Phillip Green ætti að skrifa ávísun upp á rúma 90 milljarða króna

Sir Phillip Green ætti að skrifa ávísun upp á að minnsta kosti 571 milljón pund, 91,5 millj­arð króna, og afhenda starfs­mönnum bresku versl­un­ar­keðj­unnar BHS, eða British Home Store, sem horfa fram á að þá upp­hæð vanti til að hægt verði að standa við áunnar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar þeirra. Þetta sagði þing­mað­ur­inn Frank Field, sem stýrði rann­sókn breskrar þing­nefndar á greiðslu­stöðvun BHS, þegar umfangs­mikil skýrsla hennar um fall BHS var kynnt í dag. BBC greinir frá.

Nið­ur­staða skýrsl­unnar er sú að Green hafi tekið háar fjár­hæðir út úr BHS og að það hafi skilið rekstur keðj­unnar eftir í önd­un­ar­vél. Aðfarir Green og ann­arra félaga hans sem högn­uð­ust á keðj­unni eru sagðar hafa leitt til falls hennar og málið allt sýnir, að mati þing­manna­nefnd­ar­innar, „óásætt­an­legt and­lit kapital­ism­ans.“

Field sagði að einn maður, og aðeins einn maður, væri þó á end­anum ábyrgur fyrir þeirri hörm­ung sem BHS málið væri. Sá maður, sem ætti að sæta refs­ingu sem næði langt út fyrir það að svipta hann ein­ungis ridd­ara­tign sinn, væri Sir Phillip Green.

Seld ódýrum pappír á eitt pund

BHS fór í greiðslu­stöðvun í apríl og í júní var tekin sú ákvörðun að vinda ofan af rekstri þess með því að loka versl­un­um, í ljósi þess að fyr­ir­hug­aðar björg­un­ar­að­gerðir tók­ust ekki. Nið­ur­staðan var mikið áfall fyrir ell­efu þús­und starfs­menn keðj­unn­ar, en hún rak alls 164 versl­anir víðs vegar um Bret­land.

Skuldir BHS námu 1,3 millj­örðum punda þegar fyr­ir­tækið fór í greiðslu­stöðv­un. Tæpur helm­ingur þeirrar upp­hæð­ar, 571 milljón pund, var vegna líf­eyr­is­skuld­bind­inga starfs­manna BHS. Nær úti­lokað er talið að sala eigna muni ná að standa undir nema brota­broti af end­ur­greiðslu skulda og líf­eyr­is­skuld­bind­inga. Við blasa því miklar afskriftir kröfu­hafa og skertar líf­eyr­is­greiðslur til núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna BHS.

Dominic Chappell er fyrrum kappakst­ursöku­maður sem hefur farið þrisvar í gjald­þrot. Hann fékk að kaupa BHS á eitt pund. Ári síðar var fyr­ir­tækið farið í þrot.

Það sem vakti einna mesta athygli varð­andi greiðslu­stöðvun BHS var að rúmu ári áður en hún skall á hafði fyr­ir­tækið verið selt til fyrrum kappakst­ursöku­manns­ins Dom­inic Chapp­ell á eitt pund. Gold­man Sachs fjár­fest­inga­bank­inn var milli­liður í kaup­unum fyrir hönd selj­and­ans, Philip Green. Hann hafði keypt BHS árið 2000 og afskráð það af mark­aði. Ein ástæða þess að salan vakti mikla athygi var sú að Dom­inic Chapp­ell þótti ekki merki­legur pappír í fjár­fest­ing­ar­heim­inum og þar af leið­andi ekki lík­legur til að snúa við slöku gengi BHS. Hann hafði orðið gjald­þrota þrisvar og hafði aldrei komið að neins konar rekstri sem hafði gengið vel. Því voru grun­semdir uppi um að eitt­hvað annað hafi ráðið því að BHS hafi verið selt á þessum tíma, í mars 2015.

Á síð­ustu vikum hefur sá grunur fyrst og síð­ast snú­ist um að Green hafi verið að reyna að koma sér undan því að greiða líf­eyr­is­skuld­bind­ingar um 20 þús­und núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna BHS. Þessar grun­semdir fengu vængi þegar punktar af fundi Green með Chris Mart­in, for­manni stjórnar sjóðs­ins sem hélt utan um líf­eyr­is­skuld­bind­ingar starfs­manna BHS, snemma árs 2015. Í punkt­unum kemur fram að helsta ástæða þess að Green vildi losna væri sú að áætlun um að laga stöðu líf­eyr­is­mála starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins væri of dýr. Green hafði þá eytt mörgum mán­uðum í að reyna að semja um hvernig hann gæti mögu­lega mætt þeim halla sem skap­ast hafði vegna van­fjár­magn­aðra líf­eyr­is­skuld­bind­inga.

Sýndi hroka og yfirlæti

Green var kall­aður fyrir þing­nefnd breska þings­ins vegna máls­ins fyrir nokkrum vikum síðan þar sem þing­menn spurðu hann erf­iðra spurn­inga. Sam­kvæmt frá­sögn breskra fjöl­miðla af nefnd­ar­fund­inum sýndi Green ítrekað af sér hroka og yfir­læti í til­svörum sín­um. Hann greip ítrekað frammí fyrir þing­nefnd­ar­mönnum og sýndi óánægju sína með spurn­ingar þeirra á köflum mjög skýrt.

Á meðal þess sem Green hefur verið gagn­rýndur fyr­ir, utan þess að hafa selt manni sem virð­ist ekki hafa haft neina burði né bol­magn til að reka risa­stóra versl­un­ar­keðju, er að hann tók um 400 millj­ónir punda í arð út úr BHS á þeim tíma sem hann átti fyr­ir­tæk­ið. Green hefur á móti sagt að hann hafi sett enn hærri upp­hæð inn í fyr­ir­tækið í formi nýs hluta­fjár og lána frá Arcadia Group, smá­sölurisa sem rekur meðal ann­ars versl­anir undir merkjum Dorothy Perk­ins, Miss Sel­fridge, Evans, Burton, Wallis og Topm­an. Arcadia Group er í eigu félags sem skráð er á skatta­skjóls­eyj­unni Jers­ey. Eig­andi þess er skráð Tina Green, eig­in­kona Philip Green. Hjónin búa þó ekki á Jersey, heldur í Móna­kó, þar sem þau þurfa ekki að greiða neina skatta.

Hefði getað orðið stór á Íslandi

Þessi sami Philip Green hefði getað orðið fyr­ir­ferða­mik­ill maður í íslensku þjóð­lífi. Hann reyndi fyrir tæpum átta árum að kaupa allar skuldir Baugs Group og tengdra aðila, stærsta smá­sölu­veldis Íslands á þeim tíma, á brota­brot af virði þeirra. Sú áætlun hans tókst ekki.

Það var í gegnum yfir­tök­una á Arcadia Group sem Philip Green skaut fyrst upp koll­inum í íslenskri umræðu. Árið 2002, þegar Green keypti Arcadia Group á 850 milljón pund, þá átti Baugur Group, fjár­fest­inga­fé­lag Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og fjöl­skyldu, 20 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu og hafði ætlað sér að ná fullum yfir­ráðum yfir því. Á end­anum tókst Baugi Group ekki að fjár­magna yfir­tök­una og Green keypti þess í stað nær allt hlutafé í Arcadia. Stjórn­endur Baugs Group sögðu það þó ekki hafa verið ástæð­una.

Jón Ásgeir Jóhann­es­son og félag hans Baugur Group reyndu að kaupa Arcadia árið 2002. Sex árum síðar reyndi Philip Green að kaupa skuldir Baugs Group.

Sama dag og þeir lögðu fram til­boð sitt í Arcadia hafi rík­is­lög­reglu­stjóri gert hús­leit í höf­uð­stöðvum Baugs á Íslandi í aðgerð sem mark­aði upp­haf Baugs­máls­ins svo­kall­aða. Jón Ásgeir hélt því ítrekað fram að hús­leitin hefði spillt kaup­unum og tveimur dögum eftir hana lýsti stjórn Arcadia því yfir að hún tæki ekki til íhug­unar neinn samn­ing sem gengi út á að selja til Baugs Group. Í við­tali við Morg­un­blaðið sagði Jón Ásgeir um Green og Arcadi­a-við­skipt­in: „Green veit hver lét hann fá lyk­il­inn að Arcadia og hann mun meta það. Við komum með hug­mynd­ina inn á borð til hans og allar upp­lýs­ingar á sínum tíma."

Mætti eftir hrunið og hót­aði að beita for­seta Íslands

Helg­ina eftir setn­ingu neyð­ar­lag­anna í októ­ber 2008 lenti einka­flug­vél á Reykja­vík­ur­flug­velli. Um borð var áður­nefndur Philip Green. Hann var kom­inn til lands­ins í einum til­gangi: Að kaupa skuldir Baugs Group á mjög lágu verði.

Í bók­inni Ísland ehf. - auð­menn og áhrif eftir hrun sem kom út 2013, er greint frá því að með þann vilja fyrir augum mætti Green á Kirkju­sand í höf­uð­stöðvar Glitn­is, sem þá hafði verið tek­inn yfir af skila­nefnd. Með honum í för voru Jón Ásgeir og eig­in­kona hans og við­skipta­fé­lagi, Ingi­björg Stef­anía Pálma­dótt­ir. Jón Ásgeir og fjöl­skylda hans voru á þessum tíma aðal­eig­endur Baugs.

Green tókst að fá fund með umsjón­ar­mönnum þrota­bús­ins. Ingi­björg fór með honum inn á fund­inn en Jón Ásgeir, sem hafði þar til skömmu áður verið stærsti eig­andi Glitn­is, bæði beint og óbeint, beið frammi á með­an. Það var ekki talið styrkja stöðu Green að hafa Jón Ásgeir með, enda hafði hann verið útmál­aður í opin­berri fjöl­miðla­um­ræðu sem einn þeirra sem settu Ísland á haus­inn.

Á fund­inum lagði Green fram til­boð um að kaupa allar skuldir Baugs og tengdra aðila við bank­ann á um fimm pró­sent af virði þeirra. Þegar til­boðið fékk litlar und­ir­tektir lét hann öllum illum látum og hót­aði að allir sem væru inni í her­berg­inu yrðu rekn­ir. Hann gæti látið það ger­ast. Hann hót­aði einnig að tala við for­seta Íslands, Ólaf Ragnar Gríms­son, ef til­boðið yrði ekki skoðað bet­ur. Hvað for­set­inn átti að gera kom ekki fram.

Green var á mik­illi hrað­ferð, enda beið einka­þotan eftir honum á vell­in­um. Hann átt enn eftir að hitta aðra banka í sömu erinda­gjörð­um, auk þess sem hann átti bók­aðan fund með Björg­vini G. Sig­urðs­syni, þáver­andi við­skipta­ráð­herra. Þess vegna gilti til­boð hans ein­ungis í nokkrar mín­út­ur.

Fund­ar­höld­in, ferðin og öll lætin voru þó til einskis. Green flaug af landi brott tóm­hentur og án þess að for­set­inn hlut­að­ist til um mál­ið. Bank­arnir voru ekki til við­ræðu um að selja skuld­irnar frá sér. Sá hluti þeirra sem Green hafði mestan áhuga á voru þær skuldir sem Baugur og tengdir aðilar höfðu stofnað til við að kaupa erlend fyr­ir­tæki, mest megnis versl­ana­keðjur í Bret­landi. Fyrir utan þær hafði Baugs-­sam­steypan einnig skuld­sett sig mikið vegna inn­lendra fjár­fest­inga.

Þess í stað fór Baugur Group í gjald­þrot á árinu 2009. Gert er ráð fyrir að sjö millj­arðar króna fáist upp í alls 240 millj­arða króna kröfur á það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár