Novator verður áfram hluthafi í Nova

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son og við­skipta­fé­lagar hans munu áfram eiga hlut í Nova, þrátt fyrir að til­kynnt hafi verið um sölu þeirra á Nova til banda­rísks eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis í októ­ber.

Novator, fjár­fest­inga­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar og við­skipta­fé­laga hans, verður áfram fjár­festir í fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Nova. Tilkynnt var um það í byrjun októ­ber 2016 að Novator hefði selt allt hlutafé sitt í Nova, alls 94 pró­sent hlut, til banda­ríska eigna­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Pt Capital Advisors. Nú liggur fyrir að Novator mun halda áfram á hlut í Nova en ekki fást upp­lýs­ingar um hversu stór sá hlutur verður. Þetta kemur fram í svarið Novator við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Þegar til­kynnt var um kaup Pt Capital Advisors á Nova í októ­ber var kaup­verðið sagt trún­að­ar­mál. Heim­ildir Kjarnans herma hins vegar að það hafi verið yfir 15 millj­arðar króna fyrir allan 94 pró­sent hlut Novator í íslenska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu, en stjórn­endur Nova, meðal ann­ars Liv Berg­þórs­dóttir, eiga sex pró­sent hlut.

Skömmu eftir að til­kynnt var um við­skiptin, sem meðal ann­ars voru valin við­skipti árs­ins í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, var greint frá því í fjöl­miðlum að við­skiptin væru ekki eins borð­leggj­andi og til­kynnt var um. Til stæði að fá íslenska einka­fjár­festa og líf­eyr­is­sjóði að Nova og til að taka um þriðj­ungs­hlut í fyr­ir­tæk­inu. Þetta var einnig stað­fest á vef­síðu Íslenskra verð­bréfa, ráð­gjafa Pt Capital Advisors, þar sem stóð að end­an­legur hlut­hafa­hópur Nova myndi sam­an­standa af íslenskum fag­fjár­festum, auk Pt Capital Advisors og stjórn­enda Nova.

Morg­un­blaðið greindi frá því í upp­hafi árs að erf­ið­lega gengi að fá líf­eyr­is­sjóði lands­ins til að taka þátt í kaup­unum og að enn væri leitað íslenskra fjár­festa til að ljúka fjár­mögnun. Þrír af fjórum stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins höfðu þegar, sam­kvæmt Morg­un­blað­inu, ákveðið að taka ekki þátt í við­skipt­unum né neinn þeirra inn­lendu fram­taks­sjóða sem Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna hef­ur fjár­fest í.

Flókin viðskipti

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Novator um hvar málið stæði. Í svari frá upp­lýs­inga­full­trúa félags­ins segir að samn­ingar um kaup Pt Capital Advisors á Nova liggi fyrir. „End­an­legur frá­gangur söl­unnar mun lík­lega verða í lok febr­úar. Þetta eru fremur flókin við­skipti þar sem um er að ræða erlendan kaup­anda að íslenskri eign í umhverfi þar sem gjald­eyr­is­hömlur eru. Auk þess spila inn í þættir eins og frá­gangur end­an­legra skjala vegna fjár­mögn­unar og kaup­enda­hóps.

Novator hefur sam­þykkt boð Pt Capital um að vera áfram fjár­festir í félag­inu. Pt Capital taldi mik­il­vægt að vera með íslenskan sam­starfs­að­ila sem hefði reynslu af fjár­fest­ingum á Íslandi og far­síma­rekstri. Pt Capital lítur á Novator sem besta „strategic partner“ sem hægt er að fá.

Novator væntir mik­ils af sam­starf­inu við PT Capital, enda telur Novator Nova vera afar áhuga­verðan fjár­fest­ing­ar­kost og vill auk þess styðja við stjórn­endur Nova sem hafa ákveðið að fjár­festa áfram í félag­inu.“

Þar sem samn­ingar væru ekki enn frá­gengnir þá feng­ust ekki frek­ari upp­lýs­ingar um hvernig eign­ar­hald­inu yrði háttað að þeim loknum, t.d. hversu stórum hlut Novator myndi halda áfram í Nova.

Pt Capital Advisors er dótt­ur­fé­lag Pt Capital, og er með aðsetur í Anchorage í Alaska. Félagið leggur meg­in­á­herslu á fjár­fest­ingar á norð­ur­slóð­um, en Nova er fyrsta fjár­fest­ing félags­ins hér á landi. Kaup­verðið á Nova er trún­að­ar­mál.

Nova með sterka stöðu á íslenskum fjarskiptamarkaði

Nova náði þeim áfanga á síð­ari hluta árs­ins 2015 að vera það fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins sem er með mesta mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði. Síminn hafði haldið á þeim kyndli frá upp­hafi far­síma­tíma­bils­ins hér á Íslandi. Bilið á milli Nova og Símans hefur auk­ist lít­il­lega á fyrri hluta árs­ins 2016. Í lok júní var Nova með 149.850 við­skipta­vini og 34,4 pró­sent mark­aðs­hlut­deild, en Síminn með 147.126 við­skipta­vini og 33,7 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Þetta kemur fram í töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar sem sýnir stöð­una á fjar­skipta­mark­aði um mitt ár 2016.

Þótt föstum áskriftum hjá Nova fjölg­i alltaf ár frá ári er það enn svo að tæp­lega tveir af hverjum þremur við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins eru með fyr­ir­fram­greidda þjón­ustu, svo­kall­að frelsi.

Nova er samt sem áður það fyr­ir­tæki á fjar­skipta­mark­aði sem tekur til­ sín nán­ast alla við­bót­arnot­endur sem bæt­ast við far­síma­mark­að­inn á ári hverju. Frá árs­lokum 2012 hefur við­skipta­vinum Nova til að mynda fjölgað um 37 þús­und, sem er nákvæm­lega sama fjölgum og hefur alls orðið á far­síma­mark­aðnum frá þeim tíma.

Nova er líka með yfir­burða­stöðu þegar kemur að notkun gagna­magns á far­síma­neti. Við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins nota 68,2 pró­sent af öllu gagna­magni sem notað er á því neti. Við­skipta­vinir Símans koma þar á eftir með um 18 pró­sent af heild­ar­notk­un­inni. Þeir sem versla við Vodafone nota 11,2 pró­sent og við­skipta­vinir 365 2,4 pró­sent.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ingu Kjarnans um íslenskan far­síma­markað hér.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ingu Kjarnans um aukna gagna­magns­notkun Íslend­inga hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið undanfarið ár