Klórar sér í kollinum yfir uppsögnum alls starfsfólks

Öllu starfs­fólki Sæferða var sagt upp eftir að Vega­gerðin hafn­aði til­boði fyr­ir­tæk­is­ins í ferju­sigl­ingar yfir Breiða­fjörð. Þar á meðal var starfs­fólk sem ekki vinnur á Breiða­fjarð­ar­ferj­unni Baldri heldur á skemmti­ferða­skip­inu Særúnu. Úlfar Hauksson, véla­stjóri á Baldri, segir upp­sagn­irnar hafa komið mis­jafn­lega við fólk og hann eigi erfitt með að skilja að ekki sé hægt að halda úti skemmti­ferða­sigl­ingum frá Stykk­is­hólmi.

Segja rekstrinum sjálfhætt
Segja rekstr­inum sjálf­hætt Jóhanna Ósk Hall­dórs­dóttir fram­kvæmda­stýra Sæferða segir ekki for­sendur fyrir rekstri fyr­ir­tæk­is­ins án ferju­sigl­inga. Mynd: Helgi Seljan

Upp­sagnir starfs­manna Sæferða, sem rétt­lættar voru með því að ekki hefðu náðst samn­ingar um rekstur fyr­ir­tæk­is­ins á nýrri ferju á Breiða­firði, náðu einnig til starfs­fólks sem ein­göngu hefur unnið á skemmti­ferða­skip­inu Særúnu. Samkvæmt fram­kvæmda­stjóra Sæferða er rekstur ferju á Breiða­firði grund­völlur til­vistar fyr­ir­tæk­is­ins. Starfs­maður Sæferða seg­ist hins vegar klóra sér í koll­inum yfir því að ekki sé hægt að reka far­þega­ferju á Breiða­firði þegar til lands­ins komi árlega þrjár millj­ónir ferða­fólks.

Sæferðir, sem rekið hafa Breiða­fjarð­ar­ferj­una Baldur, sögðu í síð­ustu viku upp öllum fast­ráðnum starfs­mönnum sínum, 22 tals­ins, í ljósi þess að Vega­gerðin hafn­aði til­boði fyr­ir­tæk­is­ins í rekstur skips­ins Rastar sem taka á við af Baldri í haust. Sæferðir, sem eru að fullu í eigu Eimskipa, voru eina fyr­ir­tækið sem bauð í sigl­ing­arnar á firð­inum með hinu nýja skipi sem Vega­gerðin samdi um kaup á í byrjun síð­asta mán­aðar.

Sæferðir hafa sinnt ferju­sigl­ingum yfir Breiða­fjörð á milli Stykk­is­hólms og Brjáns­lækjar, með við­komu í Flatey. Til stóð að leggja ferju­sigl­ingar af á firð­inum þegar samn­ingur Vega­gerð­ar­innar við Sæferðir rynni út í vor sem leið en ákveðið var að breyta þeirri ákvörðun og var þá einkum vísað í breyt­ingar á atvinnu­starf­semi á sunn­an­verðum Vest­fjörðum með mik­illi upp­bygg­ingu lax­eldis þar. Langstærsti hluti þjón­ustu Baldurs yfir vetr­ar­mán­uð­ina hefur falist í flutn­ingi á vöru­bílum með full­fermi af laxi frá fyr­ir­tækj­unum. Til eru þeir sem velt hafa því upp hvort eðli­legt sé að hið opin­bera nið­ur­greiði slíka flutn­inga fyrir einka­fyr­ir­tæki, að stórum hluta í erlendri eigu, með því að halda úti ferju­sigl­ingum.

Hafa áhyggjur af hafnarmannvirkjum

Sæferðir hafa nú selt Baldur sem verður í sigl­ingum á Breiða­firði fram til 15. októ­ber. Í stað Baldurs kemur ferjan Röst, smíðuð 1991, sem hefur þann helsta kost umfram Baldur að vera með tvær vélar. Síð­ast­liðin tvö ár hefur Baldur í tvígang orðið vél­ar­vana úti í Breiða­firð­inum með til­heyr­andi óþæg­indum og hættu.

Röstin er styttra skip en Baldur, en breið­ara. Mun Röstin geta tekið fimm stóra flutn­inga­bíla en hægt hefur verið að setja sex bíla í Baldur.  Þá hafa menn sem Heim­ildin hefur rætt við lýst áhyggjum sínum af hafn­ar­mann­virkjum sem til staðar eru í Stykk­is­hólmi ann­ars vegar og á Brjáns­læk hins vegar. Áhyggj­urnar snú­ast fyrst og fremst að því hvort ekju­brýr á báðum stöðum, sem voru hann­aðar fyrir mun mjórra skip en Baldur er, muni passa fyrir Röstina. Röstin, rétt eins og Baldur, er svo­kallað RoRo-skip, það er skip þar sem far­ar­tækjum er keyrt um borð í. Til sama­burðar eru þau skip sem híft er upp í kölluð LoLo-skip. Það er því mik­il­vægt að ekju­brýrnar virki fyrir umrædd skip. Sökum þess að Röstin er breið­ari en Baldur hafa menn áhyggjur af því að inn­keyrslu­hornið inn í skipið verði þröngt, einkum þegar lágt er í sjó.

Ekju­brýrnar ekki hann­aðar fyrir svo stórt skipEkjubrýr í Stykk­is­hólmi og Brjáns­læk voru hann­aðar fyrir mun mjórra skip en Baldur. Röstin, sem taka á við af Baldri, er enn breið­ari.

Hefur trú á að saman náist

Jóhanna Ósk Hall­dórs­dóttir fram­kvæmda­stýra Sæferða segir að óform­legar við­ræður séu hafnar við Vega­gerð­ina um samn­inga um rekstur á Röstinni. „Óform­legar við­ræður eru hafnar og við eigum fund saman í næstu viku þannig að þetta er bara í far­vegi. Ef Sæferðir fá ekki áfram­hald­andi rekstr­ar­samn­ing er starf­sem­inni sjálf­hætt en starfs­fólkið verður áfram í Stykk­is­hólmi, það býr þar. Nýr rekstr­ar­að­ili hlýtur þá að setja sig í sam­band við þetta fólk og fal­ast eftir kröftum þess. Okkur hefur hins vegar gengið mjög vel að vinna með Vega­gerð­inni og ég hef alveg trú á að okkur tak­ist að finna ein­hverja lausn á þessu, við þurfum bara að bera saman bækur okkar og sjá í hverju mis­mun­ur­inn liggur.“

„Ef Sæferðir fá ekki áfram­hald­andi rekstr­ar­samn­ing er starf­sem­inni sjálf­hætt“
Jóhanna Ósk Hall­dórs­dóttir
fram­kvæmda­stýra Sæferða

Spurð hvort upp­sagn­irnar hafi komið illa við starfs­fólk Sæferða vill Jóhanna ekki kann­ast við það. „Ég myndi ekki segja að það hafi komið illa við fólk. Jú, ein­hverjum kom þetta á óvart en ein­hverjir aðrir reikn­uðu með þessu af því það var svo langt liðið á birt­ingu útboðs­ins. Starfs­fólkið hefur verið mjög vel upp­lýst og verður það áfram.“

Uppsagnirnar komu á óvart

Úlfar Hauksson, vél­stjóri á Baldri, er ekki til­bú­inn til að taka alveg undir með Jóhönnu. „Ég get alveg sagt þér að þetta fór mis­jafn­lega ofan í fólk. Þessi upp­sögn, á þessum tíma­punkti, hún kom mér frekar á óvart og ég held að hún hafi komið flestum á óvart. Það hefur auð­vitað verið rosa­leg óvissa um þetta og fólk átti allt eins von á því að þessar sigl­ingar yrðu lagðar af, það hefði til dæmis ekk­ert komið mér á óvart.“

„Það þarf ekki þrjú þús­und tonna bíl­ferju til þess“
Úlfar Hauksson
vél­stjóri á Baldri, um þörf á þjón­ustu við íbúa Flat­eyjar

Úlfar bendir í því sam­hengi á að þó að búseta sé í Flatey sé ljóst að hægt sé að þjón­usta íbúa þar með minni til­kostn­aði en með því að reka ferju af sama tagi og Baldur eða Röstina. „Það þarf ekki þrjú þús­und tonna bíl­ferju til þess.“

Sem fyrr segir var það ekki aðeins starfs­fólk Sæferða sem vinna á Baldri sem fékk upp­sagn­ar­bréf heldur einnig starfs­fólk á skemmti­ferða­skip­inu Særúnu. Særún tekur allt að 115 far­þega og siglir skoð­un­ar­ferðir um eyj­arnar á Breiða­firði, þar sem sjá má fugla og seli, jafn­vel háhyrn­inga og aðra hvali. Þá er ferskt sjáv­ar­fang veitt á meðan á sigl­ing­unni stendur og far­þegum boðið að smakka á.

Úlfar segir að það komi á óvart að því starfs­fólki hafi verið sagt upp einnig. „Eimskip hefur gefið það út að það sé eng­inn grund­völlur fyrir rekstri Sæferða ef ferju­sigl­ing­arnar eru ekki hluti af því. Ég klóra mér svo­lítið í hausnum yfir því, það koma þrjár millj­ónir ferða­manna til lands­ins á ári og Stykk­is­hólmur er í tveggja tíma fjar­lægð frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu, með öllum infrastrúktúr. Ég á erfitt með að trúa að ekki sé hægt að reka ferða­þjón­ustu­sigl­ingar í slíkum aðstæðum.“

Eykur öryggiSökum þess að Röstin er búin tveimur vélum mun það auka öryggi í ferju­sigl­ing­unum. Baldur, sem hér sést á inns­tím­inu 3. ágúst, er aðeins búinn einni vél og hefur orðið vél­ar­vana á Breiða­firði í tvígang sein­ustu tvö ár.
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár