Merkel og Hollande komin til friðarviðræðna í Úkraínu

Francois Hollande Frakk­lands­for­seti og Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, til­kynntu óvænt um ferð til Kíev og Moskvu í dag, til þess að reyna að binda endi á átökin í aust­ur­hluta Úkraínu. Þau funda nú í Kíev og munu funda í Moskvu á morgun með Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta.

Að sögn Hollande ætla þau sér að kynna til­lögu að frið­sam­legri lausn sem allir ættu að geta sætt sig við. Hann sagði hins vegar líka að það væru tak­mörk fyrir því hversu lengi hægt væri að leita frið­sam­legra lausna. „Það ríkir stríð í Úkraínu. Verið er að nota vopn og óbreyttir borg­arar eru drepnir á hverjum degi,“ sagði Hollande.

Vilja friðsamlega lausn en bíða ekki endalaust


John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, er nú þegar kom­inn til Kíev til þess að ræða við Petro Poros­henko, for­seta Úkraínu, og aðra hátt­setta emb­ætt­is­menn.

[caption id="attachment_19279" align="alignnone" width="522"] John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og Petro Poros­henko, for­seti Úkraínu, á fundi í Kíev í dag.[/caption]

Kerry sagði í Kíev í dag að Banda­ríkja­menn vildu frið­sam­lega lausn á mál­inu en að þeir myndu ekki líta fram­hjá yfir­gangs­semi og fram­ferði Rússa. „Við getum ekki lokað aug­unum gagn­vart skrið­drekum sem fara yfir landa­mærin frá Rúss­landi og koma til Úkraínu,“ sagði hann á blaða­manna­fundi með Poros­henko. Kerry sagði líka að nú væri runn­inn upp mik­il­vægur tíma­punktur fyrir svæðið, fyrir Úkraínu og fyrir frið­ar­horfur.

Hann sak­aði Rússa um að brjóta gegn full­veldi Úkraínu með því að taka þátt í átök­unum þar, sem Rússar neita enn. „Við viljum frið­sam­lega lausn með samn­ingum - en það er ekki hægt að hafa ein­hliða frið,“ sagði Kerry jafn­framt. Hann bætti því við að nú sé Barack Obama Banda­ríkja­for­seti að velta fram­hald­inu fyrir sér, meðal ann­ars þeim mögu­leika að senda vopn til stjórn­valda í Úkraínu. Banda­ríkja­menn hafa hingað til þver­tekið fyrir að þeir ætl­uðu sér að senda vopna­að­stoð til stjórn­valda í Úkraínu.

Tals­maður rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sagði að ef Banda­ríkin ákveði að senda vopn til Úkraínu muni það valda gríð­ar­legum skaða í sam­skiptum Rúss­lands og Banda­ríkj­anna.

Mjög skiptar skoð­anir eru á því hvernig taka skuli taka á hern­að­ar­að­stoð, en stjórn­völd í Úkraínu hafa nokkrum sinnum óskað eftir aðstoð. Angela Merkel hefur sagst vera algjör­lega mót­fallin því að veita hern­að­ar­að­stoð og Þýska­land taki ekki þátt í því. Eftir fund­inn í Moskvu á morgun heldur hún svo til Banda­ríkj­anna þar sem hún mun funda með Obama eftir helgi.

Evr­ópu­sam­bandið er sagt von­ast til þess að með meiri þunga í umræðum um hern­að­ar­að­stoð sé hægt að ýta báðum deilu­að­ilum að samn­inga­borð­inu. Þá hefur verið greint frá því að Atl­ants­hafs­banda­lagið ætli að setja saman 5.000 manna her­deild sem verði hægt að senda til Austur-Evrópu með mjög stuttum fyr­ir­vara.

Eins og Kjarninn greindi frá í gær hefur ofbeldi gegn óbreyttum borg­urum auk­ist mjög und­an­farnar vikur og hafa nú meira en 5.000 óbreyttir borg­arar lát­ist frá því að átök brut­ust út. Þar af hafa fleiri en tíu lát­ist á hverjum degi frá því í byrjun jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár