Ferðamenn fari í skimun eða framvísi vottorði

Fólk sem kemur hingað til lands getur sam­kvæmt til­lögum stýri­hóps valið um að fara í sótt­kví eins og nú er kraf­ist, í skimun eða fram­vísað vott­orði. Varfærið skref sem verður end­ur­skoðað segir for­sæt­is­ráð­herra.

Sex ráðherrar voru á blaðamannafundinum í Safnahúsinu í dag.
Sex ráð­herrar voru á blaða­manna­fund­inum í Safna­hús­inu í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Eigi síðar en 15. júní er stefnt að því að ferða­menn sem hingað koma geti í stað þess að fara í tveggja vikna sótt­kví valið á milli þess að fara í skimun á Kefla­vík­ur­flug­velli eða fram­vísa vott­orði sem metið er full­gilt af íslenskum heil­brigð­is­yf­ir­völdum. Reynist sýni nei­kvætt þarf við­kom­andi ekki að fara í tveggja vikna sótt­kví. Fyr­ir­hugað er að veiru­fræði­deild Land­spít­ala ann­ist sýna­töku á Kefla­vík­ur­flug­velli og grein­ingu. Nið­ur­staða á að geta legið fyrir sam­dæg­urs og er gert ráð fyrir að far­þegar geti farið til síns heima eða á gisti­stað þegar hún liggur fyrir.

Þetta er meðal þess sem fram kom á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í Safna­hús­inu í dag þar sem kynntar voru til­slak­anir á ferða­tak­mörk­unum til lands­ins. Sér­stakur stýri­hópur gerði til­lögur um málið sem kynntar voru og sam­þykktar á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnti til­lög­urnar á blaða­manna­fund­inum sem sex ráð­herrar voru við­staddir og til svara á.

Í fyrsta lagi sagði Katrín að sótt­varna­læknir hefði nú lagt til við heil­brigð­is­ráð­herra að nýjar reglur gildi um sótt­kví þeirra sem hingað koma frá 15. maí. Er þar um að ræða útvíkkun á svo­kall­aðri sótt­kví B sem við hana hefur verið stuðst þegar fólk er að koma hingað til starfa og getur þá verið í sótt­kví á sínum vinnu­stað til dæmis. Nú munu starfs­menn í öðrum greinum, m.a. kvik­mynda­töku­menn og íþrótta­menn geta farið í sótt­kví með þeim hætti.

Þá hefur sótt­varna­læknir einnig lagt til og það verið sam­þykkt að Færeyjar og Grænland telj­ist ekki lengur til háá­hættu­svæða.

Hvattir til að hlaða niður appinu

Katrín minnti á að næstu skref í til­slök­unum tak­mark­ana hér inn­an­lands verði tekið þann 25. maí og það þriðja um miðjan júní. Hér hefur náðst góður árangur í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn en í löndum í kringum okkur, m.a. Þýska­landi, væru bylgjur að koma upp aftur. „Heims­byggðin er ekki laus við þessa veiru, því miður“. Engu að síður sagði Katrín stefnt að því að eigi síðar en 15. júní geti ferða­menn sem koma til lands­ins átt val um að í stað þess að fara í tveggja vikna sótt­kví geti þeir annað hvort farið í skimun á Kefla­vík­ur­flug­velli eða fram­vísað vott­orði sem metið er full­gilt af íslenskum heil­brigð­is­yf­ir­völdum. Jafn­framt verður fólk sem hingað kemur hvatt til að hlaða niður smitrakn­ing­arappínu. Til að gæta ítr­ustu var­kárni verður reynslan af þessu fyr­ir­komu­lagi metin að tveimur viknum liðum og ákvörðun um fram­haldið tekin.

Katrín sagði að í þriðja lagi verði unnin hag­ræn grein­ing á þessum val­kosti. „Slík skimun kallar á umfang en við teljum okkur í stakk búin til að fara í þetta verk­efni,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra. „Þetta gæti líka orðið tæki­færi til að læra meira um þessa veiru sem við erum enn að kynn­ast, því miður, átta okkur á útbreiðslu hennar í hópi þeirra sem hingað koma og deila þeim upp­lýs­ingum með heim­inum.“

Sagðist hún líta á þetta sem var­færið skref. Brýnt væri að tryggja að eng­inn „komi inn til lands­ins með þessa veiru í fartesk­inu.“

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði í sam­tali við RÚV eftir kynn­ingu Katrínar að alltaf væri hætta á bakslagi. Hér hafi gengið vel að aflétta tak­mörk­unum og alltaf kæmi að þeim tíma­punkti að við yrðum að opna okkar landa­mæri. „Ég held að við séum að gera þetta á eins góðan og öruggan máta og hægt er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár