Sturla Jónsson býður sig fram til Alþingis

Sturla Jónsson.
Sturla Jónsson. Mynd: Sturla Jónsson

Sturla Jónsson, sem bauð sig fram til emb­ættis for­seta Íslands fyrr á þessu ári, ætlar að bjóða sig fram til Alþingis í kom­andi kosn­ingum, sem fyr­ir­hug­aðar eru 29. októ­ber næst­kom­andi. Sturla ætlar að bjóða fram fyrir stjórn­mála­flokk­inn Dögun. Þetta til­kynnti hann á Facebook-síðu sinni.

Sturla lenti í fimmta sæti í for­seta­kosn­ing­unum sem fóru fram í júní. Hann fékk alls 6.446 atkvæði, eða 3,5 pró­sent allra greiddra atkvæða. Sturla bauð sig líka fram í þing­kosn­ing­unum 2013, þá undir eigin nafni. Þ.e. stjórn­mála­flokk­ur­inn hét Sturla Jónsson. Þá hlaut hann alls 222 atkvæði. Kjarninn tók saman tíu stað­reyndir um Sturlu fyrir for­seta­kosn­ing­arnar. Þær er hægt að lesa hér.

[adspot]

Dögun bauð einnig fram í þing­kosn­ing­unum 2013 og fékk þá 3,1 pró­sent atkvæða. Margrét Tryggva­dóttir, sem nýverið til­kynnti fram­boð í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, fór þá fyrir flokknum. Flokk­ur­inn hefur því fengið greiðslur úr rík­is­sjóði líkt og allir aðrir flokkar sem fá yfir 2,5 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ingum. Upphæðin skipt­ist milli flokka eftir atkvæða­fjölda í kosn­ing­unum.

Dögun til­kynnti í júní að flokk­ur­inn ætl­aði sér að bjóða fram í öllum kjör­dæmum í haust. Listar flokks­ins hafa ekki verið kynntir en á heima­síðu hans segir að helstu stefnu­mál séu:

  • lýð­ræð­isum­bætur,
  • upp­stokkun á stjórn fisk­veiða,
  • afnám verð­trygg­ingar ,
  • stofnun sam­fé­lags­banka,
  • eitt sam­einað líf­eyr­is­kerfi,
  • við­un­andi fram­færsla fyrir alla,
  • verð­ugt hús­næði fyrir alla - fjölga val­kostum á hús­næð­is­mark­aði með því að skapa rými fyrir hús­næðis- og leigu­rétt­ar­sam­vinnu­fé­lög sem ekki eru rekin í hagn­að­ar­skyni.


Formaður Dögunar er Helga Þórð­ar­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár