Tæp tíu prósent útistandandi sjóðfélagalána LIVE í greiðsluhléi

Sjóð­fé­laga­lán í greiðslu­hléi nema sam­tals ell­efu millj­örðum króna. Til sam­an­burðar námu útistand­andi sjóð­fé­laga­lán Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna við lok árs 2019 rúmum 120 millj­örðum. Ávöxtun sjóðs­ins á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins er áætluð 3,5 pró­sent.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur aðsetur í Húsi verslunarinnar
Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefur aðsetur í Húsi versl­un­ar­innar Mynd: Úr safni.

Alls 440 sjóð­fé­laga­lán sem sam­tals nema ell­efu millj­örðum króna eru í greiðslu­hléi hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þetta kom fram í kynn­ingu Guð­mundar Þór­halls­sonar fram­kvæmda­stjóra Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna á árs­fundi sjóðs­ins í gær. Þetta er þó ein­ungis brot af útistand­andi sjóð­fé­laga­lánum. Samkvæmt árs­reikn­ingi fyrir árið 2019 námu útistand­andi lán til sjóð­fé­laga alls rúmum 120 millj­örðum króna við lok árs­ins.

Í kynn­ingu Guð­mundar kom einnig fram að 370 umsóknir að fjár­hæð 330 millj­ónir króna hafa borist sjóðnum vegna tíma­bund­innar heim­ildar til úttektar á sér­eigna­sparn­aði.

Í frétta­til­kynn­ingu sem send var í kjöl­far fund­ar­ins kemur fram að ávöxtun eigna­safns Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins er áætl­aður 3,5 pró­sent. Hrein eign til greiðslu líf­eyris hækk­aði á tíma­bil­inu úr 868 millj­örðum króna í 904 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Upp­haf­lega átti aðal­fundur sjóðs­ins að vera hald­inn í mars en hann frestað­ist sökum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Heims­far­aldur kór­ónu­veiru hefur óneit­an­lega haft áhrif á rekstur sjóðs­ins, sam­kvæmt til­kynn­ingu. „Afkoma sjóðs­ins það sem af er ári markast óhjá­kvæmi­lega af Covid-19 heims­far­aldr­inum sem hefur haft mikil áhrif á efna­hag gjör­vallrar heims­byggð­ar­innar. Ísland og íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru þar engin und­an­tekn­ing.“

Þar segir enn fremur að sterk trygg­ing­ar­fræði­leg staða sjóðs­ins geri „sjóðnum kleift að standa styrkur í því efna­hags­lega óvissu­á­standi sem nú ríkir í heim­inum.“ Trygg­inga­fræði­leg staða sjóðs­ins var 8,6 pró­sent um síð­ustu ára­mót. Trygg­inga­fræði­leg staða tekur til­lit til heild­ar­stöðu sjóðs­ins umfram skuld­bind­ingar hans.

Þá séu eignir sjóðs­ins í góðri áhættu­dreif­ingu. 40 pró­sent heild­ar­eigna í árs­lok hafi verið í erlendum verð­bréfum en 16 pró­sent í inn­lendum hluta­bréfum. Hlutfall rík­is­skulda­bréfa af heild­ar­eignum nam 19 pró­sentum og um 14 pró­sent af heild­ar­eignum sjóðs­ins voru bundin í sjóð­fé­laga­lánum.

Á árs­fund­inum í gær var farið yfir árs­skýrslu síð­asta árs sem birt var í febr­úar. Síðasta ár var metár í sögu Líf­eyr­is­sjóðs­ins en eignir hans hækk­uðu um 155 millj­arða á árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár