Tíu ný smit undanfarna tíu daga

Ekkert nýtt COVID-19 smit greind­ist á Íslandi í gær, sunnu­dag. Einungis tíu smit hafa greinst und­an­farna tíu daga og bara eitt smit það sem af er maí­mán­uði.

Síðustu tíu daga, frá 23. apríl til 3. maí, greindust ein­ungis tíu ný COVID-19 smit á Íslandi. Í gær greind­ist ekk­ert nýtt smit, en að vísu voru ein­ungis rúm­lega sjö­tíu sýni tekin og færð til grein­ingar á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala í gær.

Þetta kemur fram kemur í upp­færðum tölum á vefnum covid.is.

Ljóst er að far­ald­ur­inn er að fjara út hér á landi, en meira en tífalt færri hafa greinst með sjúk­dóm­inn und­an­farna tíu daga en á þeim degi er flestir greindust, 24. mars. Þá voru ný stað­fest smit 104 tals­ins.

Þegar mest var um virk smit, þann 5. apríl, var fjöldi þeirra 1.096. Virk smit á land­inu eru nú 66 tals­ins og ein­ungis fjórir ein­stak­lingar eru á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins, eng­inn þeirra á gjör­gæslu. 775 manns eru í sótt­kví sem stendur.

Samtals hafa 1.799 manns greinst með COVID-19 á Íslandi, en 1.723 þeirra er batnað. Tíu manns hafa lát­ist eftir að hafa smit­ast af sjúk­dómnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár