Enginn málalisti kominn og 18 dagar eftir

Mála­listi rík­is­stjórn­ar­innar er enn ekki kom­inn fram. Stjórn­mála­fræð­ingur segir afar erfitt fyrir rík­is­stjórn­ina að bakka út úr lof­orðum um kosn­ingar í haust. 18 dagar eru eftir af almennum þing­fund­ar­dögum.

Langur verkefnalisti er á borði ríkisstjórnar Sigurðar Inga Jóhannssonar sem þarf að afgreiða á næstu vikum.
Langur verk­efna­listi er á borði rík­is­stjórnar Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sem þarf að afgreiða á næstu vikum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Anna­samir tímar eru framundan á Alþingi. Samkvæmt starfs­á­ætlun þings­ins eru nú ein­ungis 18 þing­funda­dagar eftir af yfir­stand­andi lög­gjaf­ar­þingi, auk eld­hús­dags­ins, og fjöldi mála eftir að leggja fram og afgreiða.

Fjöldi frumvarpa í tveimur málum

Rík­is­stjórnin fund­aði lengi í gær­morgun um stöðu mála, en mála­list­inn fyrir núver­andi þing er enn ekki til­bú­inn. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu er ljóst að ein­hver vinna er eftir til að ná að negla niður for­gangs­röð­un­ina. Nokkur af þeim stóru málum sem liggja á borði rík­is­stjórn­ar­innar, eins og afnám hafta og hús­næð­is­frum­vörpin, eru afar umfangs­mikil og inni­halda hvert um sig mörg frum­vörp sem bíða afgreiðslu.

For­sæt­is­ráð­herra hefur stað­fest að kosið verði til Alþingis í haust, en end­an­leg dag­setn­ing er ekki komin. Það sama hafa for­ystu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins gert. Afar erfitt verður fyrir rík­is­stjórn­ina að efna ekki það lof­orð, að mati Evu Heiðu Önnu­dóttur, stjórn­mála­fræð­ings við Háskóla Íslands.

„Þeir eru búnir að segja svo oft að það verði kosn­ingar í haust. Við höfum engar for­sendur til að ætla að það hafi verið meint á nokkurn annan hátt,” segir hún. „Þetta er mál sem verður mjög erfitt að bakka út úr. En það er núna bara spurn­ing um nákvæm­lega hvenær, hvort þær verða í sept­em­ber, októ­ber eða jafn­vel nóv­em­ber.”

Bjarni vildi stytta um eitt löggjafarþing

Bjarni Bene­dikts­son sagði á blaða­manna­fundi á Alþingi í síð­ustu viku, þegar ný rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar var til­kynnt, að ákveðið hafi verið að virkja lýð­ræðið og koma til móts við stöð­una sem hefur mynd­ast. „Við hyggj­umst stefna að því að stytta kjör­tíma­bilið um eitt lög­gjaf­ar­þing og halda kosn­ingar í haust. Nákvæm dag­setn­ing veldur á fram­vindu þing­mála,” sagði Bjarni.

Samkvæmt stjórn­ar­skránni er sam­komu­dagur Alþingis „hinn fyrsta dag októ­ber­mán­aðar eða næsta virkan dag ef helgi­dagur er.” Sam­komu­degi reglu­legs Alþingis má hins vegar breyta með lögum og það var gert með lögum um þing­sköp, en sam­kvæmt þeim er sam­komu­dagur Alþingis annar þriðju­dagur í sept­em­ber. Ef kjör­íma­bilið verður stytt um eitt lög­gjaf­ar­þing, eins og Bjarni sagði, þýðir það að í síð­asta lagi ætti að rjúfa þing mánu­dag­inn 11. sept­em­ber 2016. Þá yrði að kjósa í síð­asta lagi 45 dögum síðar.

Sumarþing ekki ólíklegt

Eva Heiða segir að var­lega verði þó að fara í að túlka orð Bjarna svo bók­staf­lega. Hennar skiln­ingur sé sá að það sé hægt að rjúfa þing í raun hvenær sem er. Og þó að sagt hafi verið að kjör­tíma­bilið beri að stytta um eitt lög­gjaf­ar­þing, gæti það verið ögn teygj­an­legra en þessar nið­ur­negldu dag­setn­ingar.

Miðað við þann mála­fjölda sem á eftir að afgreiða á Alþingi má vel gera ráð fyrir að þing­inu verði fram­haldið inn í sum­arið - eða taki jafn­vel upp þráð­inn aftur í júlí eftir frí á meðan EM í fót­bolta og for­seta­kosn­ingar, með sögu­legum fjölda fram­bjóð­enda, ganga yfir. Svo kemur haustið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár