Formenn innan BÍ standa með búvörusamningum

Formenn stærstu aðild­ar­fé­laga innan Bænda­sam­taka Íslands segj­ast allir standa með búvöru­samn­ing­unum. Þeir setja spurn­inga­merki við aðferðir stjórn­sýsl­unnar og velta upp hvort ráð­herrar hafi verið umboðs­lausir við und­ir­ritun.

Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ, Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda, og Gunnar Þorgeirsson, formaður Sambands garðyrkjubænda, eru allir á einu máli um að samningar skulu standa.
Sindri Sig­ur­geirs­son, for­maður BÍ, Þórarinn Ingi Pét­urs­son, for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda, Arnar Árnason, for­maður Lands­sam­bands kúa­bænda, og Gunnar Þor­geirs­son, for­maður Sambands garð­yrkju­bænda, eru allir á einu máli um að samn­ingar skulu standa.

Formenn nokk­urra stærstu aðild­ar­fé­laga Bænda­sam­taka Íslands (BÍ); Lands­sam­bands kúa­bænda, sauð­fjár­bænda, garð­yrkju­bænda og kart­öflu­bænda, taka allir heils­hugar undir orð for­manns BÍ vegna harð­orðar umsagnar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um búvöru­samn­ing­ana. Allir und­ir­strika að samn­ing­arnir séu und­ir­rit­aðir og ekki komi til greina að end­ur­skoða veiga­mikil atriði án þess að fara aftur í samn­inga­ferli. Þeir lýsa yfir áhyggjum af stjórn­sýsl­unni og velta upp spurn­ingu um hvort fjár­mála­ráð­herra og land­bún­að­ar­ráð­herra hafi verið umboðs­lausir þegar þeir skrif­uðu undir.

Andskoti hart ef samninganefnd hefur verið umboðslaus

Arnar Árnason, for­maður Lands­sam­bands kúa­bænda, segir und­ir­skrif­aða samn­inga liggja fyrir og nú bíði það bara Alþingis að sam­þykkja fjár­veit­ingar til þeirra, eða hafna þeim.

„Það er ekki hægt að breyta þeim núna. Þeir hafa verið sam­þykktir á öllum víg­stöðvum, nema á Alþingi,“ segir hann. „Við erum með plagg, und­ir­ritað af samn­inga­nefnd rík­is­ins, og það er and­skoti hart ef maður upp­lifir að hún hafi verið umboðs­laus þegar hún skrif­aði undir. Það er skrýtin stjórn­sýsla.“

[adspot]

Arnar segir að ef það komi í ljós að eitt­hvað hafi verið ólög­legt í samn­ing­unum þurfi að leiða það til lykta fyrir dóm­stólum. „Það þarf að klára þetta eða byrja upp á nýtt. 75 pró­sent kúa­bænda sam­þykktu samn­ing­ana og ef ferlið fer af stað aftur er ýmsi­legt í upp­námi.“

Samningar skulu standa

Þórarinn Ingi Pét­urs­son, for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda, tekur í sama streng.

„Það var setið við sam­inga­borðið í langan tíma. Samn­ing­arnir eru und­ir­rit­aðir af Sigurði Inga Jóhanns­syni, þáver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra, og Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra og í mínum huga er það þannig að samn­ingar skulu standa,“ segir Þórarinn. Hann bætir við að samn­ing­arnir séu tengdir búvöru­lögum, sem Alþingi þurfi að taka ákvörðun um á end­anum, og bendir á að gagn­rýni Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins snú­ist fyrst og fremst að mjólkur­iðn­að­inum.

Vill ekki að búvörusamningarnir verði kosningamál

Gunnar Þor­geirs­son, for­maður Sambands garð­yrkju­bænda, hefur miklar áhyggjur af því að samn­ing­arnir verði ekki stað­festir.

„Ég tek undir með Sindra. Þegar samn­ingur hefur farið í atkvæða­greiðslu og hann sam­þykktur - velti ég fyrir mér hvort ríkið ætli svo að breyta samn­ingnum ein­hliða. Ég hef áhyggjur af þessu,“ segir hann. „Menn lögðu af stað fyrir ári síðan og nið­ur­staðan var sú að leggja þennan samn­ing í atkvæða­greiðslu og undir hann rita ráð­herrar. Ég spyr mig í hvaða umboði voru þeir að skrifa, þegar atvinnu­vega­nefnd seg­ist ætla að koll­varpa samn­ingnum.“

Gunnar segir stöð­una óþægi­lega. „Þetta er ekki góð stjórn­sýsla. Og ef það verður gert að kosn­inga­máli í haust hvernig reka eigi land­búnað á Íslandi, það lýst mér illa á.“

Gagnrýnir Samkeppniseftirlitið

Bergvin Jóhanns­son, for­maður Lands­sam­bands kart­öflu­bænda, segir ljóst að ef það eigi að umturna samn­ing­unum, þurfi að byrja ferlið upp á nýtt. Hann gagn­rýnir vinnu­að­ferðir Sam­keppn­is­eft­ir­l­is­ins.

„Þarf ekki að breyta vinnu­reglum þar innan dyra? Það virð­ist ekki allt vera í lagi þar,“ segir Bergvin. Hann und­ir­strikar að hann sé sáttur við samn­ing­inn sem lúti að garð­yrkju. „Það er verið að opna þetta meira og meira og gera þetta öllum aðgengi­legt. Í nær öllum land­bún­aði. Það er mjög jákvætt.“

Félag atvinnurekenda segir samningana slæma

Búvöru­samn­ing­arnir voru ekki afgreiddir á Alþingi fyrir sum­ar­frí. Formaður Bænda­sam­tak­anna sagði í kjöl­farið að það setti samn­ing­ana í óvissu. Það kom sann­ar­lega á dag­inn. Í síð­ustu viku sendi Sam­keppn­is­eft­ir­litið harð­orða umsögn til atvinnu­vega­nefndar Alþingis þar sem sagði að samn­ing­arnir þarfn­ist gagn­gerrar end­ur­skoð­unar til að tryggja almanna­hags­muni áður en Alþingi sam­þykkir þá. Samn­ingar við mjólkur­iðn­að­inn voru gagn­rýndir hvað mest.

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, sagði við Stöð 2 í gær að búvöru­samn­ing­arnir væru slæmir og að Alþingi ætti ekki að sam­þykkja þá.

Sindri Sig­ur­geirs­son, for­maður Bænda­sam­tak­anna, sagði það ekki koma til greina að end­ur­skoða stór atriði í samn­ing­unum, enda væru þeir und­ir­rit­aðir og sam­þykktir af bændum og rík­inu. Ef til þess kæmi, yrði að hefja sam­inga­ferlið upp á nýtt. Þó verði að end­ur­skoða atriði ef þau eru metin svo að þau stang­ist á við lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár