Takk fyrir ykkur

„Í dag er stór dagur,“ sagði sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Þar átti hann við enn eitt skrefið í aflétt­ingu tak­mark­ana. Í hugum lands­manna var dag­ur­inn þó ekki síst stór því fund­ur­inn var sá síð­asti – í bili að minnsta kosti.

Þríeykið: Þórólfur, Alma og Víðir.
Þríeykið: Þórólfur, Alma og Víðir. Mynd: Lögreglan

„Góðan og bless­aðan dag­inn og vel­komin á þennan upp­lýs­inga­fund sem verður sá síð­asti að sinni. Ég heiti Víðir Reyn­is­son og með mér í dag eru Þórólfur og Alma. [...] og það er hún Iðunn sem túlkar fyrir okkur í dag.“

Á þessum orðum, á slag­inu klukkan 14.03, hófst einn vin­sæl­asti dag­skrár­liður í íslensku sjón­varpi fyrr og síðar: Upp­lýs­inga­fundur almanna­varna vegna COVID-19.

Þó að um mikil tíma­mót hafi verið að ræða, ekki aðeins hjá þrí­eyk­inu heldur þjóð­inni allri sem fær nú ekki að njóta návistar þess heima í stofu reglu­lega, hófst fundur dags­ins með hefð­bundnum hætti.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir fór yfir „stöð­una til að byrja með“ eins og Víðir sagði er hann gaf félaga sínum orðið.

„Ekkert sýni greind­ist jákvætt síð­asta sól­ar­hring­inn,“ sagði sótt­varna­læknir. Í maí hafa margir dagar verið án smita. Þegar mest lét þurfti Þórólfur að greina frá 106 smitum á einum sól­ar­hring. Það var þann 24. apríl.

„Í dag er stór dagur,“ sagði hann eftir að hafa sagt, eins og svo oft síð­ustu vikur, að smit í sam­fé­lag­inu virt­ist lítið.

Áhorf­endur heima í stofu sperrtu eyrun.

[adspot]

Stóru dag­arnir, stóru áfang­arnir hafa verið margir. En það hafa stóru skell­irnir líka verið. Smit sem dag frá degi hófu að mynda bratta brekku skömmu eftir að það fyrsta greind­ist, 28. febr­úar. Far­ald­ur­inn náði hér hámarki, eins og vís­inda­menn Háskóla Íslands höfðu reyndar spáð til um, í fyrstu viku apríl. Og þá hófst ferðin niður brekk­una.

Með „stóra deg­inum“ vís­aði Þórólfur til þess skrefs sem stigið var í aflétt­ingu sam­komu­tak­mark­ana í dag. Nú mega 200 koma saman í stað 50 áður og ýmis starf­semi getur haf­ist að nýju með tak­mörk­unum þó. Þá hefur tveggja metra reglan verið skil­greind aftur „og er orðin val­kvæð, getur maður sagt, upp að vissu marki,“ sagði Þórólfur.

Hann virt­ist sáttur þegar hann sagði „óhætt að segja“ að mögu­legt hafi verið að fara hratt í aflétt­ingar á tak­mörk­unum, „í trausti þess að allir haldi áfram að gæta að sínum ein­stak­lings­bundnu sótt­vörnum og að veiran fari ekki að valda auknum sýk­ingum í sam­fé­lag­inu aftur.“ Ef allt gengur að óskum verður næsta skref stigið að þremur vikum liðnum og þá má gera ráð fyrir að um 500 manns megi koma saman.

„Ég ætla ekki að segja meira í dag,“ sagði Þórólfur en átti reyndar ekki eftir að standa við það.

Alma Möller land­læknir „minnti á appið“ og sagði jafn­vel enn mik­il­væg­ara en áður að hafa það til að rekja ferðir okkar ef til smits kemur. Alma hefur ítrekað minnt á appið á upp­lýs­inga­fund­unum og nú er það komið í 140 þús­und sím­tæki.

Land­læknir fór yfir tölur um heil­brigð­is­þjón­ust­una og nefndi til dæmis að fljótt á litið hefði ekki orðið breyt­ing á inn­lögnum vegna hjarta- og heila­á­falla og ekki heldur fleiri dauðs­föll. Það bendi til þess að tek­ist hafi að sinna bráða­þjón­ustu eins og stefnt var að. Ekki urðu miklar breyt­ingar á lyfja­á­vís­unum á meðan far­ald­urnn gekk yfir en þó urðu þau jákvæðu tíð­indi að ávís­unum á sýkla­lyf til barna fækk­aði. Þá sagði hún að það sem sótt­varna­læknir hefði haldið fram snemma varð­andi börn og COVID væri stað­fest: Þau fá síður veiruna, þau smita síður frá sér og „veikj­ast sem betur fer minna“.

[adspot]

Einnig væru merki um jákvæð áhrif á heilsu fólks, færri sofa of lítið svo dæmi sé tekið og notkun ungs fólks á sígar­ettum og rafrettum var áber­andi minni síð­ustu vikur. „Íslensk þjóð verður að sýna kjark en á sama tíma ítr­ustu var­kárni,“ sagði hún.

„Kæru lands­menn, okkur gekk vel að takast á við kúf far­ald­urs­ins,“ sagði Alma svo og þakk­aði heil­brigð­is­starfs­fólki og þjóð­inni allri fyrir. „Ég er þess full­viss að við munum takast áfram á við þetta af yfir­vegun og skyn­semi og með bestu þekk­ingu sem völ er á hverju sinni.“

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra og ráð­herra almanna­varna, voru gestir þessa síð­asta fundar. Þær lof­uðu þrí­eykið í hví­vetna. Svandís sagði að Víði, Þórólfi og Ölmu hefði tek­ist að fylla fólk öryggi. „Þetta var verk­efni sam­fé­lags­ins alls en í dag er mér efst í huga þakk­læti og lotn­ing fyrir þessu ein­staka fólki hér,“ sagði hún og afhenti þre­menn­ing­unum þakk­læt­is­vott. „Takk fyrir ykkur.“

Svandís vott­aði aðstand­endum þeirra tíu sem lát­ist hafa hér á landi vegna COVID-19 inni­lega samúð.

Áslaug Arna sagði það til marks um þann góða árangur sem náðst hefði að um síð­asta upp­lýs­inga­fund­inn í bili væri að ræða. Í dag hafi því verið óhætt að fara af neyð­ar­stigi í almanna­vörnum.

Ráð­herr­ann sagði að margir hefðu eflaust fundið fyrir ótta síð­ustu vikur en að sá ótti hefði þó ekki stjórnað neinu enda við­brögð þrí­eyk­is­ins verið aðdá­un­ar­verð og ein­kennst af yfir­vegun og skyn­semi. „Þraut­seigja og kjarkur lýsir þeim best.“

Áslaug hélt svo áfram og sagði: „Það er alveg ljóst að þessi staða...“

Hún gerði örstutt hlé á máli sínu er ljósin í fund­ar­rým­inu slokkn­uðu skyndi­lega.

„Og nú slokkn­aði ljósið,“ hélt hún áfram létt í bragði. „Þessi tækni­bilun sýndi og sann­aði að þetta er að klár­ast, að þessu er að ljúka.“

Víðir gaf svo að venju orðið laust fyrir spurn­ingar.

Eru sex smit í maí topp­ur­inn á ísjak­anum? (Líklega ekki. Það virð­ist vera lítið smit í sam­fé­lag­inu).

Ef önnur bylgja far­ald­urs kemur, til hvaða aðgerða verður þá gripið? (Við vitum meira um veiruna núna en í febr­úar og aðgerðir yrðu end­ur­metnar í ljósi þess).

Verður ekki meiri hætta á smiti þegar krárnar verða opn­aðar? (Víðir hefur mikla trú á fólki og skyn­semi þess og „hefur fulla trú á að allir passi sig“).

Hversu lengi mun tveggja vikna sótt­kví vera nauð­syn­leg við kom­una til lands­ins? (Vinnu­hópur skilar í dag til­lögum að útfærslu að opnun landamæra og í kjöl­farið mun sótt­varna­læknir leggja fram til­lögur um fram­kvæmd­ina).

Hefur heil­brigð­is­ráð­herra fylgt til­mælum sótt­varna­læknis í hví­vetna? (Já, íslensku sótt­varna­lögin eru skýr. „Við treystum Þórólfi,“ sagði Svandís).

Er COVID-19 sjúk­dóm­ur­inn ekki eins lífs­hættu­legur núna og hann var? (Alltof snemmt að segja til um það en und­an­farið hafa þeir sem greinst hafa með sjúk­dóm­inn veikst minna en í upp­hafi far­ald­urs­ins).

Eftir spurn­inga­flóðið, það síð­asta frá fjöl­miðla­mönnum í bili, bað Þórólfur aftur um orðið. „Að lokum, þar sem þessir tveir ágætu ráð­herrar hafa verið að ausa okkur lofi hér, þrí­eykið, þá vil ég fá að ausa því til baka.“ Hann sagði ráð­herrana hafa verið „frá­bæra í sam­starfi“ og að þeir hafi gert vinnu þeirra allra auð­veld­ari. „Það er mjög dýr­mætt að geta hringt í ráð­herra nokkrum sinnum á dag og rætt málið. Það er ekki sjálf­gefið. Ég vil bara þakka Svandísi sér­stak­lega fyrir góða sam­vinnu og von­andi verður þessi sam­vinna áfram. Ég á ekki von á öðru.“

Þegar fund­ur­inn hafði staðið í rétt rúman hálf­tíma, um það bil jafn lengi og stefnt var að í upp­hafi syrpunnar, var það Víðir sem átti loka­orðin.

„Komið að lokum hjá okkur í dag. Síðasta frá mér... mig langar bara að senda þakk­læti til þessa fjöl­breytta hóps sem myndar okkar fal­lega sam­fé­lag. Þetta hefði ekki tek­ist nema að þið gerðuð þetta.

Takk fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár