Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari.
Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari. Mynd: Bára Huld Beck

Ísland bjóði upp á „skálkaskjól“ fyrir netglæpi

Vara­rík­is­sak­sókn­ari segir „hreint galið“ að glæpa­menn hafi vett­vang „í tún­fæt­inum hjá okkur, til að fremja glæpi sína undir nafn­leynd“ og vísar þar til þjón­ustu nokk­urra net­þjón­ustu­fyr­ir­tækja sem hýsa starf­semi sína hér á landi.

Íslenskum yfir­völdum ber­ast stundum rétt­ar­beiðnir erlendis frá vegna rann­sókna á net­glæpum af ýmsu tagi, en geta lítið brugð­ist við, þar sem hér á landi fjarar slóðin hrein­lega út og endar hjá fyr­ir­tækjum sem reka án laga­legra tak­mark­ana inter­net­þjón­ustur sem tryggja við­skipta­vinum um allan heim fulla nafn­leynd.

Vara­rík­is­sak­sókn­ar­inn Helgi Magnús Gunn­ars­son vakti athygli á þessu í Facebook-færslu fyrir skemmstu og sagði þar að dæmi væri um að þjón­ustur væru skráðar erlendis, til dæmis í Belís, en bjóði svo upp á þjón­ustu eða hýs­ingu fyrir við­skipta­vini sína hér á landi.

„Hreint galið“

Helgi Magnús var ber­orður í færslu sinni um málið og sagði að við værum með „vett­vang fyrir glæpa­menn, í tún­fæt­inum hjá okkur, til að fremja glæpi sína undir nafn­leynd,“ og kall­aði það „hreint galið.“ „Þetta kann að skapa ein­hverjum gagna­verum ávinn­ing en er að mínu viti algjör­lega sið­laust og ekki gott fyrir ásýnd lands­ins að við rekum slíkt skálka­skjól,“ skrif­aði Helgi Magnús.

Hann nefndi svo dæmi um að þjón­usta með hýs­ingu hér á landi hefði verið nýtt til þess að krefj­ast tug­millj­óna króna lausn­ar­gjalds fyrir gögn sem tekin höfðu verið í gísl­ingu á stóru sjúkra­húsi úti í heimi. Engin leið væri fyrir hér­lend yfir­völd til að verða að liði við rann­sókn­ina.

Helgi Magnús til­tók ekki neinar sér­stakar inter­net­þjón­ustur á nafn í færslu sinni, en Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að hið minnsta þrjár þjón­ustur sem hægt sé að nýta með þeim hætti sem vara­rík­is­sak­sókn­ari lýsir hafi verið til skoð­unar hjá yfir­völdum hér á landi.

Á vef­síðum þess­ara þjón­ustu­veit­enda má lesa að íslensk lög­gjöf sé lyk­il­þáttur í þeirri þjón­ustu sem boðið sé upp á. Í fyrsta lagi má nefna CTemplar, sem er dulkóðuð tölvu­póst­þjón­usta, „bryn­var­inn tölvu­póstur“ sem leyfir not­endum að vera full­kom­lega nafn­lausir í sam­skiptum sín á milli án nokk­urrar raf­rænnar slóðar.

Á vef þjón­ust­unnar er sér­stök umfjöllun um íslenska gagna­leynd­ar­lög­gjöf og útskýrt af hverju hún hafi orðið til þess að fyr­ir­tækið valdi að hýsa starf­semi sína hér á landi.

CTemplar segist notast við vefþjóna á Íslandi til hýsingar þar sem hér á landi sé lagaleg vernd þeirra sem vilja nota tölvupóst á öruggan hátt sú sterkasta.
CTemplar seg­ist not­ast við vef­þjóna á Íslandi til hýs­ingar þar sem hér á landi sé laga­leg vernd þeirra sem vilja nota tölvu­póst á öruggan hátt sú sterkasta.

Efst á lista er það að Ísland sé ekki með neina lög­gjöf sem varði gagna­geymslu vef­pósts. „Þegar þú eyðir tölvu­pósti, þá er honum eytt undir eins og engin afrit eru geymd. Það er vert að taka fram að íslensku fjar­skipta­lögin nr. 81/2003 skylda net­veitu­fyr­ir­tæki til að halda utan um og geyma gögn í 6 mán­uði. CTemplar er ekki net­veitu­fyr­ir­tæki, svo þessi gagna­geymslu­lög eiga ekki við um okkur,“ segir á vef­síð­unni.

Í annað stað er svo tekið fram að Ísland bjóði upp á algjört nafn­leysi eftir lög­legum leiðum, þar sem íslensk lög geri ekki kröfur um skrán­ingu IP-talna. Því er bætt við að hér sé meira að segja hægt að kaupa SIM-kort í far­síma án skrán­ingar. Sterk vörn upp­ljóstr­ara hér á landi, dóm­stólar sem passi vel upp á per­sónu­vernd og lítil þátt­taka Íslands í alþjóða­samn­ingum um gagna­skipti eru einnig nefnd sem ástæður fyrir því að CTemplar hýsir þjón­ustu sína á Íslandi.

Á vef CTemplar, sem haldið er úti af fyr­ir­tæk­inu sem skráð er á Seychelles-eyjum í Ind­lands­hafi, kemur fram að heim­il­is­fang félags­ins, ef ske kynni að ein­hverjum lang­aði að senda þeim bréf­póst, sé í Ármúla 4-6 í Reykja­vík, en þar rak félagið Orange Project ehf. skrif­stofu­hótel. Orange Project varð gjald­þrota í lok árs 2020.

Fjarskrifstofa í Hafnartorgi

Ekki er þó lík­legt að ein­hverjir starfs­menn á vegum CTemplar hafi haft vinnu­að­stöðu í Ármúl­anum, ekki frekar en það er lík­legt að starfs­menn frá fyr­ir­tæki sem heitir Withheld for Privacy sitji á skrif­stofu­hót­eli sem fyr­ir­tækið Regus rekur við Kalkofnsveg 2, í Hafn­ar­torgi.

Við Kalkos­fnsveg er Withheld for Privacy, sem rekið er undir íslenskri kenni­tölu, skráð með skrif­stofu og síma­númer, en lík­lega er um að ræða svo­kall­aða fjar­skrif­stofu (e. virtual office) sem hægt er að leigja af Regus fyrir rúmar 12 þús­und krónur á mán­uði, sam­kvæmt vef skrif­stofu­hót­els­ins.

Þjón­ustan sem Withheld for Privacy býður upp á felst í því að gera þeim sem eru að tryggja sér lén undir vef­síður kleift að fara huldu höfði – þannig að þriðju aðilar eins og t.d. lög­gæslu­yf­ir­völd geti ekki rakið skrán­ingu léns­ins aftur til ein­stak­lings eða fyr­ir­tækis, sam­kvæmt því sem fram kemur á vef fyr­ir­tæk­is­ins.

Fyrirtæki í Belís segist til húsa á Klapparstíg

Í mið­bænum er svo önnur þjón­usta skráð til húsa, sem hefur verið til skoð­unar hjá íslenskum lög­gæslu­yf­ir­völdum, sem geta þó lítið aðhafst. Það er OrangeWebsite, sem hefur áður verið til umfjöll­unar í íslenskum fjöl­miðlum, meðal ann­ars fyrir að hýsa nýnas­ista­vef­síð­una The Daily Stormer, sem var með lén með .is end­ingu til skamms tíma.

Á vef OrangeWebsite seg­ist fyr­ir­tækið vera til húsa á Klapp­ar­stíg 7, en það er fjöl­býl­is­hús. Samkvæmt frétt Stund­ar­innar frá 2017 kann­að­ist eng­inn íbúi í hús­inu við fyr­ir­tækið og póstur til fyr­ir­tæk­is­ins reglu­lega end­ur­sendur. Nánar var fjallað um þetta félag í Stund­inni síð­asta haust, í tengslum við Pand­óru­skjölin svoköll­uðu, en gögn sem þar láku sýndu fram á að Íslend­ingur búsettur í Taílandi hefur verið við­rið­inn starf­sem­ina.

Í við­tali við Stundina sagði mað­ur­inn, Aðal­steinn Pétur Karlsson, að hann gæti ekki látið sína „per­sónu­legu skoðun stýra hvað er verið að hýsa.“

„Við förum bara eftir því sem lögin á Íslandi segja,“ sagði hann í við­tali við Stundina. „Ef að Ísland er að segja að þetta sé í lagi, þá er þetta í lagi.“

Auglýsingaborði á vef OrangeWebsite hreykir sér af því að hýsing fyrirtækisins sé keyrð áfram af 100 prósent grænni orku.
Aug­lýs­inga­borði á vef OrangeWebsite hreykir sér af því að hýs­ing fyr­ir­tæk­is­ins sé keyrð áfram af 100 pró­sent grænni orku.

OrangeWebsite býður upp á hýs­ingu og ýmsar lausnir frá gagna­veri á Íslandi og seg­ist á vef sínum þjón­usta við­skipta­vini í yfir 100 löndum, en reyndar eru þær tölur frá árinu 2014. Félagið á bak við OrangeWebsite heitir IceNetworks Ltd. og hefur bæði verið skráð í Belís í Mið-Ameríku og á Seychelles-eyjum.

Helgi Magnús sagði í færslu sinni að þegar ná þyrfti í fyr­ir­tæki af þessu tagi þá væri ýmist upp­lýs­ingum um við­skipta­vin­inn ekki til að dreifa, ekki næð­ist í neinn fyr­ir­svars­mann starf­sem­innar eða upp­lýs­ing­arnar vistaðar ein­hvers staðar þar sem engin leið væri að nálg­ast þær og „eng­inn vilji til að afhenda þær, enda er við­skipta­mód­elið einmitt þetta, skálka­skjól.“

Ísland toppar flesta lista um netfrelsi

Frelsi á inter­net­inu er nær hvergi meira en á Íslandi, sam­kvæmt alþjóð­legum mæli­kvörðum. Í nýj­ustu úttekt Freedom House á net­frelsi í heim­inum, er Ísland efst á lista með 96 stig af 100 mögu­legum.

Margt af því sem gert hefur verið til að liðka fyrir net­frelsi á Íslandi á und­an­förnum árum á rætur sínar að rekja til þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem sam­þykkt var mót­at­kvæða­laust á Alþingi árið 2010, um að Ísland skapi sér afger­andi laga­lega sér­stöðu varð­andi vernd tján­ingar- og upp­lýs­ing­ar­frelsis.

Þar voru lagðar fram til­lögur til þess að „umbreyta land­inu þannig að hér verði fram­sækið umhverfi fyrir skrán­ingu og starf­semi alþjóð­legra fjöl­miðla og útgáfu­fé­laga, sprota­fyr­ir­tækja, mann­rétt­inda­sam­taka og gagna­vers­fyr­ir­tækja“ og sagði í til­lög­unni að slíkar breyt­ingar myndu „treysta stoðir lýð­ræðis, verða hvati til nauð­syn­legra umbóta hér­lendis og auka gagn­sæi og aðhald“, auk þess sem stefnu­mörk­unin „gæti gefið þjóð­inni aukið vægi á erlendum vett­vangi og orðið lyfti­stöng í atvinnu- og efna­hags­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið undanfarið ár