Bretar lána 95 prósent til íbúðarkaupenda - Hvað verður gert hér?

Íslensk stjórn­völd hafa ekki ennþá mótað nýja hús­næð­is­stefnu en Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur sagt að upp­bygg­ing rík­is­ins á 2.300 íbúðum fram til árs­ins 2019 sé hluti af henni, sem og aukn­ing bóta til leigj­enda og almenn styrk­ing leigu­mark­aðar. Frumvörp sem lögð voru fram á síð­asta þing­vetri, um breyt­ingar á húsa­leigu­lögum, hús­næð­is­bætur og um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög, hafa ekki verið afgreidd í þing­inu, og það sama á við um hug­myndir um stofn­fram­lög.

Engin ný hús­næð­is­stefna liggur því fyrir af hálfu stjórn­valda, eða hefur verið sam­þykkt af rík­is­stjórn. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lagði mikla áherslu á þessi mál fyrir kosn­ing­arnar 2013, sam­hliða því að leið­rétta verð­tryggðar skuldir heim­ila og afnema verð­trygg­ingu, og hefur Eygló Harð­ar­dóttir sagt, að ný hús­næð­is­stefna muni líta dags­ins ljós. Verð­trygg­ing lána er vin­sælasta lána­fyr­ir­komu­lagið um þessar mundir, og virð­ist fólk velja það umfram óverð­tryggð lán, einkum og sér í lagi þar sem greiðslu­byrði er létt­ari á þeim lánum.

[caption id="attachment_38727" align="alignnone" width="1236"] Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur ekki gengið vel að koma til­lögum að úrbótum á hús­næð­is­mark­aði í gegnum rík­is­stjórn­ina sem hún situr í.[/caption]

Bretar einblína á húsnæðismarkaðinn


Líkt og hér á landi, þá kom upp mik­ill vandi á fast­eigna­mark­aði í Bret­landi í kjöl­far efna­hags­þreng­inga árin 2007 til 2009. Með­al­aldur fólks sem kaupir sína fyrstu íbúð hefur hækkað nokkuð, og stjórn­völd hafa skynjað erf­ið­leika hjá fólki þegar kemur að fá lána­fyr­ir­greiðslu, vegna þess að banka­stofn­anir hafa hert á greiðslu­mati og eig­in­fjár­kröfum. Lán banka eru í Bret­landi víð­ast hvar að hámarki um 75 pró­sent, en hér á landi eru hámarks­lánin til fast­eigna kaupa 85 pró­sent. Í und­an­tekn­inga­til­vikum fer hlut­fallið í 90 pró­sent.

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ekki gengið vel að koma tillögum að úrbótum á húsnæðismarkaði í gegnum ríkisstjórnina sem hún situr í.
Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur ekki gengið vel að koma til­lögum að úrbótum á hús­næð­is­mark­aði í gegnum rík­is­stjórn­ina sem hún situr í.

Rík­is­stjórn Davids Cameron for­sæt­is­ráð­herra hefur ein­blínt á end­ur­mótun hús­næð­is­mála­stefn­unnar, með það að mark­miði að auð­velda fólki að eign­ast hús­næði, með opin­berri fyr­ir­greiðslu og hjálp (Help to Buy Equity Loan). Grund­vall­ar­at­riði þeirrar stefnu er um 20 pró­sent lán frá rík­inu, á nið­ur­greiddum vöxtum, sem kemur á móti 75 pró­sent láni frá banka. Fólk sem er að kaupa hús­næði þarf því að koma fram með eigin fé sem nemur um fimm pró­sent af kaup­verði, þegar það er ganga frá fyrstu íbúðar kaupum. Lán rík­is­ins, upp á 20 pró­sent af kaup­verði, er í boði fyrir alla þá sem eru að kaupa sér eignir upp á 600 þús­und pund, eða sem nemur um 117 millj­ónum króna. Þessi leið er hluti af hús­næð­is­stefnu sem sniðin var að þörfum fast­eigna­mark­að­ar­ins, meðal ann­ars vegna þess hve erfitt það reynd­ist að selja nýjar íbúðir, þar sem kaup­endur útfylltu ekki skil­yrði fyrir lán­veit­ingu. Í fyrstu voru lán rík­is­ins sér­stak­lega ætluð þeim sem voru að kaupa nýjar íbúðir en nú hefur verk­efnið verið útfært þannig, að þeir sem eru að kaupa fyrstu eign geta einnig fengið þessi lán.

Leiga og ódýrar íbúðir á Íslandi


Hér á landi virð­ast hug­myndir eins og þær, sem rík­is­stjórn Camerons hefur hrint í fram­kvæmd, ekki vera upp á borðum. Eins og mál standa nú er ekki hægt að segja til um hvernig ný hús­næð­is­stefna stjórn­valda verður, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans hefur verið tölu­verður ágrein­ingur um það hvaða leiðir skuli farnar milli Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Boðuð hefur verið end­ur­skoðun á starf­semi Íbúða­lána­sjóðs, sem í dag hefur litla mark­aðs­hlut­deild við veit­ingu nýrra lána, en kjörin verri en hjá bönk­unum og vöru­fram­boðið minna. Einungis eru í boði verð­tryggð lán en bank­arnir hafa boðið verð­tryggð, óverð­tryggð og blönduð lán í meira en fimm ár núna, eða frá því eftir hrun. Óverð­tryggð hús­næð­is­lán eru að hámarki með fimm ára bindi­tíma á vöxtum.

Rekstur Íbúða­lána­sjóðs hefur auk þess verið erf­iður, meðal ann­ars vegna þess að sjóð­ur­inn hefur litlu hlut­verki að gegna við útlán. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur ítrekað bent á nauð­syn þess að end­ur­skipu­leggja hlut­verk sjóðs­ins, og það sama á við um Seðla­banka Íslands. Stjórn­völd hafa enn fremur sagt að nauð­syn­legt sé að taka hlut­verkið til end­ur­skoð­unar, en ekk­ert rót­tækt hefur þó verið gert enn í þeim efnum, eða nýjar línur lagðar um hvað gera skuli til fram­tíðar litið.


Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna steig í byrjun mán­að­ar­ins stórt skref þegar sjóð­ur­inn hækk­aði láns­hlut­fall í 75 pró­sent, og býður nú lægstu vexti sem í boði eru á hús­næð­is­lána­mark­aði á Íslandi, eins og taflan hér að ofan sýni. Bank­arnir hafa ekki ennþá brugð­ist við þessu útspili né heldur aðrir líf­eyr­is­sjóðir.

Vandi stjórnvalda


Hvernig sem verður, þegar líður að kosn­ingum vorið 2017, þá er ljóst að stjórn­völdum er nokkur vandi á höndum við að móta nýja hús­næð­is­stefnu. Tíminn vinnur ekki með þeim, enda virð­ist það vax­andi vanda­mál á mark­aði hversu erfitt er að koma þaki yfir höf­uðið og safna sparn­aði. Nýjar tölur stað­festa enn fremur að íbúða­fjár­fest­ing er í sögu­legu lág­marki, þrátt fyrir að hag­kerfið hafi verið sýna skýr merki um bata, eins og bent var á í Hagsjá Lands­bank­ans á dög­unum. Í fyrri helm­ingi þessa árs dróst íbúða­fjár­fest­ing saman um 13,3 pró­sent, þrátt fyrir að vax­andi eft­ir­spurn sé eftir hús­næði og þörf fyrir að auka fram­boð, einkum á litlum og með­al­stórum íbúðum.

Eygló hefur talað fyrir nauð­syn þess að auka sam­starf allra þeirra sem hags­muni hafa af því að byggja upp sjálf­bæran hús­næð­is­markað, meðal ann­ars með því að draga úr bygg­ing­ar­kostn­aði. Fundur hefur verið boð­aður um þessi mál á næst­unni, en ekki liggur fyrir hvenær hann verður. Fund­ar­efnið verður þó almenn staða á bygg­inga- og fast­eigna­mark­aði, og hvernig megi bæta umgjörð fólki til heilla, af því er fram komi í máli Eyglóar í við­tali við Við­skipta­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár