Búast við áætlun um afnám hafta síðustu vikuna í nóvember

Vænt­ingar eru til þess að áætlun um afnám fjár­magns­hafta verði kynnt á allra næstu vikum. For­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafa gefið það sterkt í skyn að und­an­förnu og á meðal kröfu­hafa fall­ina íslenskra banka er búist við því að skil­yrði fyrir sam­þykkt á nauða­samn­ingum þeirra verði kynnt mjög fljót­lega, mögu­lega í síð­ustu viku nóv­em­ber­mán­aðar.

Fyrst þarf hins vegar að lengja í skuldum Lands­bank­ans við þrotabú fyr­ir­renn­ara hans. Skilyrði stjórn­valda fyrir að það verði mögu­legt þurfa að liggja fyrir til að hægt sé að ganga frá þeirri leng­ingu. Vonir standa til að skil­yrði fyrir lausn verði kynnt í næstu viku.

Byrjaðir að tala um aukið svigrúm


Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í Kast­ljósi á mánu­dag að svig­rúmið sem muni mynd­ast við upp­gjör þrota­búa sé miklu meira en þeir 80 millj­arðar króna sem fóru í skulda­nið­ur­fell­ingar hjá þeim sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009. Í þætt­inum sagði hann: „Nú er staða rík­is­sjóðs, vegna aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar, orðin slík að menn sjá fyrir sér að það sé hægt að ráð­ast í upp­bygg­ingu. Meðal ann­ars í heil­brigð­is­kerf­inu, meðal ann­ars í mennta­kerf­inu[...]Þeir pen­ingar, ekki lán­taka, heldur raun­veru­leg verð­mæta­sköpun sem fellur rík­inu í skaut, þeir eru að verða til núna og gera okkur kleift að koma til móts við aðra hópa.“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fór svo í við­tal við Bloomberg-frétta­veit­una í vik­unni og sagði að það væri sitt per­sónu­lega mark­mið að áætlun um losun fjár­magns­hafta yrði kynnt opin­ber­lega fyrir jól.

Fyrst þarf að leysa vandamál Landsbankans


Bjarni hefur raunar hægt og rólega verið að feta sig að þess­ari tíma­setn­ingu. Í sam­tali við Kjarnann í sumar sagði hann til að mynda að vilji væri fyrir því að selja allt að 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum á næstu tveimur árum og að salan ætti helst að hefj­ast á því næsta.

[caption id="attachment_10261" align="alignnone" width="631"] Skrifað var undir nýtt sam­komu­lag milli nýja og gamla Lands­bank­ans í maí 2014. Það fellur úr gildi ef ekki semst um und­an­þágur vegna sam­komu­lags­ins í þess­ari viku.[/caption]

Skrifað var undir nýtt samkomulag milli nýja og gamla Landsbankans í maí 2014. Það fellur úr gildi ef ekki semst um undanþágur vegna samkomulagsins í þessari viku.
Skrifað var undir nýtt sam­komu­lag milli nýja og gamla Lands­bank­ans í maí 2014. Það fellur úr gildi ef ekki semst um und­an­þágur vegna sam­komu­lags­ins í þess­ari viku.

Til þess að selja Lands­bank­ann þarf hins vegar að lengja í skuld nýja Lands­bank­ans við þrotabú þess gamla, sem er um 228 millj­arðar króna í erlendum gjald­eyri. Eins og staðan er í dag þarf að greiða þá skuld upp fyrir lok októ­ber 2018 og það gerir nýja Lands­bank­ann í raun ósölu­hæfan. Til að lengja í skuld­inni þarf að veita und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höftum og slík und­an­þága er stórt skref á far­veg­inum í átt að afnámi fjár­magns­hafta.

Talið að óeining hindri framlagningu


Lands­bank­inn og þrotabú gamla Lands­bank­ans náðu sam­komu­lagi um breyt­ingar á skil­málum skulda­bréf­anna 8. maí síð­ast­lið­inn. Það fól í sér að lengt yrði í greiðslum til árs­ins 2025 gegn því að vaxta­kjör myndu hækka eftir árið 2018. Sam­komu­lagið var hins vegar bundið því að Seðla­banki Íslands myndi veita und­an­þágur frá lögum um gjald­eyr­is­mál, enda höft á fjár­mags­flutn­inga milli landa í gildi í land­inu.

Þrotabú Lands­bank­ans hefur þó nokkra ein­hliða fresti sem það vill fá svar fyrir um hvort und­an­þágur fáist. Stjórn­völd hafa ekki mætt þessum frestum og því hafa þeir verið fram­lengdir. Nýjasti frest­dag­ur­inn er 17. nóv­em­ber, á mánu­dag­inn kemur.

[quote font="0" align="right"]Heim­ildir Kjarnans herma að mikil vinna hafi verið lögð í að útfæra skil­yrði sem þrota­búið verði að mæta til að und­an­þága fáist og að hægt verði að leggja þau fyrir þrotabú Lands­bank­ans innan skamms.[/quote]

Heim­ildir Kjarnans herma að mikil vinna hafi verið lögð í að útfæra skil­yrði sem þrota­búið verði að mæta til að und­an­þága fáist og að hægt verði að leggja þau fyrir þrotabú Lands­bank­ans innan skamms.

Á meðal kröfu­hafa föllnu bank­anna, og raunar einnig innan úr stjórn­ar­flokk­unum tveimur, hefur verið full­yrt að ástæða þess að skil­yrðin hafi ekki verið lögð fram sé sú að óein­ing sé á milli for­svars­manna Sjálf­stæð­is­flokks og Seðla­bank­ans ann­ars vegar, og for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins og ráð­gjafa hennar hins vegar, um hvernig eigi að ljúka mál­inu. Bæði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafa neitað þeim fregnum opin­ber­lega.

Dregur til tíðinda?


En nú virð­ist vera að draga til tíð­inda. Vænt­ingar standa til þess að til­laga að lausn verði kynnt þrota­búi Lands­bank­ans í næstu viku. Í kjöl­farið verði hægt að kynna aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda gagn­vart þrota­búum Glitnis og Kaup­þings. Búist er við því að sú áætlun verði kynnt síð­ustu vik­una í nóv­em­ber.

Nú er talið að um ein­hliða aðgerð af hálfu stjórn­valda verði að ræða. Það er, ekki verði samið um mála­lok sem gætu leitt til afnáms hafta heldur muni stjórn­völd leggja fyrir for­svars­menn þrota­bú­anna þá leið sem þeim þau verði að mæta til að hægt verði að leysa þennan risa­stóra, og þjóð­hags­lega mik­il­væga, hnút.

[caption id="attachment_8266" align="alignnone" width="640"] Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur lengi talað um að mikið svig­rúm muni mynd­ast við upp­gjör þrota­búa föllnu bank­anna. Samkvæmt áætlun um afnám hafta ætti það að ganga eftir og mikið fé að renna í rík­is­sjóð.[/caption]

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur lengi talað um að mikið svigrúm muni myndast við uppgjör þrotabúa föllnu bankanna. Samkvæmt áætlun um afnám hafta ætti það að ganga eftir og mikið fé að renna í ríkissjóð.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur lengi talað um að mikið svig­rúm muni mynd­ast við upp­gjör þrota­búa föllnu bank­anna. Samkvæmt áætlun um afnám hafta ætti það að ganga eftir og mikið fé að renna í rík­is­sjóð.

Heim­ildir Kjarnans herma að búist sé við að um verði að ræða svo­kall­aðan flatan útgöngu­skatt á eignir þrota­bú­anna. Ef kröfu­hafar vilji út þurfi þeir að greiða flatan skatt af öllu fjár­magni sem þeir fái að fara með út úr íslensku efna­hags­kerfi. Samhliða verði kynntar hug­myndir um hvernig leyst verði úr eign­ar­haldi Íslands­banka og Arion banka, sem í dag eru báðir í eigu erlendra kröfu­hafa.

Gangi kröfu­haf­arnir ekki að þessu muni stjórn­völd vera til­búin að halda þeim áfram í höftum á meðan að öllum öðrum: t.d. íslenskum líf­eyr­is­sjóðum, heim­ilum, fyr­ir­tækjum, verði hleypt út.

[quote font="0" align="right"]Einn við­mæl­andi orð­aði það þannig að þeim yrði þá síð­ust út og í milli­tíð­inni yrðu þrota­búin „mjólkuð“ með sér­stakri skatt­lagn­ingu á þau. [/quote]

Einn við­mæl­andi orð­aði það þannig að þeim yrði þá síð­ust út og í milli­tíð­inni yrðu þrota­búin „mjólkuð“ með sér­stakri skatt­lagn­ingu á þau. Þarna virð­ast kylf­urnar og gul­ræt­urnar, sem Sig­mundur Davíð sagði í aðdrag­anda kosn­inga að ætti að nota gegn kröfu­höf­unum, vera að raun­ger­ast.

Hundruð milljarða í ríkissjóð


Ljóst er að eftir miklu er að slægj­ast. Eignir þrota­bús Glitnis eru 944 millj­arðar króna. Eignir þrota­bús Kaup­þings eru 789 millj­arðar króna. Þrotabú Lands­bank­ans á um 218 millj­arða króna í eignum umfram for­gangs­kröfur. ALMC, áður þrotabú Straums Burða­r­áss fjár­fest­inga­banka, á eignir upp á 97 millj­arða króna. Eignir SPB hf., sem áður hét Spari­sjóða­bank­inn/Icebank, eru 106 millj­arðar króna. Svo fátt eitt sé nefnt.

[quote font="0" align="right"]Ef útgöngu­skatt­ur­inn yrði til dæmis tíu pró­sent er ljóst að mörg hund­ruð millj­arðar króna myndu skila sér í rík­is­sjóð.[/quote]

Þá er hin snjó­hengjan, skamm­tímakrónu­eignir erlendra aðila. Þær eru nú um 307 millj­arðar króna. Þessi hópur hefur þegar haft útgöngu­leið í gegnum gjald­eyr­is­út­boð Seðla­bank­ans og hina svoköll­uðu fjár­fest­inga­leið hans. Þá selja þeir krónur sínar fyrir gjald­eyri þeirra sem vilja koma inn í íslenskt efna­hagslif með afslætti.

Ef útgöngu­skatt­ur­inn yrði til dæmis tíu pró­sent er ljóst að mörg hund­ruð millj­arðar króna myndu skila sér í rík­is­sjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár