Eignir Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hækkuðu um 155 milljarða á síðasta ári

Árið 2019 var metár í 63 ára sögu Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna.

Eignir Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna hækk­uðu alls um 155 millj­arða króna á árinu 2019, þar af voru fjár­fest­inga­tekjur 136,2 millj­arðar, og námu eign­irnar sam­tals 868 millj­örðum sam­an­borið við 713 millj­arða árið áður.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sjóðnum.

Árið 2019 var metár í 63 ára sögu Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. „Vöxtur og vel­gengni ein­kenndu alla þætti í starfi sjóðs­ins. Líf­eyr­is­þegar fengu greiddan meiri líf­eyri en nokkru sinni fyrr, eignir juk­ust meira en dæmi eru um áður enda fjár­fest­inga­tekjur meiri en nokkru sinni fyrr og ávöxtun eigna hefur aðeins einu sinni áður orðið meiri, árið 2005. Vegna þessa góða árang­urs og afkomu und­an­far­inna ára er sjóð­ur­inn vel í stakk búinn til að takast á við þá áskorun sem fylgir hækk­andi lífaldri þjóð­ar­innar.“

Þá kemur fram að eigna­safn sjóðs­ins hafi verið vel áhættu­dreift. Erlend verð­bréf hafi verið um 40 pró­sent heild­ar­eigna í lok árs­ins sam­an­borið við 35 pró­sent í árs­lok 2018.

Um 16 pró­sent eign­anna eru í inn­lendum hluta­bréfum, 19 pró­sent í rík­is­skulda­bréfum. Sjóð­fé­laga­lán námu 120,7 millj­örðum, eða um 14 pró­sent af heild­ar­eignum sam­an­borið við 92,3 millj­arða og rúm 13 pró­sent af eignum árið áður.

Enn fremur segir í til­kynn­ingu sjóðs­ins að á árinu 2019 hafi að með­al­tali 19 þús­und sjóð­fé­lagar fengið líf­eyr­is­greiðslur úr sam­trygg­ing­ar­deild sjóðs­ins sam­an­borið við tæp 18 þús­und árið áður. Líf­eyr­is­greiðslur úr sam­trygg­ing­ar­deild sjóðs­ins hafi verið að fjár­hæð 16.039 millj­ónir króna. Árið áður hafi líf­eyr­is­greiðslur úr sam­trygg­inga­deild numið 14.315 millj­ónum og því hækkað um 12 pró­sent. Líf­eyr­is­greiðslur úr sér­eign­ar­deild hafi numið 684 millj­ónum króna.

„Trygg­inga­fræði­leg staða er mæli­kvarði á getu sjóðs­ins til að standa undir líf­eyr­is­skuld­bind­ingum sínum. Und­an­farin ár hefur trygg­inga­fræði­leg staða sjóðs­ins verið sterk og styrkt­ist enn á liðnu ári, var jákvæð um 8,6 pró­sent í lok árs­ins sam­an­borið við 5,4 pró­sent árið áður,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Samkvæmt sjóðnum var raun­á­vöxtun hans á árinu 2019 ein­hver hin besta í sögu sjóðs­ins, eða 15,6 pró­sent. Aðeins einu sinni áður hafi náðst betri ávöxtun, en það var árið 2005.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár