Ráðgjafarstofu innflytjenda verður komið á fót

Ráð­gjaf­ar­stofa inn­flytj­enda mun bjóða upp á ráð­gjöf og upp­lýs­ingar til inn­flytj­enda um rétt­indi, þjón­ustu og skyldur. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis var sam­þykkt í vik­unni en ein­ungis þing­menn innan Mið­flokks­ins greiddu gegn henni.

Kolbeinn Óttarsson Proppé
Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, er fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem sam­þykkt var í vik­unni þess efnis að komið verði á fót ráð­gjaf­ar­stofu inn­flytj­enda. Ráð­gjaf­ar­stofan er ætluð öllum inn­flytj­endum, flótta­mönnum og hæl­is­leit­endum. Hlutverk stofn­un­ar­innar verði að bjóða inn­flytj­endum upp á aðgengi­lega ráð­gjöf um þjón­ustu, rétt­indi og skyldur.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni kemur fram að óvíst sé hversu mik­ill kostn­aður hljót­ist af stofnun ráð­gjaf­ar­stof­unnar. Vonast sé til að sam­starf náist við sveit­ar­fé­lögin um rekstur. Mögulega þurfi að gera laga­breyt­ingar vegna skör­unar á verk­efnum stofn­ana sem komi að ráð­gjaf­ar­stof­unni.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er Bjark­ar­hlíð, mið­stöð fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis, nefnt sem for­dæmi fyrir stofnun sem hefur alla þjón­ustu undir sama þaki og sam­starf sé á milli bæj­ar­fé­lags og ríkis.

Miðflokksmenn greiddu gegn tillögunni

Alls greiddu 49 þing­menn með til­lög­unni, sex þing­menn voru fjar­ver­andi og greiddu sjö þing­menn gegn henni. Allir þing­menn­irnir sem greiddu gegn til­lög­unni eru þing­menn Mið­flokks­ins, þau Anna Kolbrún Árna­dóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þór­ar­ins­son, Karl Gauti Hjalta­son, Ólafur Ísleifs­son, Sigurður Páll Jónsson og Þor­steinn Sæmunds­son.

[links]Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um mál­efni inn­flytj­enda. Inn­flytj­endur eru til að mynda um 20 pró­sent starf­andi fólks á Íslandi og um tólf pró­sent íbúa lands­ins. Hlut­falls­lega eru flestir inn­flytj­endur í Reykja­nesbæ, eða um 23 pró­sent. Atvinnu­þátt­taka inn­flytj­enda á Íslandi er afar há og hlut­falls­lega hærri en Íslend­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár