„Við misstum líka tökin þegar atburðirnir voru komnir af stað“

Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar og fjár­mála­ráð­herra, telur að margir mögu­leikar hafi verið í kort­unum eftir að Björt fram­tíð sleit rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.

Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, seg­ist ekki hafa verið sáttur við hvernig Björt fram­tíð lauk stjórn­ar­sam­starf­inu á sínum tíma. Þetta kom fram í við­tali við Kristján Krist­jáns­son í við­tals­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

[links]Benedikt segir atburða­rás­ina vera dæmi um það þegar fólk missir stjórn á kring­um­stæð­unum vegna reynslu­leysis. Hann telur að Viðreisn hefði ekki átt að krefj­ast kosn­inga eftir stjórn­ar­slitin, heldur reyna að mynda minni­hluta­stjórn eða alla­vega gera hlut­ina öðru­vísi. „Við hefðum átt að ræða hlut­ina betur við Bjarna [Bene­dikts­son],“ segir hann og bætir við að þau í Viðreisn hafi misst tökin þegar atburða­rásin var komin af stað.

Betra hefði verið ef þau hefðu keypt sér tíma, að hans mati, en hann segir að margir mögu­leikar hafi verið í stöð­unni og að þau hefðu átt að láta á það reyna, fyrir stöð­ug­leika í land­inu. Benedikt seg­ist þó ekki vita hvort ný stjórn hefði lifað af aðra krísu.

Í við­tal­inu talar Benedikt um vin­skap hans og Óttars Proppé, fyrr­ver­andi for­manns Bjartrar fram­tíðar, en hann segir að Óttar sé ein­stakur maður, skemmti­legur og yfir­veg­aður. „Ég tel að það hafi verið mikil gæfa að kynn­ast honum og gaman að vinna með honum,“ segir hann og bætir því við að ekki hafi orðið vin­slit þegar flokk­arnir hættu sam­starfi í rík­is­stjórn.

Varðandi starfið á þing­inu segir Benedikt að honum hafi ekki fund­ist það sér­stak­lega skemmti­legt. „Menn eru stöðugt að reyna að klekkja á hver öðrum. Ég á erfitt með að gera lítið úr fólki,“ segir hann. Aftur á móti hafi verið gaman að vera for­maður flokks og ráð­herra þar sem hann segir að hann hafi haft tæki­færi til að koma góðu til leiða. Hann segir jafn­framt að inn í þing­nefnd­unum sé unnið gott starf, þar sé ekki þetta leik­rit sem á sér stað inn í þingsalnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár