Ósamræmi í frásögnum yfirkjörstjórnarmanna í Norðvesturkjördæmi

Yfir­kjör­stjórn­ar­menn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi eru ekki sam­mála um hvort umræða hafi farið fram innan kjör­stjórnar um þá ákvörðun að telja aftur atkvæðin í kjör­dæm­inu eftir hádegi sunnu­dag­inn 26. sept­em­ber.

Yfir­kjör­stjórn­ar­fólk í Norð­vest­ur­kjör­dæmi tjáði sig um taln­ingu í kjör­dæm­inu við yfir­heyrslu hjá lög­reglu eftir kosn­ing­arnar en málið hefur valdið miklum titr­ingi hjá stjórn­mála­mönnum og almenn­ingi. Alþingi hefur nú birt svar­bréf lög­reglu­stjór­ans á Vest­ur­landi til und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefndar en það hefur verið birt á vef Alþingis.

Nefnd­ar­menn eru ekki nafn­greindir í bréf­inu en í nefnd­inni sitja Ingi Tryggva­son, sem er for­maður, Bragi Rúnar Axelsson, Ingi­björg Inga Guð­munds­dóttir, Katrín Páls­dóttir og Kristján Jóhanns­son.

Fram kemur í bréf­inu að einn yfir­kjör­stjórn­ar­mað­ur­inn hafi sagt að flokkun atkvæða hefði verið skoðuð og fund­ist hefðu nokkur atkvæði rang­lega flokkuð og þá haft á orði að það væri ekki spurn­ing um að það þyrfti að telja aftur.

Annar sagði að ekk­ert sér­stak­lega hefði verið rætt um það innan yfir­kjör­stjórnar hvort þyrfti að end­ur­telja. Sá þriðji sagði að skila­boð og ábend­ing frá lands­kjör­stjórn hefði verið rædd og að eftir skoðun á atkvæða­bunka eins fram­boðs­ins, þar sem fund­ust rang­lega flokkuð atkvæði, hefði þeim fund­ist sem ekki kæmi annað til greina en að telja aftur.

Sá fjórði sagði enga umræðu hafa verið um end­ur­taln­ingu innan yfir­kjör­stjórnar en að þetta hefði verið ákvörðun for­manns, lík­lega með lands­kjör­stjórn. Hinn fimmti sagði að til­mæli hefðu komið frá lands­kjör­stjórn um hvort rétt væri að skoða end­ur­taln­ingu og þegar skoðað hefði verið í atkvæði eins fram­boðs­ins þá hefði ekki verið annað hægt en að end­ur­telja.

„Nei, engin til­mæli og ekki neitt“

[links]Kjarninn greindi frá því 27. sept­em­ber að lands­kjör­stjórn hefði látið yfir­kjör­stjórn­ir í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Suð­ur­kjör­dæmi vita af því að fá atkvæði gætu breytt þing­manna­skip­an. Kristín Edwald for­maður lands­kjör­stjórnar sagði í sam­tali við Kjarnann að í þeim ábend­ingum hefði ekki falist nein til­mæli um að rýna sér­stak­lega í taln­ing­una að nýju.

„Nei, engin til­mæli og ekki neitt, enda höfum við ekk­ert um það að segja. Hins vegar sáum við á þeim nið­ur­stöðum sem yfir­kjör­stjórnir höfðu gefið fjöl­miðlum upp að það mun­aði mjög litlu, það mun­aði tveimur atkvæð­u­m,“ sagði Krist­ín.

Hún bætti því við að yfir­kjör­stjórn­irnar hefðu verið látnar vita, meðal ann­ars til að hægt væri að upp­lýsa umboðs­menn stjórn­mála­flokk­anna um stöð­una, svo þeir gætu tekið ákvarð­anir með full­nægj­andi upp­lýs­ingar undir hönd­um. Umboðs­menn gætu til dæmis viljað óska eftir end­ur­taln­ingu í ljósi þess hve fá atkvæði þyrftu að hnikast til svo úrslit breytt­ust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár