Mikil eftirspurn eftir lánum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna - Breytingar á íbúðalánamarkaði

Líf­eyr­is­sjóð­irnir gætu tekið við mun vega­meira hlut­verki á íbúða­lána­mark­aði ef fram heldur sem horfir, en frá því að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna til­kynnti um breyt­ingu á íbúða­lána­hlut­verki sínu, 2. októ­ber, hefur sím­inn varla stoppað á skrif­stof­unni, og eft­ir­spurn eftir lánum hjá sjóðnum marg­fald­ast, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá starfs­manni sjóðs­ins. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans, hefur það verið rætt á vett­vangi líf­eyr­is­sjóð­anna, meðal ann­ars í stjórnum þeirra, að íbúða­lána­hlut­verki kunni að fær­ast meira til sjóð­anna í fram­tíð­inni, og mögu­leg góð lausn á vanda Íbúða­lána­sjóðs, að líf­eyr­is­sjóð­irnir tækju við eigna­safni sjóðs­ins, að minnsta að kosti að hluta. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru enda stærstu kröfu­hafar sjóðs­ins, sem eig­endur íbúða­bréfa, og eiga á bil­inu 62 til 80 pró­sent bréfa. Restin skipt­ist á milli fag­fjár­festa, trygg­ing­ar­fé­laga og fjár­fest­inga­sjóða ekki síst.

Stjórn­völd hafa ekki tekið ákvörðun um hvernig staðið verði að því að end­ur­skipu­leggja Íbúða­lána­sjóð, þrátt fyrir ítrek­aðar ábend­ingar um nauð­syn þess, bæði frá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum og Seðla­banka Íslands. Heild­ar­út­lán Íbúða­lána­sjóðs nema í dag tæp­lega 700 millj­örðum króna, miðað við stöðu mála eins og hún var um mitt þetta ár, og var eig­in­fjár­hlut­fallið 4,8 pró­sent. Sjóð­ur­inn er með litla hlut­deild á mark­aði, en bank­arnir hafa verið með um 90 pró­sent hlut­deild í nýjum lánum á und­an­förnum árum. Þar til nú.

Mun betri kjör


Eins og rakið var í ítar­legri frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans 9. októ­ber, komu ný við­mið og vaxta­kjör Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna á íbúða­lána­mark­aði eins og þruma úr heið­skíru lofti inn á mark­að­inn. Sjóð­ur­inn býður nú mun betri kjör en Arion banki, Íslands­banki, Lands­bank­inn, Íbúða­lána­sjóður og aðrir líf­eyr­is­sjóðir einnig, bæði á verð­tryggðum og óverð­tryggðum lánum. Hámarks veð­hlut­fall er 75 pró­sent.

Munar þar, miðað við vaxta­töfl­una eins og hún lítur út í dag, að með­al­tali um fjórð­ungi eða 25 pró­sent. Fastir vextir á verð­tryggðum lánum eru nú 3,6 pró­sent, breyti­legir verð­tryggðir vextir 3,35 pró­sent, eftir hækkun um 0,15 pró­sentu­stig í dag, og fastir vextir til þriggja ára 6,97 pró­sent.

Til sam­an­burðar eru vextir Lands­bank­ans, sem hefur haft mesta hlut­deild á íbúða­lána­mark­aði að und­an­förnu, mun hærri. Fastir vextir á verð­tryggðum lánum eru 3,85 pró­sent, breyti­legir vextir 3,65 pró­sent og fastir óverð­tryggðir vextir til þriggja ára 7,3 pró­sent.


Bankarnir hafa ekki brugðist við


Bönkunum er nokkur vandi á höndum, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans, þar sem þeir telja sig ekki geta boðið sömu kjör og líf­eyr­is­sjóðir. Þar munar ekki síst um banka­skatt og einnig við­mið og kröfur sem Fjár­mála­eft­ir­litið setur rekstri banka. Eig­in­fjár­kröfur eft­ir­lit­is­ins hafa verið háar, í alþjóð­legum sam­ban­burði, eða í kringum 19 pró­sent, og þá er banka­skatt­ur­inn ígildi tæp­lega 0,4 pró­sentu­stiga álags í útlánum. Í ljósi þess að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn eru að eðli með allt aðra starf­semi en bankar, þar sem ekki er verið að byggja upp eigið fé líkt og í fyr­ir­tækjum, þá geti þeir boðið mun betri kjör á íbúða­lánum, ekki síst við núver­andi aðstæður. Líf­eyr­is­sjóðir þurft að fjár­festa fyrir tólf til þrettán millj­arða á mán­uði, og því gæti aukin hlut­deild á íbúða­lána­mark­aði verið kær­komin leið fyrir þá til þess að koma fjár­magni í „hag­stæða vinnu“ eins og einn við­mæl­enda komst að orði.

Húsnæðisstefnan óljós


Eins og var til umfjöll­unar í frétta­skýr­ingu Kjarnans í gær, þá liggur ekki ljóst fyrir hvenær hús­næð­is­stefna stjórn­valda, sem Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur sagt að sé í bígerð, verður ljós. Mörgum spurn­ingum er enn ósvarað, þó nú þegar liggi fyrir í fjár­lögum fyrir næsta ár, að ríkið ætli sér að byggja upp 2.300 íbúðir til að mæta mik­illi eft­ir­spurn eftir hús­næði. Íbúð­irnar eiga að vera til­búnar árið 2019 en sé mið tekið af árlegri bygg­ing­ar­þörf lít­illa og með­al­stórra íbúða, þá er hún um 1.700 til 2000 íbúðir. Þessi íbúða­bygg­ing rík­is­ins mun því duga skammt, þegar kemur að því að breyta um stefnu á hús­næð­is­mark­aði.

bankar_island
bankar_island

Hvernig sem verður, er ljóst að breyt­ingar á stefnu­mörkun í hús­næð­is­málum geta haft mikil áhrif á íbúða­lána­markað.

Eygló hefur sagt að það sé for­gangs­mál að styrkja stöðu leigj­enda og ná niður bygg­inga­kostn­aði, svo mögu­legt sé að byggja með ódýr­ari hætti, en ekk­ert liggur fyrir enn, fasti í hendi, um hvernig útfærslan verður. Ójafn­vægi virð­ist vera á íbúða­mark­aði í augn­blik­inu, en íbúða­fjá­fest­ing dróst saman um 13,3 pró­sent á fyrri helm­ingi árs­ins, þrátt fyrir vax­andi eft­ir­spurn í hag­kerf­inu, ekki síst eftir íbúðum. Hár bygg­ing­ar­kostn­aður virð­ist vera að koma í veg fyrir nýbygg­ingar.

Laga­frum­vörp hafa ekki verið afgreidd á Alþingi, og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, er ágrein­ingur uppi um hvert skuli stefnt í þessum málum milli Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Boðað hefur verið, að hús­næð­is­stefna stjórn­valda verði eitt af for­gangs­málum rík­is­stjórn­ar­innar á þessum þing­vetri, en ekki liggur fyrir, með útfærðri áætlun, hvernig hún á að vera

[caption id="attachment_8962" align="alignnone" width="5184"] Eygló í pontu.[/caption]

Eygló í pontu.
Eygló í pontu.

.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár