Ekki vitað hversu margir Ísraelar koma til Íslands árlega, en þeir eru ekki stór hluti af heildinni

Ekki er vitað hversu margir Ísraelar koma til Íslands sem ferða­menn á hverju ári. Þeir eru ekki á meðal þeirra 17 þjóð­erna sem talin eru þegar far­þegar fara í gegnum vopna­leit á Flugstöð Leifs Eiríks­sonar. Ísrael falla því í flokk­inn „aðrir“, þar sem um 14 pró­sent allra ferða­manna lenda.

Hins vegar er hægt að sjá hversu margar gistinætur Ísraelar kaupa á Íslandi. Á árinu 2014 keyptu erlendir ferða­menn 4.404.937 gistinætur hér­lendis og af þeim keyptu Ísraelar 27.821 eða 0,6 pró­sent allra gistin­átta, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Ferða­mála­stofu Íslands.

Alls var fjöldi ferða­manna á Íslandi í fyrra rétt undir einni milljón og í ár verður hann um 1,3 millj­ónir.

Sam­skipti Íslands og Ísrael hafa verið mikið í sviðs­ljós­inu hér­lendis eftir að Reykja­vík­ur­borg sam­þykkti snið­göngu á ísra­elskum vörum fyrr í þessum mán­uði. Borg­ar­stjórn dró síðan til­lög­una til baka í lið­inni viku og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sagt að hún hafi ekki verið nægi­lega vel und­ir­búin. Fréttir hafa verið sagðar af því að Ísraelar hafi verið hvattir til að ferð­ast ekki til Íslands vegna snið­göngu­á­ætl­anna höf­uð­borg­ar­innar og að ferða­þjón­ustu­að­ilum hafi borist afbók­anir.

Sjöundi hver ferðamaður lendir í flokknum "aðrir"


Þegar ferða­menn fara í gegnum vega­bréfa­eft­ir­litið í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar eru þeir taldir. Sú taln­ing er gerð að und­ir­lagi Ferða­mála­stofu sem heldur utan um opin­berar upp­lýs­ingar um fjölda erlendra og íslenskra flug­far­þegar sem fara um flug­völl­inn.

Sem stendur er hægt að flokka erlendu far­þeg­anna (þeir sem milli­lenda eru ekki taldir með) eftir 17 mis­mundi þjóð­ernum. Sjöundi hver útlend­ingur sem kemur til lands­ins er ekki hluti af þeim þjóðum sem flokk­unin býður upp á og lendir því í flokknum „Aðrir“. Þar á meðal eru ferða­menn frá Ísrael. Á árinu 2014 flugu 969 þús­und erlendir ferða­menn um flug­völl­inn í Keflavík og þar af lentu 142 þús­und í þessum óskil­greinda þjóð­ern­is­hóp.

[caption id="attachment_39890" align="alignnone" width="1000"] Sem stendur er hægt að flokka erlendu far­þeg­anna (þeir sem milli­lenda eru ekki taldir með) eftir 17 mis­mundi þjóð­ernum. Sjöundi hver útlend­ingur sem kemur til lands­ins er ekki hluti af þeim þjóðum sem flokk­unin býður upp á og lendir því í flokknum „Aðrir“. MYND: ISAVIA[/caption]

Sem stendur er hægt að flokka erlendu farþeganna (þeir sem millilenda eru ekki taldir með) eftir 17 mismundi þjóðernum. Sjöundi hver útlendingur sem kemur til landsins er ekki hluti af þeim þjóðum sem flokkunin býður upp á og lendir því í flokknum „Aðrir“. MYND: ISAVIA
Sem stendur er hægt að flokka erlendu far­þeg­anna (þeir sem milli­lenda eru ekki taldir með) eftir 17 mis­mundi þjóð­ernum. Sjöundi hver útlend­ingur sem kemur til lands­ins er ekki hluti af þeim þjóðum sem flokk­unin býður upp á og lendir því í flokknum „Aðrir“. MYND: ISAVIA

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Ferða­mála­stofu hafa við­ræður staðið yfir í langan tíma við Isavia, sem ann­ast taln­ing­arnar, um að fá að fjölga þjóð­ernum sem talin eru. Um það hefur hins vegar ekki samist.

Það er líka vand­kvæðum bundið að fjölga þeim þjóð­ernum sem talin eru mikið því aukin taln­ing mun tefja örygg­is­leit á flug­vell­inum enn frekar, en sam­hliða auknum ferða­manna­straumi til Íslands hefur flug­völl­ur­inn oft verið yfir­fullur af fólki á álags­tímum og er að margra mati sprung­inn. Frá árinu 2008 hefur far­þegum í milli­landa­flugi, að með­töldum þeim sem bara milli­lenda, enda fjölgað um tæp 100 pró­sent, farið úr tveimur millj­ónum í 3,9 millj­ónir. Það er því lík­ast til ekki for­gangs­at­riði hjá Isavia, sem þarf að tvö­falda inn­viði flug­vall­ar­ins í Keflavík á næstu 25 árum til að takast á við vænta fjölgun ferða­manna, að hægja á örygg­is­leit­inni hjá sér með auk­inni taln­ingu.

Ísraelar gista 0,6 prósenta af gistinóttum á Íslandi


Ferða­mála­stofa hefur horft til þess að bæta fimm til sex þjóð­ernum við taln­ing­una, náist samn­ingar við Isavia um það. Afar ólík­legt er að Ísrael yrði þar á meðal, enda telst landið alls ekki til lyk­il­mark­aðar í íslenskri ferða­þjón­ustu. Hvorki er flogið beint þaðan til Íslands né eru ísra­elskir ferða­menn, miðað við fjölda gístin­átta sem þeir kaupa á Íslandi, nægj­an­lega stór hluti af þeim hópi sem sækir Ísland heim til að rétt­læta slíka taln­ingu á sér.

Líkt og áður sagði gista Ísraelar 0,6 pró­sent af öllum gistin­óttum sem keyptar eru á Íslandi. Það þarf þó ekki endi­lega að end­ur­spegla fjölda þeirra ferða­manna sem koma til Íslands frá land­inu. Samkvæmt ferða­venjukönnun Ferða­mála­stofu, sem gerð var sum­arið 2014, var með­al­dval­ar­lengd útlend­inga hér­lendis í heild tíu nætur.

Þeir sem flokk­ast undir „önnur þjóð­erni“ í þeirri könnun, þar með talið Ísraelar, dvelja hins vegar lengur á Íslandi að með­al­tali en flestir ferða­menn. Því má vel vera að hlut­fall Ísraela í fjölda gistin­átta sé hærra en hlut­fall þeirra í fjölda ferða­manna.

Vert er að taka fram að snið­göngu­til­laga Reykja­vík­ur­borgar hafði ekki bara nei­kvæð áhrif í Ísrael. Gyðingar víða ann­ars­staðar í heim­inum, til dæmis í Banda­ríkj­unum, hafa gagn­rýnt hana harka­lega. Það sem af er árinu 2015 þá hafa flestir ferða­menn sem heim­sækja Ísland flogið hingað frá Banda­ríkj­unum, eða fimmti hver ferða­maður. Um 20 þús­und fleiri ferða­menn komu þaðan á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2015 en allt árið í fyrra, en það sem af er ári er fjöldi gesta frá Banda­ríkj­unum 171 þús­und tals­ins. Til að setja þessa miklu aukn­ingu í sam­hengi má nefna að allt árið 2008 komu 40 þús­und ferða­menn frá Banda­ríkj­unum til Íslands. Í júlí á þessu ári komu rúm­lega 37 þús­und ferða­menn þaðan. Fjöldi flug­fé­laga sem fljúga til og frá land­inu til Íslands hefur vit­an­lega auk­ist mikið á þessu tíma­bili.

Eru stór verkefni í hættu?


Þá hafa verið sagðar af því fréttir að vörur sem íslenskir fram­leið­endur selji erlendis hafi verið teknar úr versl­unum vegna til­lög­unar um snið­göngu á vörum frá Ísrael og að sam­þykkt til­lög­unar geti haft afdrifa­ríkar við­skipta­legar afleið­ingar. Erf­ið­lega hefur hins vegar gengið að fá skýr svör við því hvert umfang þess skaða sem á að hafa orðið sé.

DV hélt því fram á for­síðu í vik­unni að aðilar sem ætla að byggja hótel við Hörpu hefðu hótað að hætta við áformin vegna snið­göngu­á­ætl­anna Reykja­vík­ur­borgar. For­svars­menn verk­efn­is­ins sendu hins vegar frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þeir sögðu það alrangt. Þá hefur Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagt að hann viti um stór verk­efni sem gætu verið í hættu vegna þessa. Hann hefur hins vegar ekki upp­lýst um hvaða verk­efni það eru.

[caption id="attachment_39891" align="alignnone" width="1000"] Íslend­ingar eiga ekki í miklum beinum við­skiptum við Ísraela. Hér sést ein þekkt­asti pg helgasti staður lands­ins, Grát­múr­inn. MYND: EPA[/caption]

Lítil bein viðskipti við Ísrael


Þegar umfang utan­rík­is­við­skipta Íslands við Ísrael er skoðað á vef Hagstofu Íslands kemur hins vegar í ljós að þau við­skipti eru mjög lítil. Á fyrri hluta árs­ins 2015 fluttu Íslend­ingar út vörur fyrir 385,2 millj­arða króna. Virði þeirra vara sem fluttar voru til Ísrael voru 39,8 millj­ónir króna, eða 0,01 pró­sent af heild­ar­út­flutn­ingi Íslands á tíma­bil­inu.

Íslendingar eiga ekki í miklum beinum viðskiptum við Ísraela. Hér sést ein þekktasti pg helgasti staður landsins, Grátmúrinn. MYND: EPA
Íslend­ingar eiga ekki í miklum beinum við­skiptum við Ísraela. Hér sést ein þekkt­asti pg helgasti staður lands­ins, Grát­múr­inn. MYND: EPA

Við flytjum heldur meira inn frá Ísrael en við flytjum út, eða fyrir alls 540 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Heild­ar­inn­flutn­ingur Ísland á vörum á tíma­bil­inu var 391,5 millj­arðar króna. Því var heild­ar­um­fang inn­fluttra vara frá Ísrael um 0,1 pró­sent af öllum inn­flutn­ingi Íslend­inga.

Íslend­ingar eiga ekki bara í við­skiptum með vörur, heldur líka þjón­ustu. Á fyrstu sex mán­uðum þessa árs fluttum við út þjón­ustu fyrir 249,5 millj­arða króna og inn slíka fyrir 175 millj­arða króna.

Allt árið í fyrra nam útflutn­ingur á þjón­ustu, lík­ast til mest á ferða­þjón­ustu, til Ísrael 1.241 millj­ónum króna. Um er að ræða 0,2 pró­sent af þjón­ustu­út­flutn­ingi Íslend­inga á árinu. Innflutt þjón­usta þaðan var 108,4 millj­ónir króna. 0,02 pró­sent af inn­fluttri þjón­ustu á árinu 2014.

Aftur ber að taka fram að áhrif ákvörð­unar borg­ar­innar um snið­göngu á vörum frá Ísrael getur haft áhrif á verslun víðar en í land­inu sjálfu, þar sem stór gyð­inga­sam­fé­lög er að finna víða um heim, t.d. í Banda­ríkj­unum. Íslend­ingar flytja reyndar ekki út mikið af vörum til Banda­ríkj­anna. Það sem af er ári hefur fimm pró­sent útflutn­ings okkar farið þangað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár