María Corina fær friðarverlaun Nóbels

María Corina Machado, leið­togi stjórn­ar­and­stöð­unnar í Venes­ú­ela, hlaut frið­ar­verð­laun Nóbels fyrir óþreyt­andi bar­áttu sína fyrir lýð­ræði og frið­sam­legum umskiptum frá ein­ræði. Nóbels­nefndin hrós­aði hug­rekki og stað­festu hennar.

María Corina Machado, leið­togi stjórn­ar­and­stöð­unnar í Venes­ú­ela, hlýtur frið­ar­verð­laun Nóbels í ár. Um þetta var til­kynnt klukkan 9 í morgun. Verð­launin fær hún fyrir lýð­ræð­is­bar­áttu sína í Venes­ú­ela. 

Machado var heiðruð „fyrir óþreyt­andi starf sitt við að stuðla að lýð­ræð­is­legum rétt­indum fólks­ins í Venes­ú­ela og fyrir bar­áttu sína til að ná fram rétt­látum og frið­sam­legum umskiptum frá ein­ræði til lýð­ræðis,“ sagði Jørgen Watne Frydnes, for­maður norsku Nóbels­nefnd­ar­innar í Ósló þegar hann til­kynnti um verð­launa­hafann.

Frydnes hrós­aði Machado þegar hann til­kynnti um verð­launin og sagði að hún væri hug­rökk og stað­fastur tals­maður friðar sem „heldur loga lýð­ræð­is­ins lif­andi á tímum vax­andi myrk­urs“.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Það verður fróðlegt að sjá hversu háa tolla appelsínuguli kallinn setur á Noreg í hefndar og afbrýðsemi kasti.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár