Aðeins tvö ný smit á einum sólarhring

Mun færri sýni voru tekin í gær en dag­ana á undan. Flest smit hafa komið upp meðal fólks á aldr­inum 18-29 ára. Hundrað ung­lingar á aldr­inum 13-17 ára hafa sýkst.

Staðfest smit af kór­ónu­veirunni eru orðin 1773 hér á landi. Í gær voru þau 1.771 og hefur þeim því fjölgað um tvö síð­asta sól­ar­hring­inn. Mun færri sýni voru tekin í gær en sex dgana þar á undan. 92 smit hafa nú greinst á Vest­fjörðum.

Í dag eru 1.109 í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 1.220. Alls hafa 18.129 lokið sótt­kví.

Í dag eru 402 ein­stak­lingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöld­inn 434.

1.362 hafa náð bata.

Alls hafa 42.762 sýni verið tekið hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Í gær voru 96 sýni rann­sökuð á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans og reynd­ist eitt þeirra jákvætt. Hjá Íslenskri erfða­grein­ingu voru tekin 285 sýni og eitt var jákvætt.

Á sjúkra­húsi liggja 28 sjúk­lingar vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af fjórir á gjör­gæslu, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.

Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru tíu látin. Í gær lést kona sem bjó á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík. Hún var á níræð­is­aldri. Þetta er annað and­látið á Bergi sem teng­ist far­aldr­inum.

Samkvæmt því sem fram kemur á COVID.is hafa flest smit greinst í ald­urs­hópnum 18-29 ára eða 364 tals­ins. Þá hafa 100 ein­stak­lingar á aldr­inum 13-17 ára greinst með veiruna.

Fyrsta smitið af kór­ónu­veirunni greind­ist á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans í lok febr­úar. Greindum smitum tók að fjölga smám saman í kjöl­farið en fjöld­inn tók svo stökk 16. mars er 46 greindust. Flest smit greindust 23. mars eða 106.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár