us­þætti hlað­varps­ins. 

Bón­us­þætt­irnir eru fleiri, meðal ann­ars um rétt­ar­höldin, en Holmes var dæmd í 11 ára fang­elsi í nóv­em­ber í fyrra. Holmes átti að hefja afplánun í 27. apríl en afplán­un­inni hefur verið frestað þar til áfrýj­un­ar­beiðni Holmes hefur verið tekin til umfjöll­unar. Holmes getur því varið tíma með eig­in­manni sínum og börnum, William, sem tveggja ára og Invicta, sem fædd­ist í febr­úar, þar til annað kemur í ljós. Sögunni er því hvergi nærri lokið og það er aldrei að vita nema að bón­us­þættir The Dropout verði fleiri. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaðvarpið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár