Viðskiptaþvinganir gætu leitt til neyðarástands í sumum ESB-löndum

Hugs­an­legt er að Evr­ópu­sam­bandið loki á allan inn­flutn­ing á jarð­gasi frá Rúss­landi vegna hugs­an­legrar inn­rásar í Úkraínu. Sam­bandið kemst lík­lega af án rúss­nesks gass í tvo mán­uði, en nokkur aðild­ar­ríki gætu þó orðið illa úti vegna þess.

Lagning Nord Stream 2 gasleiðslunnar á milli Rússlands og Þýskalands.
Lagning Nord Stream 2 gasleiðsl­unnar á milli Rúss­lands og Þýska­lands. Mynd: EPA

Evr­ópu­sam­bandið (ESB) gæti lík­lega orðið sér úti um nægi­legt orku­magn til að þurfa ekki að reiða sig á inn­flutn­ing jarð­gass frá Rúss­landi út þennan vetur. Þrátt fyrir það gæti slík ráð­stöfun leitt til enn frek­ari verð­hækk­ana á orku til hús­hit­unar, auk þess sem sum aðild­ar­ríki sam­bands­ins í Austur-Evrópu gætu þurft að grípa til var­úð­ar­ráð­staf­ana. Þetta kemur fram í grein­ingu frá hug­veit­unni Bruegel sem birt­ist í síð­ustu viku.

Boða samrýmdar refsiaðgerðir

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður hefur rúss­neskt her­lið nú safn­ast saman við landa­mæri Úkraínu. Evr­ópu­sam­bandið, ásamt Banda­ríkj­unum og öðrum aðild­ar­ríkjum NATO, hótað Rússum hörðum og sam­ræmdum refsi­að­gerðum, komi til þess að þeir ráð­ist inn í Úkraínu.

Á meðal hugs­an­legra refsi­að­gerða sem rætt hefur verið um er stöðvun á inn­flutn­ingi jarð­gass frá land­inu til ESB, meðal ann­ars með því að lok Nord Stream 2 leiðsl­una á milli Rúss­lands og Þýska­lands.

Samkvæmt Bruegel hefur Evr­ópu­sam­bandið reynt að flytja inn hlut­falls­lega minna af jarð­gasi frá Rúss­landi á síð­ustu árum. Þó eru Rússar enn stærstu inn­flutn­ings­að­ilar sam­bands­ins á jarð­gasi, en 38 pró­sent af öllum gasinn­flutn­ingi ESB í fyrra kom frá þeim.

ESB í viðkvæmri stöðu

Meg­in­land Evrópu hefur nú þegar glímt við nokkurn orku­skort á síð­ustu mán­uðum og miklar verð­hækk­anir, þar sem birgðir voru litlar og fram­leiðsla á end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum var undir vænt­ingum í fyrra. Þó segir Bruegel að verstu spárnar hafi ekki ræst, meðal ann­ars þar sem vetr­ar­mán­uð­irnir í álf­unni hafa verið hlýrri en venju­lega. Einnig hefur auk­inn inn­flutn­ingur af jarð­gasi kom­ist til móts við minni orku­fram­leiðslu í álf­unni. [links]

Orku­birgðir sam­bands­ins hafa auk­ist á síð­ustu mán­uðum og nema nú 442 terawattsstundum, en til sam­an­burðar fram­leiðir Kára­hnjúka­virkjun 4,6 terawattsstundir á ári. Ef gasinn­flutn­ingur frá Rúss­landi stöðvast um næstu mán­að­ar­mót segir Bruegel að Evr­ópu­sam­bandið ætti fræði­lega að geta gengið á birgð­irnar sínar fram í apríl. Ef vet­ur­inn verður kaldur í álf­unni gæti sam­bandið þó þurft á rúss­nesku jarð­gasi að halda í mars.

Tæknilegir og pólitískir erfiðleikar

Hins vegar er óvíst hvort öll aðild­ar­ríki sam­bands­ins munu geta mætt eft­ir­spurn­inni eftir jarð­gasi, þar sem orku­flutn­ings­kerfi á milli landa er tak­mörk­unum háð, segir hug­veitan. Líklegt sé því að flösku­hálsar mynd­ist ef inn­flutn­ingur á jarð­gasi frá Vestur-Evrópu til Austur-Evrópu eykst skyndi­lega.

Sömu­leiðis nefnir Bruegel að staðan gæti boðið upp á ýmsar póli­tískar hindr­anir. Mögulegt sé að ríki sem hafa meiri birgðir af jarð­gasi veigri sér við að deila því til ann­arra aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins sem eru í verri stöðu. Hætta á slíkri hömstrun eykst svo eftir því sem óvissan um lengd inn­flutn­ings­banns­ins er meiri.

Í ljósi þess segir hug­veitan að lík­legt sé að sum aðild­ar­ríkja ESB sem séu verr tengd öðrum löndum og hafi litlar orku­birgðir muni þurfa að grípa til neyð­ar­ráð­staf­ana í vetur, ef lokað verður á inn­flutn­ingi rúss­nesks jarð­gass.

Miklar verðhækkanir

Tíma­ritið The Economist fjall­aði einnig um áhrif hugs­an­legs inn­flutn­ings­banns á jarð­gasi frá Rúss­landi í síð­ustu viku. Þar var því haldið fram að Evr­ópu­sam­bandið gæti þraukað í fjóra til fimm mán­uði með slíkt bann í gildi ef það gengi meira á eigin birgðir en núver­andi reglur leyfa, en mögu­legt væri að þessar reglur yrðu rýmkaðar í ljósi aðstæðna.

Þó bendir tíma­ritið á að inn­flutn­ings­bannið yrði mjög nei­kvætt fyrir evr­ópskan efna­hag. Sárs­auk­inn yrði þó miklu frekar í formi mun hærra orku­verðs í stað fram­boðs­skorts á orkunni sjálfri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár