Íbúðalánasjóður tapaði 808 milljónum - Betra en áætlanir gerðu ráð fyrir

Afkoma Íbúða­lána­sjóðs var nei­kvæð um 808 millj­ónir króna á fyrri helm­ingi árs­ins, sam­an­borið við 1.308 millj­óna tap árið á undan. Þrátt fyrir tapið, var nið­ur­staðan betri en áætl­anir gerðu ráð fyrir, að því er segir í til­kynn­ingu frá Íbúða­lána­sjóði.

Árs­hluta­reikn­ingur Íbúða­lána­sjóðs fyrir fyrri hluta árs­ins 2015 var stað­festur af stjórn sjóðs­ins í dag. Sam­stæðu­reikn­ingur Íbúða­lána­sjóðs hefur að geyma reikn­inga Íbúða­lána­sjóðs og dótt­ur­fé­lags hans, Leigu­fé­lags­ins Kletts ehf.

Eig­in­fjár­hlut­fall sjóðs­ins hefur hækkað í 4,8 pró­sent en var 4,5 pró­sent í upp­hafi árs, að því er segir í til­kynn­ingu. Hlut­fallið er reiknað með sama hætti og eig­in­fjár­hlut­fall fjár­mála­fyr­ir­tækja. Lang­tíma­mark­mið sjóðs­ins er að hlut­fallið sé yfir fimm pró­sent. Eigið fé Íbúða­lána­sjóðs í lok tíma­bils­ins er 17.279 millj­ónir króna en var 18.087 millj­ónir króna í árs­lok 2014.

Enn fremur segir að vaxta­tekjur hafi numið sam­tals rúm­lega þrjá­tíu millj­örðum krónum sam­an­borið við vaxta­tekjur upp á 27,5 millj­arða á sama tíma í fyrra. Rekstr­ar­kostn­aður var 958 millj­ónir króna og lækk­aði um fimmtán pró­sent eða 170 millj­ónir króna sam­an­borið við sama tíma­bil árið 2014. Stöðu­gildum fækk­aði um níu pró­sent á fyrri hluta árs­ins 2015 og voru 100 sam­an­borið við 109 á sama tíma­bili árið 2014.

Önnur atriði úr til­kynn­ingu, vegna afkomu Íbúða­lána­sjóðs á fyrri helm­ingi árs­ins, má sjá hér að neðan.

Virð­is­rýrnun útlána nam 19.590 millj­ónum króna í lok júní 2015 og lækk­aði um 1.538 millj­ónir króna frá ára­mótum. Lækkun virð­is­rýrn­unar teng­ist umtals­verðri minnkun van­skila heim­ila og sterk­ari trygg­inga­stöðu lána­safns­ins vegna hækk­ana á fast­eigna­mark­aði. Í lok tíma­bils­ins voru 95,7% heim­ila sem eru í við­skiptum við Íbúða­lána­sjóð með lán sín í skilum.

Útlán


Þann 30. júní 2015 voru útlán sjóðs­ins 691 millj­arður króna og höfðu útlán lækkað um 36 millj­arða króna frá ára­mótum. Þar af eru um 28 millj­arðar vegna úrræða stjórn­valda. Lántaka sjóðs­ins nam 801 millj­arði króna og lækk­aði um 5,5 millj­arða á tíma­bil­inu. Heild­ar­eignir sjóðs­ins námu 818 millj­örðum króna.

Vanskil heim­ila hafa minnkað veru­lega á milli tíma­bila. Um 4,3% heim­ila voru með þrjá eða fleiri gjald­daga í van­skilum þann 30. júní 2015 sam­an­borið við 5,5% heim­ila í lok árs 2014.

Tryggingarstaða lánasafns


Um 94% af bók­færðu virði lána­safns Íbúða­lána­sjóðs liggur á veð­bili innan við 90% af fast­eigna­mati und­ir­liggj­andi veð­and­lags um mitt ár 2015. Fast­eigna­verð hefur hækkað umfram verð­lag á tíma­bil­inu og van­skil minnkað umtals­vert og því hefur trygg­ing­ar­staða lána­safns­ins styrkst. Yfir­gnæf­andi hluti lána sjóðs­ins er á fyrsta veð­rétti auk þess sem fast­eigna­mat er að öllu jöfnu var­kár verð­mats­að­ferð fyrir mark­aðsvirði eignar.

Úrræði til handa lántakendum


Á tíma­bil­inu afgreiddi sjóð­ur­inn höf­uð­stólslækkun fast­eigna­lána til handa 24.727 heim­ilum alls að kröfu­virði 34.178 millj­ónir króna. Útlán sjóðs­ins dróg­ust umtals­vert saman og laust fé jókst sam­svar­andi. Stjórn­völd hyggj­ast ljúka greiðslu kaup­verðs leið­rétt­ing­ar­hluta lána­safns­ins í jan­úar 2016 skv. samn­ingi þar um.

Um 10.612 heim­ili hafa nýtt sér þann mögu­leika að greiða lán sín hjá sjóðnum hraðar upp með ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar inn á fast­eigna­lán sín. Umfram­greiðslur vegna ráð­stöf­unar sér­eign­ar­sparn­aðar við­skipta­vina hafa numið 2.887 millj­ónum króna fram til 30. júní 2015.

Fullnustueignir


Á tíma­bil­inu seldi sjóð­ur­inn 548 íbúðir og leysti til sín 181 íbúð til fulln­ustu. Þann 30. júní voru 1.524 fulln­ustu­eignir í eigu sjóðs­ins og hafði þeim fækkað um 367 eignir frá ára­mótum. Um 46% eigna til sölu eru í útleigu. Bókfært virði fulln­ustu­eigna sjóðs­ins tekur mið af kostn­aðar-verði eða áætl­uðu gang­virði hvoru sem lægra reyn­ist. Bókfært virði eigna móð­ur­fé­lags­ins þann 30. júní er 22 millj­arðar króna, á sama tíma og fast­eigna­mat sömu eigna er 26,6 millj­arðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár