Traust til þjóðkirkjunnar í sögulegu lágmarki

Samkvæmt nýjum Þjóð­ar­púls Gallup hefur hlut­fall þeirra sem bera mikið traust til Þjóð­kirkj­unnar aðeins einu sinni verið jafn lágt frá því að mæl­ingar hófust en hlut­fall þeirra sem eru ánægðir með störf bisk­ups hefur aldrei verið jafn lágt.

Sögulega lágt traust og ánægja
Sögulega lágt traust og ánægja Nýr Þjóð­ar­púls Gallup hefur litið dags­ins ljós og sú stað­reynd að hlut­fall þeirra sem bera mikið eða full­komið traust til Þjóð­kirkj­unnar hefur aðeins einu sinni verið jafn lágt. Sama á við um ánægju með störf bisk­ups sem er sömu­leiðis í sögu­legu lág­marki. Mynd: Shutterstock

Aðeins 4 pró­sent af þeim sem tóku afstöðu í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup báru „full­komið traust“ til þjóð­kirkj­unnar. Þegar bætt er við þeim sem bera mikið traust til þjóð­kirkj­unnar verður hlut­fallið 28 pró­sent en í júlí árið 1999 var hlut­fallið 61 pró­sent. Aðeins einu sinni hefur hlut­fall þeirra sem bera mikið eða full­komið traust til þjóð­kirkj­unnar verið jafn lágt frá því að mæl­ingar hófust fyrir nær ald­ar­fjórð­ungi síðan. Það var í febr­úar árið 2012 en þá var þjóð­kirkjan líka sögð „í krísu“. Ári áður hafði Guðrún Ebba Ólafs­dóttir, dóttir Ólafs Skúla­sonar bisk­ups, lýst kyn­ferð­is­brotum af hálfu föður síns gegn sér í sam­tals­bók sem Elín Hirst skráði. En Guðrún hafði einnig lýst því fyrir Kirkju­ráði árið 2010 hvernig faðir hennar braut á henni árum saman. 

Fæstir bera mikið traust til kirkjunnar

Nær 39 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu í þessum nýja Þjóð­ar­púlsi bera hins vegar lítið eða ekk­ert traust til þjóð­kirkj­unnar og þriðj­ungur þeirra sem svör­uðu eru hlut­lausir. Til þess að draga þetta aðeins saman þá eru 72 pró­sent af þeim sem svör­uðu sem bera ekki mikið eða full­komið traust til þjóð­kirkj­unnar. Konur bera meira traust til þjóð­kirkj­unnar en karlar og hlut­fallið þeirra sem treysta henni fer einnig hækk­andi eftir aldri. Þegar litið er á afstöð­una út frá hvernig svar­endur myndu kjósa til Alþingis, væri gengið til kosn­inga í dag, væru það þeir sem kysu Fram­sókn­ar­flokk­inn eða Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem segj­ast helst bera mikið traust til kirkj­unnar. Þau sem kysu Sós­í­alista­flokk Íslands bera hins vegar minnst traust til hennar. 

Árið 1992, eða fyrir rétt rúmum 30 árum síðan, voru nær allir Íslend­ingar skráðir í þjóð­kirkj­una eða 92,2 pró­sent þeirra. Á ára­tug­unum sem fylgdu fór veru­lega að draga saman í skrán­ingum og frá árinu 2009 fækk­aði þeim með hverju ári þangað til sum­arið 2022 var hlut­fallið í fyrsta sinn komið undir 60 pró­sent. Í sept­em­ber­mán­uði síð­ast­liðnum voru 57 pró­sent lands­manna skráðir og hafði þeim fækkað um rúm­lega þús­und manns frá því í des­em­ber í fyrra. 

Síðasta breyt­ing á lög­unum um trú- og líf­skoð­un­ar­fé­lög, sú sem var gerð fyrir ára­tug, hafði mikið að segja um þessa þróun. Áratugum saman var skipu­lag mála hér­lendis þannig að nýfædd börn voru ætíð skráð í trú­fé­lag móður. Það þurfti því sér­stak­lega að skrá sig úr trú­fé­lagi í stað þess að skrá sig inn í það. Þessu var breytt árið 2013 og sam­kvæmt gild­andi lögum þurfa báðir for­eldrar að til­heyra sama trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lagi til að barnið sé skráð í það félag, ann­ars skrá­ist barnið utan trú­fé­laga. Á sama tíma var ramm­inn utan um hvernig félög mættu skrá sig sem trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög og þiggja sókn­ar­gjöld rýmk­aður.

Þeir íslensku rík­is­borg­arar sem kusu að standa utan þjóð­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­ustu alda­mót. Þeir eru nú að minnsta kosti 168 þús­und.

Sögulega fáir ánægðir með biskup

Aldrei hafa verið færri ánægðir með störf biskup Íslands frá því að mæl­ingar hófust en aðeins tæp­lega 11 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu eru ánægðir með störf Agnesar M. Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups. Til sam­an­burðar mæld­ist ánægja með störf bisk­ups 19 pró­sent árið 2011, sama ár og Guðrún Ebba gekk inn á fund kirkju­ráðs og ári seinna var hlut­fall ánægðra 45 pró­sent.

Aðeins 1 pró­sent þeirra sem svör­uðu að þessu sinni er að öllu leyti ánægt með störf bisk­ups en ríf­lega 41 pró­sent eru óánægð. Aftur eru það konur sem eru ánægð­ari með störf bisk­ups en karlar og eldra fólk ánægð­ara en þau sem yngri eru. Þau sem kysu Vinstri græn, yrði gengið til kosn­inga í dag, eru ánægð­ust á meðan þau sem myndu kjósa Sós­í­alista­flokk Íslands eru óánægð­ust með störf bisk­ups. 

Hlutfall þeirra sem eru hlynntir aðskiln­aði ríkis og kirkju er á svip­uðu róli og síð­asta ára­tug eða rúm­lega helm­ingur þeirra sem svör­uðu. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Rikisrekin Kirkja er ekki það sem er rett, Rikið leggur 10.000 Miljonir krona til Kirkjunar kvert ar, þeð er timaskekja og Bull, Biskupin er ekki Þarfur. Allar athafnir Presta eru Peninga plokk. Siðment er að koma betur ut i Giftingum og öðrum athöfnum. Hjalpræðis Herinn leggur mest af mörkum til þeira sem eru illa staddir, við Suðurlandsbraut eru þeir með storan Matsal og skaffa mörg hundruð Malsverði dag kvern Su Stofnun hefur i arana ras verið til SOMA er varðar illa statt folk. Lika er Samkjalp með Matsal er byður illa stöttum Malsverð dag kvern og a þakkir skilið fyrir. Rikið ætti að leggja þesum aðilum fe til. Mörg ljot mal hafa komið upp hja Þjoðkirkuni a siðustu aratugum. Nei Rikið a ekki að reka Trufelag. Eg er ekki i Þjoðkirkuni og finn sjalfan mig betur utan þar. Við lifum i Fjölmeninga Samfelagi með ymis Truarbrögð taka verður tilit til þeira. Þvi er það Bull að Prestar komi i Skola landsins og boði Krisna tru. Nei alls ekki Mer dettur oft i hug er Trumal bera a goma Gömul Visa sem Nagranni min her a Vatnleysuströnd Raulaði oft er eg var Drengur her Hann var mikil soma kall. TRUÐU A TVENT I HEIMI, GUÐ SEM ÆÐRA BER. GUÐ I ALHEIMS GEIMI OG GUÐ I SJALFUM ÞER. Þar komum við að þvi, Folk ma ekki missa truna a SJALFAN SIG, heldur byggja upp Sjalftraustið, Sjalfsvigi er þegar Vonin Brestur a Lifið. SJALFSTRAUSTIÐ MA EKKI KLIKKA, Það er likil að farsælu LIFI.
    1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Einkavæðum Ríkiskirkjuna TAFARLAUST !!!
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár