„Stóra planið”

Ef nýjar, og að sumra mati bylt­ing­ar­kenndar, hug­myndir um fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu á Eyr­ar­sundi milli Kaup­manna­hafnar og Malmö ná fram að ganga verða til á sund­inu þrjár stórar eyjar, með þéttri byggð. Brýr og göng tengja eyj­arnar við borg­irnar tvær beggja vegna sunds­ins.

Þegar hug­myndir um brú yfir Eyr­ar­sund, milli Kaup­manna­hafnar og Malmö, heyrð­ust fyrst nefndar fyrir rúmum þrjá­tíu árum voru fáir sem trúðu að slík brú yrði nokkurn tíma að veru­leika. Að vísu hafði dönsk verk­fræði­stofa hannað brúar- og ganga­teng­ingu árið 1936 en það verk­efni var af ráða­mönnum kallað „stílæf­ing” og þar við sat, um margra ára skeið.

Árið 1991 ákváðu dönsk og sænsk stjórn­völd að ráð­ast í það sem nefnt var Eyr­ar­sundsteng­ingin en hlaut síðar nafnið Eyr­ar­sunds­brúin. Bíla- og járn­brauta­brú. Nokkrum árum fyrr (1986) hafði danska þingið tekið ákvörðun um bygg­ingu brúar yfir Stóra­belti, milli Sjálands og Fjóns. Sú brú var tekin í notkun árið 1998 og gjör­breytti sam­göngum milli þess­ara tveggja eyja. Þar er inn­heimt brú­ar­gjald og miðað við nýj­ustu útreikn­inga verður brúin að fullu greidd árið 2029, hugs­an­lega fyrr.

Danir og Svíar ákváðu að sami háttur yrði hafður á varð­andi Eyr­ar­sunds­brúna, inn­heimt brú­ar­gjald. Til að leggja áherslu á að um sam­vinnu­verk­efni væri að ræða var fram­kvæmd­inni gefið nafnið Øresunds­bron, fyrsti staf­ur­inn danskur en bron end­ingin sænsk.

Brúin gjörbreytti samgöngunum

Eyr­ar­sunds­brúin var tekin í notkun 1. júlí 2000. Teng­ingin er tæp­lega 16 kíló­metra löng og er sam­bland brúar og ganga ásamt veg­teng­ingum við land beggja vegna sunds­ins. Við enda brú­ar­innar, Dan­merk­ur­megin, sunnan við eyj­una Salt­hólmann, var gerð eyja, kölluð Pip­ar­hólm­inn. Hún tengir saman brúna og göngin sem eru næst Kastrup flug­velli. Á landi liggur járn­brautin með­fram veg­inum en yfir sjálfa brúna undir brú­ar­dekk­inu. Ekki er ofmælt að til­koma brú­ar­innar hafi gjör­breytt sam­göngum yfir Eyr­ar­sund, umferðin er miklu meiri en ráð var fyrir gert. Árið 2015 fóru að jafn­aði 24 þús­und fólks­bílar um brúna á sól­ar­hring og um það bil 35 þús­und manns ferð­uð­ust þessa leið dag­lega með lestum. Þá eru ótaldir vöru­flutn­ingar, um 22 þús­und tonn dag­lega á árinu 2015 með járn­braut­ar­lestum og um 1100 flutn­inga­bílar fóru um brúna á hverjum sól­ar­hring.

Verkfræðingur skrifar grein

Árið 2007, sjö árum eftir að brúin var tekin í notkun skrif­aði danskur verk­fræð­ingur grein í dag­blaðið Berl­ingske. Hann birti þar útreikn­inga og spár sem sýndu að innan tutt­ugu ára myndi járn­braut­ar­hluti brú­ar­innar ekki anna þörf­inni og bíla­um­ferðin yrði líka orðin mjög mikil. Á sínum tíma brostu margir að þess­ari grein verk­fræð­ings­ins en ekki lengur. Járn­brautin nálg­ast nefni­lega óðum það sem á sér­fræð­inga­máli kall­ast „þol­mörk”. Áður­nefndur sér­fræð­ingur hvatti til þess í grein­inni í Berl­ingske að strax yrði haf­inn und­ir­bún­ingur nýrrar brúar yfir sundið. Þótt margir væru van­trú­aðir á útreikn­inga verk­fræð­ings­ins voru dönsk og sænsk sam­göngu­yf­ir­völd byrjuð að „hugsa málið”. Ýmsar hug­myndir um vega­sam­band milli Dan­merkur og Sví­þjóðar hafa á síð­ustu árum komið fram, meðal ann­ars sú að tengja saman, með brú og göngum, Hels­ingja­eyri og Hels­ingja­borg þar sem ferjur hafa haldið uppi sam­göngum í ára­tugi.

Greater Copenhagen

Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar hefur síðan hann tók við emb­ætt­inu í árs­byrjun 2010 ein­beitt sér að fram­tíð­ar­skipu­lagi og þróun borg­ar­innar. Og Eyr­ar­sunds­svæð­is­ins. Hann hefur lagt mikla áherslu á sam­starf við stjórn­völd á Skáni í Sví­þjóðog sagt að Kaup­mann­hafn­ar­svæðið, Malmö og Suður-Skánn væru í raun eitt atvinnu­svæði og í hinum harða heimi sé sam­vinna Dana og Svía eina leiðin til að þetta svæði geti þró­ast og dafnað. Á gömlu hafn­ar­svæð­unum í Kaup­manna­höfn, Norð­ur­höfn­inni og Suð­ur­höfn­inni og raunar víðar í borg­inni hafa hús með þús­undum íbúða hafa verið byggð á allra síð­ustu árum og veitir ekki af. Í hverjum mán­uði flytja um tólf hund­ruð manns til Kaup­manna­hafnar og sér­fræð­ingar spá því að ekki dragi úr þeim straumi á næstu árum. Bygg­inga­land borg­ar­innar er tak­markað og þess vegna hafa skipu­lags­yf­ir­völd og yfir­stjórn borg­ar­innar skoðað allar mögu­legar, og kannski ómögu­legar, leiðir til að mæta sívax­andi þörf fyrir hús­næði. Handan sunds­ins, í Malmö, er tölu­vert atvinnu­leysi, öfugt við Kaup­manna­höfn og sömu­leiðis mik­ill skortur á hús­næði. Borg­ar­yf­ir­völd, og sveit­ar­stjórn­ar­menn á Skáni, hafa þess vegna mik­inn áhuga á auk­inni sam­vinnu og nán­ari atvinnu­tengslum, eins og það er kallað, við Dani. Þótt Svíarnir taki undir hug­myndir Franks Jensen um eitt atvinnu­svæði hugn­ast þeim ekki hug­myndir hans um að nefna svæðið „Greater Copenhagen”. Svíarnir vilja tengja heitið Eyr­ar­sundi með ein­hverjum hætti. Frank Jensen segir að heim­ur­inn þekki Kaup­manna­höfn en hafi ekki minnstu hug­mynd um hvað og hvar þetta Eyr­ar­sund sé. „Greater Copenhagen er rétta heitið,” segir yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar.

Á síð­ustu tveim ára­tugum hafa nokkrum sinnum verið haldnar hug­mynda­sam­keppnir um fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu Eyr­ar­sunds­svæð­is­ins. Nið­ur­stöður úr þeirri nýj­ustu, IMAGINE open Skáne 2030, voru kynntar fyrir viku og þar vakti til­laga SWECA arki­tekta­stof­unnar mikla athygli.

Stóra planið

Tillaga SWECO, sem fékk fyrstu verð­laun í sam­keppn­inni, er rót­tæk­ari en allt sem áður hefur hefur verið nefnt í þessum efnum. Svo rót­tæk að full­yrt er að dóm­nefnd­ar­menn hafi vart trúað sínum eigin augum þegar þeir sáu hug­myndir arki­tekt­anna. „Bylt­ing­ar­kennd” sagði einn dóm­nefnd­ar­manna.

Í stuttu máli ganga hug­myndir SWECO útá að á Eyr­ar­sundi, á móts við Amager, verði gerðar þrjár stórar eyjar og á þeim rísi tug­þús­undir húsa. Eyjarnar teng­ist inn­byrðis og við Kaup­manna­höfn og Skán með brúm og göngum og til við­bótar Eyr­ar­sunds­brúnni komi þrjár nýjar teng­ingar yfir sundið. Efninu í eyj­arnar, sem sam­an­lagt yrðu svip­aðar á stærð og Amager, tals­vert stærri en t.d. Þing­valla­vatn, yrði fengið úr Eyr­ar­sund­inu, líkt og gert var með Pip­ar­hólmann þegar Eyr­ar­sunds­brúin var byggð.

Skýjaborgir eða raunveruleiki?

Iðulega er það svo þegar nýjar rót­tækar hug­myndir koma fram að margir telja þær skýja­borgir sem aldrei verði, eða geti orðið, að veru­leika. En sagan segir að margt af því sem fáir eða engir töldu ger­legt á sínum tíma er í dag sjálf­sagður hlutur. Hvort borgin á eyj­unum þremur á Eyr­ar­sundi verður að veru­leika verður tím­inn að leiða í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár