Andlát og skilnaður valda titringi í Seattle-hagkerfinu

Ævin­týra­leg auð­söfnun stofn­enda verð­mæt­ustu fyr­ir­tækja heims­ins, Microsoft og Amazon, hefur haft mikil áhrif á Seattle svæðið. Skyndi­legt and­lát Paul Allen og skiln­aður Jeff Bezos, hafa valdið titr­ingi í hag­kerfi borg­ar­innar.

Margt rík­asta fólk heims­ins býr við sama vatnið í Washington ríki, Lake Washington. Skyndi­legt and­lát og skiln­aður eru nú að valda tölu­verðum titr­ingi og eigna­upp­skipt­ingu sem á sér fá for­dæmi þegar horft er til umfangs­ins.

Mikil verðmæti

Tvö verð­mæt­ustu fyr­ir­tæki heims­ins, Amazon og Microsoft, eru bæði með höf­uð­stöðvar á Seattle-borg­ar­svæð­inu í Washington, en upp­bygg­ing þess­ara tæknirisa hefur leitt til gíf­ur­legrar auð­söfn­unar þeirra sem byggðu fyr­ir­tækin upp og stofn­uðu þau, eins og gefur að skilja.

Mark­aðsvirði Amazon er 834 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða um 110 þús­und millj­arðar króna, en virði Microsoft er 825 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða um 102 þús­und millj­arðar króna. Þessi tvö fyr­ir­tæki hafa skipst á að vera verð­mætasta fyr­ir­tæki heims­ins und­an­farna mán­uði.

Núlif­andi stofn­endur fyr­ir­tækj­anna búa báðir á Seattle svæð­inu, þar sem fyr­ir­tækin urðu til, þeir Bill Gates og Jeff Bezos, og eru tveir rík­ustu ein­stak­lingar heims­ins.

Miklar eignir í innviðum

Bill og kona hans Melinda Gates reka einnig stofnun sína, Bill and Melinda Gates Foundation, frá Seattle og vinna nú að umfangs­mik­illi stækkun hennar í mið­borg­inni, sem mun kalla á ráðn­ingar á 10 þús­und manns til við­bótar.

Eignir Bill Gates eru bundnar í ýmsum eigna­flokkum, en helst í hluta­bréfum og land­ar­eignum og nema sam­tals um 90 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða um 11 þús­und millj­örðum króna.

Hann er stór hlut­hafi í UPS póst­þjón­us­unni, lestar­teina­fram­leið­and­anum Canadian National Railway Company í Kanada, fram­leiðslu­tækja­fyr­ir­tæk­inu Caterpillar, sorp­hirðu­fyr­ir­tæk­inu Waste Mangement Inc, svo eitt­hvað sé nefnt.

Þá á hann einnig hlutafé í fjár­fest­inga­fé­lag­inu Berks­hire Hathaway, sem Warren Buffett stýrir, og síðan í Microsoft. Hann hefur hins vegar selt tölu­vert af eignum í því fyr­ir­tæki á und­an­förnu árum. Bill and Melinda Gates Foundation á eign­ar­hlut í Microsoft sem er virði um 3,4 millj­arða Banda­ríkja­dala, um 400 millj­arða.

Á und­an­förnum mán­uðum hefur Bill Gates fjár­fest umtals­vert í landi og keypti meðal ann­ars land­bún­að­ar­land í upp­sveitum Washington ríkis, í októ­ber síð­ast­liðnum, fyrir um 170 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða jafn­virði um 22 millj­arða króna.

Til við­bótar við fram­antaldar eignir er stór hluti eign­anna í sjóðum, meðal ann­ars nýsköp­un­ar­sjóðum, sem þau hjónin bæði stýra í gegnum Bill and Melinda Gates Foundation.

Mið­punkt­ur­inn í starf­semi þeirra og fjár­fest­ingum hefur ávallt verið Seattle svæðið, en Bill Gates er fæddur þar og upp­al­inn.

Lög­gjöfin í Washington ríki er þannig, að eignir hjóna eru í jafnri hlut­deild þeirra, og því má segja að þau hjónin séu eitt, eins og þau hafa reyndar lagt áherslu á alla tíð, meðal ann­ars þegar þau til­kynntu um að þau myndu gefa allar eignir sínar frá sér í þró­un­ar­að­stoð, í gegnum Bill and Melinda Gates Foundation.

Meðstofnandi deyr

Með­stofn­andi Bill Gates hjá Microsoft, Paul Allen, lést 15. októ­ber síð­ast­lið­inn, eftir skamm­vinna bar­áttu við krabba­mein. Hann var ógiftur og barn­laus, en á eina systur, Jody Allen. Andlát Paul Allen olli miklum titr­ingi og setti af stað umfangs­mikla end­ur­skipu­lagn­ing­ar­vinnu á eigna­safni hans, sam­kvæmt skrifum Pudget Sound Business Journal, við­skipta­tíma­rits sem sér­hæfir sig í hag­kerfi Seattle svæð­is­ins.

Eign­irnar voru meðal ann­ars bundnar í félag­inu Vulcan, sem hélt utan um fjár­fest­ingar Allens í fast­eignum, rann­sókn­ar­verk­efnum, góð­gerð­ar­málum og ýmsu öðru sem hann kom að.

Forbes verð­mat eignir hans á 30 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða um 3.600 millj­arða króna, en vegna þess hve mikið lá í óskráðum eignum þá er erfitt að full­yrða um virði þeirra.

Skömmu áður en hann lést, setti hann fast­eignir á Mercer Island, þar sem margt efnað fólk á Seattle svæð­inu býr, á sölu fyrir um 130 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 17 millj­arða króna. Þó þetta sé lít­ill hluti af heild­ar­eignum, þá er þetta stór­biti fyrir fast­eigna­markað Seattle borgar, þar sem íbúar eru um 700 þús­und, en á borg­ar­svæð­inu í heild eru íbúar rúm­lega 3 millj­ónir. Hluti af eign­unum var bund­inn í lúx­us­hús­næði, sem fáir hafa efni á, en stór hluti var í verð­mætu bygg­ing­ar­landi.

Fast­eigna­safn Allens er að miklu leyti bundið við mið­borg Seattle, en hann hefur meðal ann­ars byggt upp hús­næði sem í dag hýsir höf­uð­stöðvar Amazon og stórar starfs­stöðvar bæði Google og Facebook í mið­borg­inni. Þannig hefur hann verið tengdur ævin­týra­legum vexti Amazon og hagn­ast á honum í gegnum fast­eigna­við­skipti, en þróun borg­ar­innar hefur einnig verið fram­kvæmd í sam­vinnu við Vulcan, ekki síst svæðið nærri Lake Uninon, sem er mið­svæðis á borg­ar­svæð­inu.

Eign­irnar sem hann skildi eftir voru líka óvenju­lega fjöl­breyttar. Meðal ann­ars átti hann NFL liðið Seattle Seahawks og NBA liðið Portland Trailblazers í nágranna­borg­inni Portland, í Oregon. Þá átti hann stærsta gít­ara­safn í heimi, stærsta herminja­safn í heimi, og flug­véla­safn sem á sér ekki hlið­stæðu í ver­öld­inni. Margt af því sem þarna er að finna eru safn­gripir sem erfitt er að verð­meta.

Systir Allens, Jody, hefur nú fengið þessar eignir að mestu, en ekki hefur þó verið upp­lýst um hvernig fer með fjár­fest­inga­fé­lagið Vulcan, en sjálfur hafði Allen hugsað það félag til fram­tíðar litið sem sjálfs­eign­ar­stofnun, þar sem fjár­munir færu að miklu leyti í góð­gerð­ar­starf. Eitt hans síð­asta verk var að gefa frá sér 125 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 15 millj­arða króna, til rann­sókn­ar­stofn­unar, Allen Institute, sem mun stunda rann­sóknir á sviði lækna­vís­inda.

Bezos hjónin skilja

Hinn 9. jan­úar birt­ist yfir­lýs­ing frá Jeff Bezos og eig­in­konu hans til 25 ára, MacKenzie Bezos, þar sem til­kynnt var um það að þau væru að skilja. Fréttin kom eins og þruma úr heið­skíru lofti, en ekki reynd­ist allt með felldu.

Slúð­ur­tíma­ritið National Enquirer hafði fylgst náið með Jeff Bezos yfir átta mán­aða tíma­bil og meðal ann­ars myndað hann með sjón­varps­kon­unni Lauren Sanches. Þau reynd­ust þá eiga í ást­ar­sam­bandi og er það talin vera ástæða skiln­að­ar­ins.

Jeff Bezos hefur verið skráður fyrir 17 pró­sent eign­ar­hlut í Amazon, en virði hans í dag nemur um 141,7 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 17 þús­und millj­örðum króna. Þessi eign gerir hann að lang­sam­lega rík­asta manni heims­ins. Ef farið verður eftir lag­anna bók­staf í Washingtor ríki í skiln­að­inum, þá mun þessi hluta­bréfa­eign skipt­ast jafnt á milli Jeff og MacKenzie, og verður hún þá rík­asta kona heims­ins, en Jeff fer niður í fjórða sæti yfir rík­asta fólkið í heim­inum.

Ákveði MacKenzie að selja þessi hluta­bréf, þá gæti það valdið miklum breyt­ingum hjá Amazon, svo dæmi sé tekið, enda hefur Jeff Bezos verður nær ein­ráður í fyr­ir­tæk­inu frá stofnun, og stýrt því með far­sælum hætti, svo ekki sé meira sagt.

Aðrar eignir sem Jeff á eru meðal ann­ars dag­blaðið Washington Post, geim­ferða- og rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Blue Origin, auk þess sem hann hefur fjár­fest í mörgum sjóðum, ekki síst á sviði nýsköp­unar. Hann ákvað á dög­unum á ráð­stafa tveimur millj­örðum Banda­ríkja­dala, jafn­virði um 240 millj­örðum króna, í góð­gerð­ar­sjóð, sem mun styðja við valin verk­efni árlega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár