Býður sig fram til formanns Sjómannafélags Íslands

Heiðveig María Ein­ars­dóttir mun fyrst kvenna bjóða sig fram til for­manns Sjó­manna­fé­lags Íslands. Hún hefur áður gagn­rýnt for­ystu sjó­manna, sem og nýtt frum­varp um breyt­ingar á veiði­gjöldum.

Heiðveig María Einarsdóttir
Heiðveig María Ein­ars­dóttir Mynd: Þröstur Njálsson

Heiðveig María Ein­ars­dóttir, sjó­maður og við­skipta­lög­fræð­ingur, hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­manns Sjó­manna­fé­lags Íslands. Hún greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni í dag.

[links]Hún segir að eftir sjó­manna­verk­fallið 2017 hafi ítrekað verið skorað á hana að bjóða sig fram til for­ystu og hug­leiddi hún það af mik­illi alvöru. Á sama tíma hafi hún hvatt Sjó­manna­fé­lag Íslands og Sjó­manna­sam­band Íslands til að láta verkin tala en upp­lifað þögn.

Heiðveig hefur gagn­rýnt harð­lega nýtt frum­varp um breyt­ingar á veiði­gjöldum sem kynnt var í síð­ustu viku og af þeim sökum tók hún saman athuga­semdir og umsögn um frum­varpið og komið þeim á fram­færi við Atvinnu­vega­nefnd Alþingis sem fer með mál­ið.

„Eftir að ég skil­aði sjálf inn umsögn um Veiði­gjalda­frum­varp Rík­is­stjórn­ar­innar í gær hefur póst­hólfið mitt fyllst af hrósi, hvatn­ingu, áhuga og áskor­unum til for­ystu og hef ég því tekið þá stóru ákvörðun að bjóða mig fram til for­manns fyrir Sjó­manna­fé­lag Íslands. Ég vil í fram­haldi af þess­ari ákvörðun örva umræðu meðal sjó­manna og kalla á sama tíma eftir áhuga­sömu fólki til að vinna að og móta stefnu fram­boðs­ins,“ segir hún í stöðu­upp­færslu sinni á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár