Vilja koma á fót Ráðgjafastofu innflytjenda

Til stendur að koma á fót Ráð­gjafa­stofu inn­flytj­enda þar sem fólk, sem flytur hingað til lands, getur aflað sér allra þeirra upp­lýs­inga og ráð­legg­inga á einum stað sem nýt­ast við flutn­ing­inn.

Til stendur að koma á fót Ráð­gjafa­stofu inn­flytj­enda. Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, er fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis sem lögð verður fram á kom­andi þingi.

Hann segir í sam­tali við Kjarnann að verið sé að vinna með svo­kall­aða „first stop shop“-hug­mynd sem gengur út á fólk geti leitað á einn stað fyrir allar upp­lýs­ingar. Hann segir að á Ráð­gjafa­stof­unni eigi fólk sem flytur til lands­ins að geta fengið ráð­legg­ingar, sama hvaðan það kemur eða hvar það er búsett á Íslandi.

Í lýs­ingu á til­lög­unni segir að það sé stórt skref öllum að flytj­ast til ann­ars lands og hefja þar nýtt líf. „Ýmsar ástæður búa að baki því skrefi, en hvort sem það er stigið af sjálfs­dáðum eða af nauð­syn slæmra aðstæðna, þá er öllum í hag að njóta sem bestrar leið­sagnar um hið nýja sam­fé­lag. Bætt aðgengi að upp­lýs­ingar gerir breyt­ingar á högum fólks létt­ari og stuðlar um leið að því að fólk verður mun fyrr virkt í sam­fé­lag­inu og getur fyrr farið að gefa af sér.“

Kolbeinn bendir á að ein­falda þurfi kerfið fyrir fólk sem flytur hingað til lands. „Við teljum að gott sé að byrja á þessu verk­efni,“ segir hann og bætir því við að þetta snú­ist fyrst og fremst um hags­muni fólks­ins sjálfs.

[adspot]

Óvíst hver kostnaður verði

Á Ísafirði er vísir að slíkri ráð­gjafa­stofu en þar er fjöl­menn­ing­ar­setur sem hefur það hlut­verk að greiða fyrir sam­skiptum fólks af ólíkum upp­runa og efla þjón­ustu við inn­flytj­endur sem búsettir eru á Íslandi.

Kolbeinn segir að Ráð­gjafa­stofan sé ætluð öllum þeim sem hingað koma til lands; inn­flytj­endum, flótta­mönnum og hæl­is­leit­endum. Samstarf verði við til að mynda Rauða kross­inn, verka­lýðs­hreyf­ing­una og ýmsa aðra aðila sem koma að mála­flokknum.

Óvíst er hve mik­ill kostn­aður felst í stofnun Ráð­gjaf­ar­stofu inn­flytj­enda og hve mikil áhrif stofnun hennar hefur á rík­is­sjóð. Samkvæmt Kolbeini er von­ast til að sam­starf náist við sveit­ar­fé­lögin um rekstur og þá sé við­búið að ein­hver þjón­usta fær­ist til stof­unnar frá öðrum sviðum og stofn­unum og fjár­munir fylgi með. Til sam­an­burðar nefnir hann árlegan kostnað við rík­is­stofnun með fimm starfs­menn en hann er um 55 millj­ónir króna.

Fjöldi erlendra ríkisborgara fjórfaldast

Kjarninn fjall­aði fyrr í sumar um fjölgun lands­manna á fyrri hluta árs­ins 2018 en rekja má fjölg­un­ina til þess að erlendir rík­is­borg­ara fluttu hingað til lands. Þeir voru orðnir 41.280 tals­ins og fjölg­aði um 3.328 frá ára­mót­um, eða um 8,7 pró­sent. Alls fjölg­aði íbúum á Íslandi um 2.360 á tíma­bil­inu og er því ljóst að lands­mönnum hefði fækkað ef ekki hefði verið fyrir aðflutn­ing erlendra rík­is­borg­ara til lands­ins. Hlut­falls­lega setj­ast lang­flestir þeirra að í Reykja­nes­bæ. Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara þar hefur tæp­lega fjór­fald­ast á örfáum árum.

Alls eru Íslend­ingar rúm­lega 353.000 tals­ins og eru erlendir rík­is­borg­arar tæp­lega tólf pró­sent af íbúum lands­ins. Þetta kom fram í mann­fjölda­tölum Hag­stofu Íslands í júlí síð­ast­liðnum sem sýna stöð­una í lok júní.

Erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi hefur fjölgað um 97 pró­sent frá lokum árs 2011. Það þýðir að fjöldi þeirra hefur tvö­fald­ast á sex og hálfu ári. Þeir hafa aldrei verið fleiri og fjölgun þeirra hefur aldrei verið hrað­ari en á síð­ustu 18 mán­uð­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár