Íslendingar nota 30 sinnum meira gagnamagn en 2010

Á fyrstu sex mán­uðum þessa árs not­uðu íslenskir neyt­endur 7,2 millj­ónir gíga­bæta í far­síma­neti. Það er 30 sinnum meira en þeir not­uðu á fyrri hluta árs­ins 2010, tólf sinnum meira en á sama tíma­bili 2012, þrisvar sinnum meira en á fyrri hluta 2014 og 60 pró­sent meira en þeir voru búnir að gera eftir sex mán­uði árið 2015.

Nova er með yfir­burða­stöðu þegar kemur að notkun gagna­magns á far­síma­neti. Við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins nota 68,2 pró­sent af öllu gagna­magni sem notað er á því neti. Við­skipta­vinir Símans koma þar á eftir með um 18 pró­sent af heild­ar­notk­un­inni. Þeir sem versla við Vodafone nota 11,2 pró­sent og við­skipta­vinir 365 2,4 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar sem sýnir stöð­una á fjar­skipta­mark­aði um mitt ár 2016.

Nova, sem hóf starf­semi fyrir níu árum síðan, var selt til banda­ríska eigna­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Pt Capital Advisors í byrjun októ­ber síð­ast­lið­ins á yfir 15 millj­arða króna. Selj­and­inn var stofn­andi Nova, fjár­fest­inga­fé­lagið Novator sem er aðal­lega í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar.

Síminn sterkur í tengingum á fastaneti

Notkun á ganga­magni í far­síma­neti segir þó ekki alla sög­una um gagna­magns­notkun Íslend­inga í gegnum far­síma eða önnur tæki sem geta tengst slíku neti. Uppi­staðan af gagna­magns­notkun Íslend­inga á sér­ ­stað á fasta­net­inu. Þ.e. Íslend­ingar reyna frekar að vera með snjall­tækin sín tengd fasta­neti heima hjá sér, á vinnu­stöðum og víðar frekar en að not­ast við 3G eða 4G kerfin til að ná sér í gögn. Á fasta­net­inu er Sím­inn með mjög sterka stöð­u.

Alls eru 48,9 pró­sent allra inter­netteng­inga á Íslandi hjá Sím­an­um. Vodafone er ­með 28,3 pró­sent og eru þessir tveir aðilar með tölu­verða yfir­burði á mark­aðn­um. Þannig hefur staðan hald­ist und­an­farin ár. 365 missti mark­aðs­hlut­deild á inter­net­mark­að­i í fyrra þegar hlut­fall hennar fór úr 13 pró­sentum í 12,6 pró­sent. Sá nið­ur­túr hefur haldið áfram á fyrri helm­ingi þessa árs og er mark­aðs­hlut­deild 365 nú 11,8 pró­sent. Frá miðju ári 2015 hefur fyr­ir­tækið misst 1.865 við­skipta­vini í inter­net­þjón­ustu.

Hringdu hefur hins vegar bætt vel við sig. Á síð­asta ári og jókst ­mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins úr 3,7 pró­sent í 5,4 pró­sent. Um mitt ár 2016 var hún komin í 6,1 pró­sent. Við­skipta­vinum Hringdu hefur fjölgað um 3.396 frá miðju ári 2014.

Nova hefur ekki selt inter­net­þjón­ustu með öðrum hætti en í gegnum far­síma­kerfi á und­an­förnum árum. Á því varð breyt­ing fyrr á þessu ári þegar að fyr­ir­tæk­ið til­kynnti að það ætl­aði að hefja ljós­leið­ara­þjón­ust­u. Því mun sam­keppnin um inter­netteng­ing­arnar aukast til muna á næst­unni. Þar sem ein­ungis nokkrar vikur höfðu liðið frá því að Nova til­kynnti um áform sín um sölu á ljós­leið­ara­teng­ingum þá er fyr­ir­tækið ekki með í mæl­ingum Póst- og fjar­skipta­stofn­unar á inter­net­mark­að­inum í nýj­ustu skýrslu stofn­un­ar­innar.

4G-­bylt­ingin breytti öllu

Fjar­skipta­mark­að­ur­inn hefur tekið miklum breyt­ingum á und­an­förnum árum og snýst nú um svo miklu meira en bara sím­töl. Aðal­á­herslan nú er á gagna­magn, sem sést vel á þeirri aukn­ingu sem orðið hefur á gagna­magni á far­síma­net­inu á und­an­förnum árum. Á árinu 2013 not­uðu Íslend­inga 2,7 millj­ón­ir ­gíga­bæta á far­síma­net­inu. Í fyrra not­uðu þeir 10,2 millj­ónir gíga­bæta, eða tæp­lega fjórum sinnum meira magn. Á fyrri helm­ingi árs­ins 2016 var notk­unin 7,2 millj­ónum gíga­bæti.

Ástæðan fyrir þess­ari miklu breyt­ingu er sú að far­síma­­tíma­bil fjar­­skipta­­geirans er liðið undir lok og gagna­­flutn­inga­­tíma­bilið tekið við. Tíðn­i­heim­ildir fyrir 3G, ­fyrsta há­hraða­kyn­slóð far­síma­­nets­­kerf­ið, voru boðnar út á Íslandi í lok árs 2006. Kerfið er í raun mun frekar net­­kerfi en far­síma­­kerfi og gerð­i ­gagna­­flutn­ing ­mög­u­­leg­­an.

Næsti fasi stend­ur nú yfir, skrefið yfir í 4G-­­kerf­ið. Skref­ið ­sem verður tekið upp á við með henn­i er stærra en margir átta sig á. Hrað­inn á 4G-teng­ingu er tíu sinnum hrað­­ari en í 3G og um þrisvar sinnum hrað­­ari en hröð­­ustu ADS­L-teng­ing­­ar.

4G-væð­ingin á Ísland­i hófst af alvöru á árinu 2014 þeg­ar ­fjöldi 4G-korta í símum fimm­fald­að­ist. Um mitt það ár voru 17,8 pró­sent allra virkra síma­korta 4G-kort. Í lok júní 2016 var helm­ingur þeirra 4G-kort.

Sjónvarpsboxin

Í þeim tveimur töl­fræði­skýrslum Póst- og fjar­­skipta­­stofn­unar sem gefnar hafa verið út í ár var í fyrsta sinn nú birt yf­ir­­lit ­yfir heild­­ar­­fjölda á­skrif­enda með sjón­­varp yfir IP-­­net. Þ.e. hvern­ig „­sjón­varps­­box­in“ skipt­­ast á milli­ þeirra aðila sem bjóða við­­skipta­vin­um sínum upp á að vera með sjón­­varp í gegn­um ­netteng­ing­­ar. Þeir aðilar eru þrír: Sím­inn, Vodafone og 365.

Síminn og Vodafone skipta að mestu með sér þeim mark­aði. Síminn er með 56,1 pró­sent hans en Vodafone með 37,8 pró­sent. Bæði fyr­ir­tækin hafa bætt við sig við­skipta­vinum frá miðju ári 2015. 365 er í fyrsta sinn talið með í nýj­ustu skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar og er með sex pró­sent mark­aðs­hlut­deild.

Í þessu sam­hengi skipt­ir ugg­­laust miklu máli að ekki er hægt að tengj­ast ­sjón­varpi Sím­ans í gegn­um ­ljós­­leið­­ara­­net, sem byggst hefur upp á und­an­­förn­um árum. Þess í stað býður Sím­inn upp á svo­­kall­að ­ljós­­net, sem teng­ist inn í heim­ili í gegnum kop­­ar­­taug.

Þetta er fyrri frétta­skýr­ing Kjarnans um nýja skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar. Síðari skýr­ingin birt­ist á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið undanfarið ár