Íslenska bankakerfið er ekki að færast í hendur erlendra vogunarsjóða

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um að íslenska banka­kerfið sé „enn og aftur að fær­ast í hendur erlendra vog­un­ar­sjóða“.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins í forystusætinu á RÚV í gærkvöldi.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins í for­ystu­sæt­inu á RÚV í gær­kvöldi. Mynd: Skjáskot/RÚV

Eitt helsta kosn­inga­lof­orð Mið­flokks­ins fyrir kom­andi þing­kosn­ingar felur í sér að gefa þjóð­inni um þriðj­ungs­hlut í Íslands­banka, en íslenska ríkið á sem stendur 65 pró­sent hlut í bank­anum. Miðað við mark­aðsvirði Íslands­banka um þessar mundir er virði þess hlutar um 81,4 millj­arðar króna. Þessum hlut á að dreifa með jöfnum hætti til allra íslenskra rík­is­borg­ara.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var spurður út í þetta kosn­inga­lof­orð í þætt­inum For­ystu­sætið á RÚV í gær­kvöldi.

Sig­mundur sagði þar að það sem hafi gerst eftir að hinir svoköll­uðu stöð­ug­leika­samn­ing­arnir tóku gildi, þegar hann var enn for­sæt­is­ráð­herra, „er að banka­kerfið, fjár­mála­kerfið, er enn og aftur að fær­ast í hendur erlendra vog­un­ar­sjóða, sem eru að taka ríf­legan arð út úr fjár­mála­kerf­inu núna. Og við segjum: nú þurfum við að grípa inn í.“

Stöð­ug­leika­samn­ing­arnir voru gerðir árið 2015 og 2016 og fólu í sér að kröfu­hafar föllnu bank­anna gáfu eftir þorra inn­lendra eigna sinna, meðal ann­ars allan eign­ar­hlut í Íslands­banka, gegn því að fá ráð­stöf­un­ar­rétt yfir þorra erlendra eigna þrota­bú­anna. Áður átti íslenska ríkið 98 pró­sent hlut í Lands­bank­anum á móti starfs­mönnum þess banka og 13 pró­sent hlut í Arion banka á móti aðal­lega erlendum vog­un­ar­sjóðum. Stöð­ug­leika­samn­ing­arnir breyttu þeim eign­ar­hlutum ekk­ert en íslenska rík­inu var tryggður for­kaups­réttur að hlutum í Arion banka ef þeir hlutir yrðu seldir undir fyr­ir­fram ákveðnu verði.

Þegar kröfu­hafar seldu Arion banka árið 2018, og bank­inn í kjöl­farið skráður á markað, þá virkj­að­ist ekki sá for­kaups­réttur. Uppi­staðan í eign­ar­haldi Arion banka eftir skrán­ingu voru erlendir vog­un­ar­sjóðir, að mestu þeir sömu og myndað höfðu bak­beinið í kröfu­hafa­hópi fyr­i­renn­ar­ans Kaup­þings. Í árs­lok 2019 áttu erlendir eig­endur tæp­lega 55 pró­sent hlut í bank­anum.

Hafa selt sig hratt niður í íslenska bankakerfinu

Í sept­em­ber í fyrra var staðan sú að erlendir sjóðir áttu sam­tals 42,24 pró­sent hlut í Arion banka og höfðu haft tögl og hagldir í bank­anum árin á undan. Stærstu eig­end­urnir voru vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital Advisors og Sculptor Capital Mana­gement. Í lok síð­asta árs og í byrjun árs 2021 hófu þessir sjóðir hins vegar að selja sig hratt niður í Arion banka. Á örfáum vikum fór eign­ar­hlutur Taconic í Arion banka úr 23,22 pró­sentum í ekk­ert. Sculptor seldi sömu­leiðis allan 6,12 pró­sent hlut sinn snemma á þessu ári.

Fleiri vog­un­­ar­­sjóð­ir, sem komu inn í eig­enda­hóp Arion banka eftir að hafa til­­heyrt kröf­u­hafa­hópi Kaup­þings, hafa líka verið að selja sig niður.

Í dag er eini erlendi aðil­inn sem er skráður á meðal 24 stærstu eig­enda Arion banka sjóður í stýr­ingu þýsks banka sem á alls 1,19 pró­sent hlut í Arion banka.

[adspot]Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru nú langstærstu eig­endur bank­ans. Þrír stærstu sjóðir lands­ins, LSR, Líf­eyr­is­sjóðir verzlunarmanna og Gildi, eiga sam­tals 27,2 pró­sent hlut og þegar sam­an­lagður hlutur líf­eyr­is­sjóða á meðal stærstu eig­enda bank­ans er talin þá eiga þeir 45,9 pró­sent hlut. Aðrir stórir eig­endur eru sjóðir í stýr­ingu íslenskra sjóðs­stýr­inga­fyr­ir­tækja þar sem íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru á meðal hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa. Því er íslenskur almenn­ingur, í gegnum líf­eyr­is­sjóði, langstærsti eig­andi Arion banka.

Á fyrri hluta árs­ins 2021 greiddi Arion banki 2,9 millj­arða króna í arð til þeirra og keypti eigin bréf þeirra til baka fyrir alls 14,9 millj­arða króna til þess­ara eig­enda. Áætlanir bank­ans ganga út á að greiða hlut­höfum sínum yfir 50 millj­arða króna í arð­greiðslur og end­ur­kaup á eigin bréfum á næstu árum. Þær greiðslur fara að óbreyttu ekki til erlendra vog­un­ar­sjóða.

Íslenska ríkið seldi 35 pró­sent hlut í Íslands­banka fyrr á þessu ári. 20 fjár­festar keyptu rétt rúm­lega helm­ing þess hlutar, alls 18 pró­sent í bank­anum. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Gildi og vog­un­ar­sjóð­irnir Capital World Investors og RWC Asset Mana­gement höfðu þegar við upp­haf útboðs­ins skuld­bundið sig til að kaupa um það bil tíu pró­sent af öllu útgefnu hlutafé Íslands­banka í hluta­fjár­út­boði bank­ans og verða svo­kall­aðir horn­steins­fjár­festar.

Samkvæmt nýjasta hlut­haf­alista Íslands­banka er rík­is­sjóður Íslands eig­andi að 65 pró­sent hlut og áður­nefndir tveir erlendir vog­un­ar­sjóðir eiga sam­tals 5,3 pró­sent hlut. Þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eiga sam­tals um níu pró­sent hlut. Því á almenn­ingur, í gegnum líf­eyr­is­sjóði og rík­is­sjóð, að minnsta kosti 74 pró­sent hlut í Íslands­banka.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Það er nið­ur­staða Stað­reynda­vaktar Kjarnans að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hafi farið með fleipur í For­ystu­sæt­inu á RÚV þegar hann sagði að íslenska banka­kerfið væri „enn og aftur að fær­ast í hendur erlendra vog­un­ar­sjóða, sem eru að taka ríf­legan arð út úr fjár­mála­kerf­inu núna.“

Þvert á móti hafa erlendir vog­un­ar­sjóðir verið að selja sig hratt út úr kerf­inu, þeir sem hafa komið nýir inn eiga litla hluti og arð­ur­inn af kerf­inu rennur að stærstum hluta til rík­is­sjóðs, líf­eyr­is­sjóða og íslenskra einka­fjár­festa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár