Innflytjendur tæplega 20 prósent starfandi fólks

Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara hefur marg­fald­ast á und­ar­förnum árum. Starf­andi inn­flytj­endur voru að jafn­aði 37.388 á öðrum árs­fjórð­ungi 2018 eða 18,6 pró­sent af öllum starf­andi.

Á öðrum árs­fjórð­ungi árið 2018 voru að jafn­aði 200.798 starf­andi á Íslandi á aldr­inum 16 til 74 ára. Af þeim voru konur 93.884 eða 46,7 pró­sent og karlar 106.914 eða 53,2 pró­sent. Starf­andi inn­flytj­endur voru að jafn­aði 37.388 á öðrum árs­fjórð­ungi 2018 eða 18,6 pró­sent af öllum starf­andi. Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar.

Þegar horft er til búsetu kemur í ljós að á sama tíma voru starf­andi með skráð lög­heim­ili á Íslandi að jafn­aði 194.673 eða 96,9 pró­sent allra starf­andi. Alls höfðu 163.410 lög­heim­ili hér á landi og ein­hvern íslenskan bak­grunn eða 83,9 pró­sent. Af inn­flytj­endum voru 32.110 með lög­heim­ili á Íslandi eða 85,9 pró­sent en 5.278 höfðu ekki lög­heim­ili á Íslandi eða 14,1 pró­sent.

Samkvæmt aðferðum Hag­stof­unnar telst ein­stak­lingur inn­flytj­andi sem fæddur er erlendis og á for­eldra og báða afa og báðar ömmur sem einnig eru fædd erlendis. Aðrir telj­ast hafa ein­hvern íslenskan bak­grunn.

Fjöldi erlendra ríkisborgara fjórfaldast

Kjarninn fjall­aði fyrr í sumar um fjölgun lands­manna á fyrri hluta árs­ins 2018 en rekja má fjölg­un­ina til þess að erlendir rík­is­borg­ara fluttu hingað til lands. Þeir voru orðnir 41.280 tals­ins og fjölg­aði um 3.328 frá ára­mót­um, eða um 8,7 pró­sent. Alls fjölg­aði íbúum á Íslandi um 2.360 á tíma­bil­inu og er því ljóst að lands­mönnum hefði fækkað ef ekki hefði verið fyrir aðflutn­ing erlendra rík­is­borg­ara til lands­ins. Hlut­falls­lega setj­ast lang­flestir þeirra að í Reykja­nes­bæ. Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara þar hefur tæp­lega fjór­fald­ast á örfáum árum.

Alls eru Íslend­ingar rúm­lega 353.000 tals­ins og eru erlendir rík­is­borg­arar tæp­lega tólf pró­sent af íbúum lands­ins. Þetta kom í mann­fjölda­tölum Hag­stofu Íslands í júlí síð­ast­liðnum sem sýna stöð­una í lok júní síð­ast­lið­ins.

Erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi hefur fjölgað um 97 pró­sent frá lokum árs 2011. Það þýðir að fjöldi þeirra hefur tvö­fald­ast á sex og hálfu ári. Þeir hafa aldrei verið fleiri og fjölgun þeirra hefur aldrei verið hrað­ari en á síð­ustu 18 mán­uð­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár