Átta af hverjum tíu kjósendum Miðflokksins finna fyrir litlum eða engum umhverfiskvíða

Yngra fólk hefur mun meiri áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum og mengun en það sem eldra er. Konur hafa meiri áhyggjur en karlar og háskóla­mennt­aðir meira en grunn­skóla­gengnir. En minnstar áhyggjur hafa kjós­endur Mið­flokks og Fram­sókn­ar­flokks.

Gunnar Bragi Sveinsson, varaformaður Miðflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður Mið­flokks­ins, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Kjós­endur Mið­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins skera sig úr þegar kemur að því að finna fyrir kvíða sem teng­ist nei­kvæðum umhverf­is­á­hrifum af manna­völdum, eins og mengun eða lofts­lags­breyt­ingum. Á meðan að um fimmt­ungur allra full­orð­inna finnur almennt fyrir slíkum kvíða finna ein­ungis sex pró­sent kjós­enda Mið­flokks og Fram­sókn­ar­flokks fyrir honum.

Á meðal kjós­enda Mið­flokks­ins segj­ast reyndar 81 pró­sent finna fyrir litlum kvíða gagn­vart áhrifum manna á lofts­lag og umhverfi en 18 pró­sent svör­uðu því til að þeir finndu hvorki fyrir miklum né litlum.

Innan Fram­sókn­ar­flokks­ins eru fleiri sem finna hvorki fyrir miklum né litlum umhverfisk­víða, eða 32 pró­sent, en 62 pró­sent segj­ast finna fyrir litlum þannig kvíða.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup þar sem spurt var um afstöðu fólks til umhverfisk­víða.

Kvíðin eykst með menntun og yngri kvíðnari en eldri

Flestir lands­menn segj­ast finna fyrir litlum umhverfisk­víða, eða um 56 pró­sent allra. Tæplega 23 pró­sent segj­ast ekki hafa sterka skoðun á því hversu mik­ill eða lít­ill kvíði þeirra vegna lofts­lags­breyt­inga og meng­unar af manna­völdum sé og um 20 pró­sent eru haldin frekar miklum, mjög miklum eða gíf­ur­lega miklum umhverfisk­víða.

Yngra fólk er mun lík­lega til að finna fyrir slíkum kvíða en það sem eldra er, enda verður það að búa við afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga verði þær í takti við það sem meg­in­þorri vís­inda­manna í heim­inum spáir. Alls eru 99 pró­sent vís­inda­manna sem birta fræði­greinar um málið sam­mála því að hlýnun loft­lags sé af manna­völdum.

Af þeim lands­mönnum sem eru undir þrí­tugu en yfir 18 ára eru 35 pró­sent haldnir miklum umhverfisk­víða. Til sam­an­burðar er kvíð­inn minnstur hjá lands­mönnum á sex­tugs­aldri, þar sem ein­ungis tíu pró­sent eru kvíðnir vegna áhrifa meng­unar og lofts­lags­breyt­inga. Kvíðin er meiri hjá konum en körlum og hann eykst veru­lega sam­hliða auk­inni menntun. Þannig eru 28 pró­sent þeirra sem eru með háskóla­próf haldnir slíkum kvíða en ein­ungis 14 pró­sent þeirra sem eru með grunn­skóla­menntun sem æðsta mennt­un­ar­stig.

Píratar mest kvíðnir

Mjög mik­ill munur er á afstöðu til máls­ins eftir því hvaða stjórn­mála­flokk við­kom­andi hefur gagn­vart lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum og mengun. Kjós­endur Pírata eru haldnir mestum umhverfisk­víða (39 pró­sent) en kjós­endur Vinstri grænna (36 pró­sent) og Sam­fylk­ingar (33 pró­sent) fylgja fast á eftir.

Kjós­endur Mið­flokks og Fram­sókn­ar­flokks eru, líkt og áður sagði, með minnstan slíkan kvíða og skáka þar Sjálf­stæð­is­flokknum, þar sem 18 pró­sent kjós­enda er með mik­inn umhverfisk­víða en 67 pró­sent lít­inn eða engan. Flestir kjós­endur Mið­flokks­ins, alls 81 pró­sent, eru hins vegar með lít­inn eða engan kvíða gagn­vart breyt­ing­unum.

Formaður Mið­flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, hefur ítrekað á und­an­förnum árum gagn­rýnt það sem hann kallar heimsenda­spá­menn í loft­lags­málum og kallað eftir því að tekið verði á vand­anum af „skyn­semi“. Eftir að hafa verið gagn­rýndur fyrir ræðu sína í umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra í sept­em­ber, þar sem hann hélt því fram að verið væri að nálg­ast loft­lags­málin á kol­rangan hátt, birti hann stöðu­upp­færslu á Facebook. Í henni sagði Sig­mundur Davíð meðal ann­ars að þegar lofts­lags­breyt­ingum væri kennt um „allar ófarir manna og ítrekað spáð yfir­vof­andi heimsendi er ekki lík­legt að gripið verði til réttra aðgerða til að takast á við vand­ann í raun.“

Kjós­endur Við­reisnar eru líka ólík­legri en flestir að láta mála­flokk­inn valda sér kvíða, en 27 pró­sent þeirra eru með mik­inn umhverfisk­víða en 58 pró­sent með lít­inn eða engan.

Könnun Gallup var net­könnun sem gerð var dag­ana 22. - 30. jan­úar 2020. Þátt­töku­hlut­fall var 54,4 pró­sent, úrtaks­stærð 1.567 ein­stak­lingar 18 ára eða eldri af öllu land­inu valdir af handa­hófi úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár