Segja engin áform um að hætta við byggingu hótels við Hörpu

Fjár­festar sem koma að bygg­ingu Marriot-hót­els á reitnum við hlið Hörpu hafa engin áform um að hætta við bygg­ing­una vegna sam­þykktar Reykja­vík­ur­borgar um snið­göngu á ísra­elskum vörum.

Í DV í dag kemur fram að fjár­fest­arnir hafi hótað að hætta við hót­elið og til­laga Reykja­vík­ur­borgar ógni því sautján millj­arða fjár­fest­ingu á reitnum.

Richard L. Friedman, for­stjóri Carpenter & Co. og for­svars­maður fjár­fest­anna, sem leiðir hót­el­verk­efnið, segir í yfir­lýs­ingu sem hann sendi DV í gær og öðrum fjöl­miðlum nú í morgun að hann hafi heyrt af ákvörðun meiri­hluta borg­ar­stjórnar um við­skipta­bann gegn Ísrael. Fyr­ir­tækið skipti sér hins vegar ekki af stjórn­málum á Íslandi. Verk­efnið og hann sjálfur hafi mætt mjög góðu við­móti á Íslandi, bæði af íbúum og borg­ar­yf­ir­völdum. „Áform okkar eru óbreytt,“ segir hann í yfir­lýs­ing­unni.

„Við erum áfram mjög spennt fyrir fyr­ir­hug­aðri hót­el­upp­bygg­ingu og þeim áhrifum sem hún mun hafa á íslenska ferða­þjón­ustu, efna­hag lands­ins og ásýnd borg­ar­innar. Við látum öðrum eftir póli­tísk úrlausn­ar­efni, hvort heldur er á Íslandi eða á alþjóð­legum vett­vangi. Sjálfur hef ég fulla trú á umburð­ar­lyndi Íslend­inga og virð­ingu þeirra fyrir öllu fólki,“ segir hann.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er rétt að einn ein­stak­lingur, sem teng­ist verk­efn­inu, hafi haft miklar skoð­anir á sam­þykkt Reykja­vík­ur­borgar. Sam­þykktin verður dregin til baka á auka­fundi borg­ar­stjórnar í dag. Skoðanir þessa ein­stak­lings hafi hins vegar engin áhrif á verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár