WHO viðurkennir hættu á smiti í lofti

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin hefur brugð­ist við opnu bréfi yfir 200 vís­inda­manna sem kalla eftir end­ur­skoðun leið­bein­inga WHO um að nýja kór­ónu­veiran geti borist í lofti og smit­ast manna á milli.

Ef veiran getur borist í lofti þarf mögulega að hvetja til þess að nota andlitsgrímur á mannmörgum stöðum og í lokuðum rýmum.
Ef veiran getur borist í lofti þarf mögu­lega að hvetja til þess að nota and­lits­grímur á mann­mörgum stöðum og í lok­uðum rýmum. Mynd: EPA

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) við­ur­kennir að rann­sóknir séu farnar að benda til þess að nýja kór­ónu­veiran, SARS-CoV-2, geti borist í örsmáum ögnum í lofti. Ekki sé hægt að úti­loka að veiran smit­ist manna á milli með þessum hætti á mann­mörgum, lok­uðum eða illa loft­ræstum stöðum. Ef frek­ari stað­fest­ing fæst á fyr­ir­liggj­andi rann­sóknum er mögu­legt að leið­bein­ingum WHO um smit­leiðir inn­an­dyra verði breytt.

Þetta sagði Bene­detta Allegranzi, sér­fræð­ingur tækni­mála hjá WHO, á blaða­manna­fundi stofn­un­ar­innar í gær. Benti hún á að stöðugt væri verið að kom­ast að fleiru varð­andi nýju veiruna. „Ég tel að við þurfum að vera opin fyrir þessum vís­bend­ingum og opin fyrir því hvernig smit gætu borist með þessum hætti og grípa til fyr­ir­byggj­andi aðgerða í kjöl­farið.“

[adspot]

239 vís­inda­menn skrif­uðu grein í vís­inda­tíma­ritið Clinical Infectious Diseases í fyrra­dag þar sem sagði að „mark­tækur mögu­leiki“ væri á því að anda að sér veiru í örsmáum ögnum sem geta borist úr stuttri vega­lengd en líka um nokkra metra. Vildu vís­inda­menn­irnir að WHO myndi bregð­ast við með því að ráð­leggja ný for­varn­ar­við­mið í ljósi þessa.

[links]WHO hefur hingað til sagt að veiran ber­ist helst manna á milli með dropum, t.d. þegar fólk sýkt af veirunni hnerrar eða hóstar. Vís­bend­ingar um að hún geti borist í lofti hafa komið fram í margar vikur og vildu vís­inda­menn­irnir að WHO tæki þær til alvar­legrar skoð­unar. „Við vildum að þeir tækju mark á sönn­un­ar­gögn­unum,“ sagði Jose Jimenez, efna­fræð­ingur við háskól­ann í Colorado og einn úr hópi vís­inda­mann­anna sem birti grein­ina.

„Þetta er alls ekki árás á WHO. Þetta er vís­inda­leg rök­ræða en okkur fannst við þurfa að gera þetta opin­bert því [WHO] neit­aði að hlusta á rökin þrátt fyrir margar sam­ræður,“ heldur Jimenez áfram í við­tali við Reuters-frétta­stof­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár