Færri flóttamenn sóttu um hæli í fyrra en árið áður

Fækkun flótta­manna sem sækja um hæli á Íslandi heldur áfram. Færri komu í byrjun árs 2018 en á sama tíma 2017. Um tíu pró­sent þeirra sem sækja um hæli fá slíkt og flótta­mönnum í þjón­ustu hefur fækkað um þriðj­ung á einu ári.

Stór hluti þeirra flóttamanna sem fá hæli á Íslandi koma frá Sýrlandi og öðrum stríðshrjáðum svæðum.
Stór hluti þeirra flótta­manna sem fá hæli á Íslandi koma frá Sýrlandi og öðrum stríðs­hrjáðum svæðum. Mynd: EPA

Flótta­mönnum sem sóttu um hæli á Íslandi fækk­aði á milli áranna 2016 og 2017 og fjöldi þeirra sem voru í þjón­ustu Útlend­inga­stofn­unar eða sveit­ar­fé­laga dróst saman um þriðj­ung. Þá hafa færri flótta­menn sótt um hæli hér á landi það sem af er ári en gerðu það á sama tíma­bili í fyrra. Þetta má lesa úr töl­fræði Útlend­inga­stofn­unar.

[links]Alls sóttu 95 flótta­menn um alþjóð­lega vernd á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins 2018. Flestir þeirra, eða 16 tals­ins, komu frá Írak. Alls hafa 17 manns fengið hæli hér­lendis það sem af er ári.

Sá fjöldi sem sótt­ist eftir alþjóð­legri vernd á Íslandi á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins er mun fámenn­ari sá sem sótti um slíka hér­lendis á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins 2017. Þá sóttu sam­tals 140 manns um hæli, eða tæp­lega 50 pró­sent fleiri en gerðu það í byrjun yfir­stand­andi árs.

Færri komu í fyrra en árið áður

Á öllu síð­asta ári sóttu 1.096 manns um hæli á Íslandi. Það eru færri en sóttu um hæli á Íslandi á árinu 2016. Þá fengu alls 135 alþjóð­lega vernd og leyfi til að dvelja hér áfram, en árið 2017 voru alls 1.293 umsóknir um slíkt afgreiddar. Því fékk einn af hverjum tíu hæl­is­leit­endum sem fékk nið­ur­stöðu í hæli á Íslandi. 38 þeirra komu frá Írak, 26 frá Afganistan og 21 frá Sýrlandi. Samtals voru 85 þeirra sem fengu hæli hér­lendis frá þessum þremur löndum, eða tæp­lega tveir af hverjum þremur sem fengu slíkt.

[adspot]Þeim hæl­is­leit­endum sem voru í þjón­ustu sveit­ar­fé­laga eða Útlend­inga­stofn­unar fækk­aði mikið í fyrra. Þeir voru 820 í byrjun des­em­ber 2016 en 559 í byrjun sama mán­aðar 2017. Það þýðir að hæl­is­leit­endum sem voru á for­ræði ríkis eða sveit­ar­fé­laga fækk­aði um tæpan þriðj­ung á einu ári.

Þeir sem hafa sótt um hæli og bíða eftir að mál þeirra fái afgreiðslu fá fram­­færslu­eyri. Hann er átta þús­und krónur fyrir ein­stak­l­ing á viku en 23 þús­und krónur hjá fjög­­urra manna fjöl­­skyldu. Auk þess fær hver full­orð­inn hæl­­is­­leit­andi 2.700 krónur í vasa­pen­ing á viku og for­eldrar fá við­­bótar þús­und­ krónur fyrir hvert barn.

2,7 millj­arðar til hæl­is­mála í ár

Fjöldi hæl­is­leit­enda hér­lendis jókst mikið á árinu 2016. Þá var fjöldi þeirra sem komu hingað 1.130. Það þýðir að 34 fleiri flótta­menn sóttu um hæli á Íslandi á árinu 2016 en í fyrra.

Í upp­gjöri rík­is­sjóðs vegna fyrstu sex mán­aða árs­ins 2017 kom fram að hrein útgjöld vegna rétt­inda ein­stak­l­inga hafi verið 2,2 millj­­­­arðar króna sem var 1.251 millj­­­­ónum meira en áætlað var. Þar sagði: „Í fjár­­­­heim­ildum vegna árs­ins 2017 voru veru­­­­lega van­á­ætl­­­­aðar í fjár­­­­laga­­­­gerð fyrir árið 2017 í ljósi for­­­­dæma­­­­lausrar fjölg­unar hæl­­­­is­um­­­­sókna á síð­­­­­­­ustu mán­uðum árs­ins 2016. Kostn­aður vegna þess­­­­ara umsókna hefur að mestu leyti fallið til á yfir­­­­stand­andi ári.“ Hluti þess við­bót­ar­kostn­aðar var því vegna kostn­aðar sem féll til á árinu 2016 en hafði ekki verið gert ráð fyrir í fjár­lög­um.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skrif­aði grein í Morg­un­blaðið í októ­ber 2017 þar sem hann sagði að kostn­aður vegna hæl­is­leit­enda hér­lendis gæti farið í sex millj­arða króna á ári og jafn­vel í 220 millj­arða króna á ári miðað við sviðs­myndir sem settar hefðu verið fram.

Sam­kvæmt fjár­heim­ild til útlend­inga­mála í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2018 er reiknað með að heild­ar­fram­lög til hæl­is­mála verði um 2,7 millj­arðar króna í ár, sem er helm­ingi lægri upp­hæð en lægri mörk þess bils sem Ásmundur nefndi í grein sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár