Til stendur að hætta að breyta klukkunni milli sumar- og vetrartíma

Forseti fram­kvæmd­ar­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins ætlar að leggja til að hætt verði að breyta klukk­unni milli sum­ars og vetrar í Evr­ópu­sam­band­inu.

Forseti fram­kvæmd­ar­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, Jean-Claude Juncker, segir að til standi að hætta því að breyta klukk­unni milli sumar- og vetr­ar­tíma. Þetta kom fram í þýskum sjón­varps­þætti síð­ast­lið­inn föstu­dag og greinir The New York Times frá.

Ástæðuna segir hann vera könnun sem sýnir fram á að meiri­hluti fólks í Evr­ópu­sam­band­inu vill hætta að breyta klukk­unni milli árs­tíða. Samkvæmt könn­un­inni telur 80 pró­sent að sum­ar­tím­inn eigi að vera allan árs­ins hring.

Breyt­ing­arnar munu þó ekki taka gildi fyrr en Evr­ópu­þingið hefur sam­þykkt þær og rík­is­stjórnir land­anna innan sam­bands­ins.

Samkvæmt evr­ópskum lögum verða öll 28 löndin innan Evr­ópu­sam­bands­ins að breyta klukk­unni síð­asta sunnu­dag­inn í mars og fara aftur yfir á vetr­ar­tíma í lok októ­ber.

[adspot]

Tími samræmdur á Íslandi árið 1907

Nokkuð hefur verið talað um að breyta fyr­ir­komu­lag­inu hér á landi en þings­á­lykt­un­ar­til­laga um seink­un staðar­klukku hef­ur alls verið lögð fram fjór­um sinn­um frá ár­inu 2010 á þingi og hef­ur verið þver­póli­tísk sam­staða í mál­inu.

Samkvæmt Vís­inda­vefnum voru lög sett árið 1907 um sam­ræmdan tíma á Íslandi þannig að alls staðar á land­inu skyldu klukkur fylgja tíma sem var einni klukku­stund á eftir Greenwich-tíma. Áður hafði þetta verið nokkuð breyti­legt þannig að klukkan á Akureyri var til dæmis ekki nákvæm­lega það sama og klukkan í Reykja­vík. Árið 1917 voru sett lög sem heim­il­uðu að klukk­unni væri flýtt um allt að einn og hálfan tíma frá því sem ákveðið var árið 1907.

Þessari heim­ild var beitt á árunum 1917 til 1921 þegar klukk­unni var flýtt um eina klukku­stund yfir sum­arið og var tím­inn á Íslandi þá sami og Greenwich-tími. Á árunum 1922 til 1938 var klukk­unni hins vegar ekki breytt heldur gilti sami tími á Íslandi allt árið um kring.

Sami tími í fimmtíu ár

Sá siður að flýta klukk­unni um eina klukku­stund yfir sum­arið var aftur tek­inn upp árið 1939 og var það gert á hverju ári í tæpa þrjá ára­tugi. Íslend­ingar skiptu síð­ast á milli vetrar- og sum­ar­tíma árið 1968 en það ár tóku gildi lög sem kváðu á um að sum­ar­tím­inn, það er Greenwich-tím­inn, skyldi vera stað­al­tími á Íslandi. Síðan þá hefur sami tími gilt allt árið um kring hér á landi.

Minni­hluti mann­kyns breytir klukk­unni hjá sér tvisvar á ári og eru margar af fjöl­menn­ustu þjóðum heims eins og Kína, Indland, Indónesía, Pakistan, Bangla­dess, Nígería og Japan ekki með sér­stakan sum­ar­tíma. Mörg þess­ara fjöl­mennu ríkja hafa þó ein­hvern tíma skipt á milli sumar- og vetr­ar­tíma en gera það ekki lengur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár