„Þessi niðurstaða í Strassborg hún kemur auðvitað í samhengi við áhyggjur sem að margir hafa um þróun lýðræðis í Evrópu. Þar sem að stjórnmálamenn, valdboðsöfl í stjórnmálum, eru farin að teygja sig sífellt lengra í að sölsa undir sig önnur svið ríkisvaldsins. Ekki bara löggjafarvaldið og framkvæmdarvaldið, heldur eru farnir að teygja sig inn í sjálft dómsvaldið. Sem á auðvitað að vera sjálfstætt frá öðrum valdþáttum.“
Þetta sagði Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði, um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu og afsögn Sigríðar Á. Andersen úr embætti dómsmálaráðherra í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut í vikunni. Eiríkur var gestur Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, í þættinum. Hægt er að sjá stiklu úr honum hér að neðan.
Eiríkur sagði að þessi þróun, þar sem valdboðsöfl væru að teygja sig inn í dómsvaldið, væri að eiga sér stað til dæmis í Ungverjalandi og í Póllandi og að það hafi leitt af sér vaxandi áhyggjur í Evrópu. „Með þessum dómi er verið að draga einhverskonar línu í sandinn og segja að það gangi ekki að framkvæmdavaldið sé að krukka í dómsvaldinu með þeim hætti sem hérna er gert. Sérstaklega ekki þegar lögin hérna innanlands heimila það ekki, eins og kemur fram í þessum dómi sem tekur auðvitað mið af íslenskum lögum í þessu máli.
Ég held að það megi virða Sigríði Andersen það til vorkunnar að niðurstaðan er svona afdráttarlaus[...]það hefur með þessar áhyggjur manna að gera.“
[adspot]Eiríkur telur að það sé almennt ákveðið vandamál í íslenskum stjórnmálum að íslenskir stjórnmálamenn upplifi að þeir séu einvörðungu í starfsemi hér innanlands. „Að þeir séu einhvern veginn ekki hluti af stjórnmálaheild Evrópu. En vitaskuld eru þeir það. Við erum bara óvön því að hugsa um íslensk stjórnmál með þeim hætti. En það er ekki eitthvað sem íslenskir stjórnmálamenn geta lengur leyft sér. Þeir verða að átta sig á því í hvaða ytra samhengi þeir fara fram í þeim ákvörðunum sem þeir taka hér innanlands. Það er sú síkvika hreyfing sem er einna áhugaverðust í þessu máli finnst mér.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir