Dómsmálaráðherra sat hjá við veitingu ríkisborgararéttar

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra sat ein hjá þegar Alþingi veitti 51 ein­stak­lingi rík­is­borg­ara­rétt í nótt. Hún boðar laga­breyt­ingar um fram­kvæmd­ina.

Dómsmálaráðherra
Dóms­mála­ráð­herra Sigríður Á. Andersen sat hjá þegar 51 ein­stak­lingi var veittur rík­is­borg­ara­réttur í nótt. Mynd: Pressphotos

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra boðar laga­breyt­ingar á næsta þingi um hvernig að því er staðið þegar ein­stak­lingum er veittur rík­is­borg­ara­réttur. Sigríður sat ein hjá þegar þing­menn greiddu atkvæði um að veita 51 ein­stak­lingi rík­is­borg­ara­rétt í nótt. 

„Ég hef bent á það að mér finn­ist þessi fram­kvæmd hér eins og hún er orðin í dag, með sjálf­krafa afgreiðslu Alþingis á ein­staka umsóknum, ekki í takt við það jafn­ræði eins og menn myndu vilja hafa, eða að minnsta kosti ég, í þessum málum,“ sagði Sigríður þegar hún gerði grein fyrir atkvæði sínu.

„Ég er í þeirri ágætu stöðu núna að geta haft áhrif á fram­kvæmd­ina til fram­tíðar og hef í hyggju á næsta þingi að boða hér ein­hverjar breyt­ingar með frum­varpi um breytta fram­kvæmd á þessu af hálfu Útlend­inga­stofn­unar,“ bætti hún við. 

Hér má sjá ræðu Sigríðar í fullri lengd:

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár